15.7.2008 | 02:06
Frávísunarkröfu vísað frá?
![]() |
Frávísunarkröfu vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2008 | 04:34
Uppreisn æru!
Jæja, þá hafiði það gott fólk. "Að nenna ekki að raka sig" er það sem gildir. Uppreisn æru fyrir Tuðarann.! Gillett hefur ekki grætt nema rétt undir fárækramörkum á Tuðaranum gegnum árin. Betri helmingurinn kallar það reyndar leti að misþyrma ekki viðkvæmri húðinni með "Túrbófimmblaðasköfum" hvern morgun, og lætur að því liggja að loðinn kjammi jaðri við vera skítugur, þegar Tuðarakvikyndið hefur ekki nennt að skafa broddana framan úr bjánafésinu í einhverja daga. Sjálfum finnst Tuðaranum best að vera svolítið villtur í framan, en að hafa mynd af Pittinum sem undirstrikun fyrir fullyrðingunni um að órakaðir karlar séu svona frekar meira aðlaðandi en andlitsskeindir, finnst Tuðaranum frekar grunnt. Þó Tuðarinn skafi ekki framan úr sér á hverjum degi, mun sennilega fyrr frjósa í Helvíti, en að hann nái nokkurn tíma "lookinu" hans Brads. Reyndar útleggst nafnið Brad sem Brattur á íslensku og guttinn sá ( Þessi íslenski) er vel "broddaður" um kjammana,(allavega síðast er ég sá hann) og hvers manns og konu hugljúfi. Við letingjar sem nennum ekki andlitssköfun nema þegar okkur hentar, erum bara nokkuð sáttir við að vera taldir svolítið "hönk" (ekki spotti) og hvetjum alla sem leiðist daglegur rakstur að reyna nú einu sinni eitthvað nýtt. Til dæmis með rakstur annan hvern dag og síðan þriðja og síðan fjórða o.svo fr.vegis þar til komið er gott "Look". Er viss um að Brad og Brattur eru mér sammála.
![]() |
Skeggbroddar leiðin til að vinna hjarta konunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.6.2008 | 03:12
Réttu mér róuna!
"Réttu mér róuna, ég pant ára."
Þessi setning hefur vafist fyrir mörgum manninum/konunni, gegnum tíðina. Hvort árar maður/kona með róunni, eða róar með árunni? Hrönn vinkona mín á Selfossi sem á fleiri hlaupaskó en hafa verið fundnir upp, "so far" velti þessu gríðarlega mikla spursmáli fyrir sér nýlega. Ég hef svosem engin svör "á reiðum höndum"(Brattur...your turn) en tel að sá sem rær, eigi í flestöllum tilfellum að ráða lendingarstað.
Brattur.....C að þú ert enn Crstaklega aktivur.
Hilsen ,
Ctuðarinn.
27.6.2008 | 04:46
Íslenskur aumingjaskapur.
Tvær krónur! Eigum við kaupendur að hoppa hæð okkar af gleði vegna þess? Hvern fjárann skipta tvær krónur okkur til lækkunar, þegar við höfum verið tekin í hinn endann, ósmurt með hundrað kalli, undanfarnar vikur? Það standa ennþá ansi margar krónur stíflaðar í ónefndum enda sem illa horfir með að losni um á næstunni.
Tölvupóstur gengur manna og kvenna í millum þessa dagana, þar sem VIÐ erum hvött til að sniðganga ákveðin SAMRÁÐSFÉLÖG í olíu og bensínbransanum vegna óheyrilega hás eldsneytisverðs. Hvað gerist? .....Ekkert! ...........Áfram halda "löghlýðnir" viðskiptavinir að versla við Samráðið og svo skilur fólk ekkert í því að verðið haldi áfram að hækka! Íslendingar eiga skilið hátt eldsneytisverð. Við erum ekki einu sinni fólk til að mótmæla! Þetta er dæmigerður íslenskur aumingjaskapur! Íslendingar eru verstu mótmælendur í heimi og það nýta sér bæði innlendir sem erlendir auðhringar, olíufurstar, álrisar og innlendir "draumaprinsar" í verðbréfageiranum.. Strauja hér yfir menn og náttúru og hljóta til þess fulltingis Alþingis. Alþingis, þar sem eitt sinn riðu hetjur um velli.
Við erum þegar öllu er á botninn hvolft........okkar eigin verstu óvinir. Hátt eldsneytisverð eigum við skilið eins og aðrar þjóðir því að..............við gerðum EKKI NEITT:
Með tár á vanga.:
Tuðarinn.
![]() |
Verð á eldsneyti lækkar um 2 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.6.2008 | 03:42
"GRÍÐARLEGS" sársauka"#$&%#"9&%
"Kona sem slasaðist á auga við að fara í nærbuxur sínar hefur kært nærbuxnaframleiðandann, "Victorias Secret" fyrir að hafa valdið henni GRÍÐARLEGS, sársauka." (Veit að gæsalappirnar eru ekki samkvæmt okkar staðli, en gríðarlegs.......):-(
Ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa fréttamennsku og því síður um málfar fréttamannsins sem sennilega á heiðurinn af "snöruninni" yfir á okkar ástkæra mál. Er ekki kominn tími til að ritstjórn Morgunblaðsins ráði til sín skrifandi einstaklinga? Látum vera að engar kröfur séu lengur gerðar til fréttamanna um efnistök, en andskotinn sjálfur, ef ekki er lengur hægt að skrifa fréttir og ekkifréttir betur en í þessari ömurlegu ekkifrétt. Búinn að segja upp Mogganum fyrir nokkru síðan og sé að það var alveg hárrétt ákvörðun. Bæði "ekónómísk" og til að forðast fruss yfir morgunkaffinu. Þvílíkt metnaðarleysi! Þó ekki hafi verið nema þvengur sem um ræddi. Hún fékk jú aðskotahlut í augað blessuð konan. Hver á svosem von á því, á leiðinni í undirföt, þó efnislítil séu?
![]() |
Nærbuxnaslys kært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
14.6.2008 | 02:43
Stutt athugasemd.
![]() |
Sektaður fyrir að vera ber að ofan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2008 | 03:21
Ábyrgð fjölmiðla.
![]() |
Snarpir eftirskjálftar í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
14.5.2008 | 03:28
"Furðuleg" hreinsun.
Það er varla hægt annað en að brosa út í annað yfir "hreinsunarferlinu" í Sundahafnarolíuslyssfréttamannaofurútlistuninni. 600 lítra sletta datt í höfnina og allt ætlar vitlaust að verða! Fyrst er öllu olíugúmmelaðinu dælt á land í þar til gerðar þrær, en meðan menn og konur, já ef ekki mýs líka sofa, rignir aðeins meira en menn og mýs áttu von á og allt gúmmelaðið flýtur til hafs á ný, sem aftur veldur öðru mengunarslysi, sennilega öllu verra, minna en sólarhring síðar og það á enn verri stað en í fyrra skiptið! Er hægt að klúðra "björgunaraðgerðum" öllu meir?
Bara byggja olíuhreinsistöð fyrir vestan!!! Jahú og bara láta vaða! Það þarf jú að redda byggðunum, sama hvað það kostar! Brandari dagsins er algerlega misheppnað "björgunarteymi" þegar olíuslys ber að ströndum. Þvílíkt og annað eins klúður!!!!! Gúmmituðrurnar og blikkandi björgunarsveitarbílarnir sannfærðu mig engan veginn um það að við getum átt við olíuleka af stærðargráðunni milljón lítrar- plús.
Vil að lokum benda á að uppþvottalögur er eitt albesta mótvægi við olíubrák og þekkt "Trix" um allan heim, nema ef vera skyldi hér á landi. Drottinn minn dýri, ég vona að hingað álpist aldrei olúhreinsunarstöð!!!!!!!
![]() |
Olíuhreinsun gengur vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
24.4.2008 | 02:47
GLEÐILEGT TUÐARA "TRUKKASUMAR!"
Kæru vinir, allir landsmenn, fæddir hér sem annars staðar, vandamenn, venslamenn, skyldir sem óskyldir og aðrir velunnarar, sem og þeir sem þola mig engan veginn.: Gleðilegt sumar, þó sennilega væri réttara að þakka fyrir veturinn fyrst. Við íslendingar erum jú þekktir fyrir að setja forgangsröðunina eftir "behag".
Þessi vetur hefur einhvern veginn, eins og reyndar of margir vetur fram að þessu, liðið eins og örskotsstund og enn er blessað sumarið komið á ný, óháð stýrivöxtum eða "stórkostlegum landvinningum hérlendra kaupahéðna eða útrásar"snillinga".
Með tilheyrandi fuglagargi, krakkaöskrum, blómafnyk, grasfýlu, geitungaplágum, rýrnadi kaupmætti, lækkandi fasteignaverði, minnkandi hagvexti, klikkuðum stýrivöxtum, brjálæðislegu eldsneytisverði, ennþá meir skuldasöfnun, akkúrat ENGRI eignamyndun útrásar, "gera ekki neitt ríkisstjórn", síbreytilegri borgarstjórn Reykjavíkur, Abbas á Bessastöðum, Baugi í verðlaunasæti útflutningsgreina, 0-0 hjá Manjú og Börsungum, "trukkastandi" við Rauðavatn, misvitrum dramadrottningum í fjölmiðlastétt.................
Þetta verður gott sumar fyrir TUÐARA, ef hann bara nennir..?!
Spurning hvort svo verður.
Eigiði gott sumar elskurnar mínar allar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
23.4.2008 | 16:38
Útflutningsverðlaun?????
![]() |
Baugur Group hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |