Forstjórar Samgöngustofu og Isavía víkji nú þegar!.

 Aumingjagangur forstjóra þeirra stofnana sem falið hefur verið vald yfir því að leikreglur séu haldnar í flugrekstri, hér á landi, hafa svo gjörsamlega skitið upp á bak, að vandséð er hvernig þessum spjátrungum er stætt í starfi sínu áfram.

 Nánast allt sem þeim var falið að hafa umsjón með, gerðu þeir ekki. Góð laun eiga menn og konur að fá fyrir að sinna skyldu sinni. Því fólki sem bregst í vel launuðum störfum sínum, á vegum hins "opinbera" (mér og þér) en drullar upp á bak, á umsvifalaust að víkja úr strafi! 

 Forstjórar Samgöngustofu og Isavia eru ekki starfi sínu vaxnir og þeim ber að víkja úr störfum sínum ekki seinna en strax! Skúli er kræfur karl og slóttugur, en viðriðnin í eftirlitinu voru og eru ekkert annað en skattborgarapeningasóun. Þvílíkir andskotans ekkisinnalaunaverðir aular! WOW var gjaldþrota í fyrra, samkvæmt öllum kennitölum. Hefðu þessir aumkunnarverðu forstjórar sinnt sinni vinnu, hefði mátt "dempa" höggið. Þar sem þeir bera enga ábyrgð, vita ekkert og gera enn minna, var þvælunni leyft að halda áfram. Vel má vera að starfsandinn hja WOW hafi verið "æðislegur" en það var aldrei innistæða fyrir ruglinu. Það sem kostar þúsund kall, en selt er á fimmhundruðkall skilar einungis einni niðurstöðu. Þetta eru engin geimvísindi.

 Lendingargjaldaskuldin að nálgast annan milljarðinn?

 Þriggja mánuða fjárhagslega sjálfbærnivottorðið ekki einu sinni skoðað?

 Aulaforstjórar í aulastofnunum eiga ekki að sleppa, frekar en Skúli "partyboy".

 Burtu með þessa aula, sem hafa staðið sig afspyrnuilla í störfum sínum!. Farið hefur fé betra. Að afborganir og höfuðsóll af lánum manns skuli fylgja afleikjum fávita er allt að því grátlegt, svo ekki sé nú nefnt hækkað verð á gallabuxum eða útsölulok!. Hversu klikkað getur eitt þjóðfélag eiginlega orðið?

 Fari Skúli Mogensen norður og niður, ásamt forstjórunum tveimur sem áttu að passa hann. Hvers vegna komst hann svona langt, hver bauð honum svona langt og ekki síst, hvað bauð hann þeim sem áttu að " passa" hann sem gerði það að verkum að nú sitja á þriðja þúsund Íslendinga uppi atvinnulausir og almenningur og fyrirtæki sitja uppi með svínaríið, því þetta var aldrei neitt annað en djöfullegt svínarí. Andskotinn bara!!!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 

 

 


Skattfé í áhætturekstur?

 Hvursu miklu af skattfé almennings hefur nú þegar verið varið (sóað) í WOW, í formi eftirgjafa gjalda, sem ekkert annað flugfélag, nú til dags, hefur fengið?. Það skiptir engu þó settar séu upp lonníettur, röksemdafærsla BB er svo gjörsamlega galin að furðu sætir að þessi maður skuli gína yfir Sjálfstæðisflokknum, sem formaður. Er ekki umræðan um WOW kærkomin, þá lauma skal orkupakka númer þrjú gegnum Alþingi? Ísmeygileg framkoma forystu Sjlfstæðisflokksins í "WOWinu", með fulltyngi Kötu sætu og Þistilfjarðarkúvendingsins að hennar baki, er ekkert minna en ömurlegt upp á að horfa. Gulli jafnlaunavottunartrúður og ráðherfan með nöfnin svo mörgu að maður nennir ekki að heyra þau til enda, dansa eins og fábjánar með í fullveldisafsalsdraumi formannsins, enda stórkostlegir hagsmunir í húfi, fyrir rétta fólkið.

 Hverra hagsmuna er hann að gæta, með samningi sem "engu máli skiptir", en er svo algerlega nauðsynlegt að undirrita?

 Hvað er eiginlega að gerast innan forystu Sjálfstæðisflokksins?. Hvernig gat þetta farið svona framhjá okkur fíflunum, sem naglhreinsuðum timbrið í byggingu Valhallar? Gústi í Tollvörugeymslunni og fleiri góðir hugsjónamenn sem þar grófu grunn og reistu byggingu yfir hugsjónir sínar, myndu nú klóra í kistulokin og engjast yfir aumingjaskap forystu flokksins. Hugsjónageldara lið, hefur trauðla rekið á fjörur Íslands. Að Sjálfstæðisflokkurinn skuli vera orðinn afsjálfstæðisflokkur, er svo sárt upp á að horfa að tárin eiga meira að segja erfitt með að falla á hvarm!

 Forysta án flokks, segja sumir. Aðrir segja að forystan hafi gleymt tilgangi sínum og sjái nú ekkert annað en eigið rassgat, takandi við skipunum frá undirsátum sínum, kerfisrottunum og embættismannaelítunni. Það er ekki að vera Sjálfstæðismaður. Það heitir að hafa eigið rassgat að leiðarljósi, sé manni veitt nógu vel fyrir og leiðbeint af "yes minister" hagsmunaaðilum, sem sjá í hyllingum sínum feita skattfrjálsa tékka og feit eftirlaun, suður í brussel.

 Svei rassgatinu. Undarlegt hve langt fólk er reiðubúið að ganga örna sinna, á kostnað samborgara sinna.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Réttlætir ekki skattfé í áhætturekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránlegir "frasar".

 Orðskrúð og gömul slagorð kommúnismans vefjast ekki um tungu forkonu Eflingar. "Verkalýðsbarátta snýst um að tryggja vinnuaflinu mannsæmandi afkomu sama hvað kapítalísk fyrirtæki gera". Er forkona Eflingar svo gegnsýrð af sósíalismanum að hún viti ekki einu sinni við hverja hún er að semja, fyrir hönd umbjóðenda sinna? "Sama hvað kapítalísk fyrirtæki gera". Almenn fyrirtæki eru ekki rekin til að tapa á þeim. Þau eru rekin til að skapa hagnað fyrir eigendur sína. Endalaust má deila um hvað þykir "tilhlýðilegur hagnaður" og sýnist þar sitt hverjum. Hvers vegna bauð þessi mannvitsbrekka sig ekki fram til formanns BSRB? Hún er eins fjarri hinum almenna launamanni á almenna markaðnum og hugsast getur! Hún er gersamlega úti í skurði!

 Allir ættu að geta verið sammála um að laun þeirra lægst launuðu eru of lág í dag. Meginþorri launþega hefur það hinsvegar alveg ágætt. Aldrei virðist vera hægt að hefja þessar kjaraviðræður og að lokum ljúka þeim, sem ávallt gerist að lokum, öðruvísi en blessað fólkið í lægstu launaþrepumum sitji eftir sem áður með sárt ennið og áframhaldandi óásættanleg kjör.  

 Allir vilja jú meira, en ekki allir þurfa mikið meira. Hvers vegna er ekki hægt að nálgast umræðuna með þeim hætti að þeir lægst launuðu séu teknir út fyrir svigann og þeim rétt það sem þeim ber, án þess það þurfi að strauja upp allan skalann? Hvað veldur?

 Getur verið að vanhæfir, sjálflægir og sósíalismagegnsýrðir, verkfallselskandi verkalýðsleiðtogar, sem skilja ekki hagfræði 101 vinnumarkaðarins séu verstu óvinir vinnuaflsins? "Kapítalistar í sósíalismagæru"?

 Spyr sá sem fátt veit. Ekki er hægt að spyrja Stalín, né Cheves því báðir eru dauðir. Hringja í Maduro eða Gunnar Smára? "You tell me". Sólveig Anna verður greinilega á tali um ókomna tíð.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Barátta óháð kapítalískum fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef árangur í starfi réði launum?

 Ef laun núverandi bankastjóra Seðlabanka Íslands væru árangurstengd, hefði hann sennilega aðeins brotabrot af þeim launum sem hann hefur. Aðeins eitt dæmi nægði til að geta staðið við þá fullyrðingu.: 

 Meðferð Seðlabanka Íslands á veðinu sem lagt var fram til lúkningar neyðarláninu til Kaupþings, eina mínútu í Hrun. Veð sem, ef rétt hefði verið á spilunum haldið, hefði ekki einungis dugað fyrir láninu, heldur skilað Ríkissjóði hagnaði af þeirri stærðargráðu að jafnvel kostnaður við "hátæknisjúkrahús" yrði talin skiptimynt. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Laun seðlabankastjóra hafa setið eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanvirðing í boði Dagsholuhjálmarsbraggaruslsins og co.

 Þá liggur það ljóst fyrir! Borgarstjórn Reykjavíkur gaf leyfi fyrir tjaldi og mótmælum svokallaðra hælisleytenda á Austurvelli. Sennilega hefur innan þess leyfis verið gefið grænt ljós fyrir pappaspjöldum á styttunni af Jóni Sigurðssyni, þvag og saurlátum eftir þörfum, ef Dómkirkjudollan var of þéttsetin og biskupinn og Dómkirkjupresturinn fjarverandi.

 Þykir fólki þetta virkilega í lagi? Hvar voru fjölmiðlar? Þorðu þeir ekki að fylgja þessari smán eftir, eða eru þeir orðnir gegnsýrðir og "passívir"? Enginn þorir að segja neitt!

 Er hægt að ætlast til þess að venjulegt fólk bara snúi sér á hina hliðina og álíti sem svo að þetta hafi verið réttur skítbuxanna, sem fótum tróðu einn virðingarmesta stað þjóðarinnar, en snéru síðan eins og barðir hundar aftur í sérdeilis ágæta aðstöðu sína, greidda af þeim sem þeir snérust gegn og lögðust í drulluna?

 Hver bauð í skítapartíið?

 Jú, aumkunnarverður meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur, sem getur ekki einu sinni tryggt borgarbúum öruggt húsnæði til menntunar ungviðis síns, hvað þá mannsæmandi næringu, samkvæmt lögum. Mygla og vannæring, hirðuleysi og alger sjálfhverfa er að drepa þetta lið, en það sér ekkert athugavert við eigin gjörðir, frekar en áður fyrr. 

 Er ekki kominn tími til að Dagsholuhjálmarsbraggaruslinu sé hent út í hafsauga? (Kosningasvindlið eitt og sér væri nóg í flestum lýðræðisríkjum)

 Þvílíkir og aðrir eins déskotans kjánar hafa aldrei haft svona mikil völd. Leyfum þessu mótmælendaliði að skíta í garðinum hjá "burgermeisternum" næst. Hann gæti jafnvel "flippað" pönnukökum ofan í óhroðann, verandi gestgjafinn.

 Djöfullinn sjálfur að horfa upp á þetta.

 Á meðan þvælast afvegaleiddir samlandar okkar í alls kyns ástandi um götur höfuðstaðarins, sem og um allt land og eiga hvergi höfði sínu að halla! Fá lítinn sem engan stuðning!

 Góðar stundir, með sorgarkveðju að sunnan.


mbl.is Mótmælin farin að bitna á heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullyrðingagleði.

 Þórarinn rekur fyrirtæki í eigin húsnæði, sem sennilega var byggt fyrir fé frá móðurfyrirtækinu. IKEA á Íslandi greiðir þar af leiðandi enga leigu, geri ég ráð fyrir.

 Kokteilsósa í dollu getur vel kostað tíkall, ef efniskostnaður einn og sér er tekinn fyrir. Hver hrærði í kokteilsósuna, hver er leigan, rafmagnskostnaðurinn, launatengd gjöld og allur pakkinn á bak við kokteilsósuskrattann? Þórarinn er orðinn helst til IKEASTUR þega hann bullar svona þvælu, eins annars ágætur og hann er, enda af afbragðsfólki kominn.

 Góðar stundir, með kveðju að aunnan.


mbl.is Okrað á kokteilsósu og rauðlauk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

130 stundum meira myrkur?

 Klukkan hefur sinn gang. Við sem sofnum seint, vöknum seinna en aðrir. Ekkert athugavert við það. Þeir sem sofna fyrr, vakna fyrr en ég. Ekkert athugavert við það. Þjóðfélagið hefur ákveðnu skipulagi á að standa. Skólar hefjast á ákveðnum tíma, fyrirtæki opna á ákveðnum tíma. Svona bara "melló" dæmi um príðisgóðar tímasetningar. Hvers vegna umturna þessu öllu, fyrir ósönnuð vísindi eða dellu, er með öllu óskiljanlegt. Látið klukkuna í friði! Það er nægt myrkur, þó ekki sé bætt í hítina af einhverjum ótímasettum bjálfum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Birt­u­stund­um myndi fækka um 130 á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælisleitendur komnir í verkfall?

 Nú er hún "Snorrabúð stekkur". Svokallaðir "hælisleitendur" sem flestir virðast við þokkalega heilsu og gott ef ekki aðeins yfir kjörvikt eru að setja OKKUR reglurnar, með tilstilli einskisnýtra þjóðfélagsþegna, sem ávallt finna tíma til óhæfuverka og fíflagngs á Austurvelli.

 Á ekki orð, en góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Hyggjast gista á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myglað menntakerfi í boði slugsa.

 Ekki er nóg með það að stjórnmála og embættismannaelítan sé svo upptekin af eigin rassgati, að sorglega margt sem þetta fólk á að hafa yfirumsjón með, sé að sökkva í myglu og aðra óværu í húsnæðismálum, heldur virðist einnig sem menntakerfið sjálft sé að fótum komið.

 Endalausum fjármunum virðist raðað í dellu og vitleysu og gæluverkefni misgáfuleg, meðan húsnæði rotnar yfir höfðum barna okkar og "menntakerfið" skilar af sér nemendum án nokkurs árangurs eða réttbærrar menntunar, samanber brottfall drengja úr forarvilpu endalausra tilraunaverkefna sjálfsánægðrar "vér einir vitum best" hrokagikkjanna.

 Varla getur nokkurt sveitarfélag talist leggjast lægra en Reykjavíkurborg í þessum málum. Niðurlæging borgarstjórnar Reykjavíkur og þeirra burgeisa, sem þar hafa setið skælbrosandi og í algerri vissu um eigið ágæti og óskeikulleik undanfarin ár, er alger. Að sjálfsögðu sér þetta lið ekki eigin afglöp réttu ljósi, nú frekar en fyrr og áfram mun dellan kosta fúlgur fjár í formi afskiptaleysis, hugmyndaleysis, kæruleysis og allt að því óseðjandi ánægju með eigin störf og ágæti, þrátt fyrir minni árángur en engan.

 "Að kunna ekki að skammast sín" hefur náð áður óþekktum hæðum hjá yfirstjórn Reykjavíkurborgar, en áfram heldur bruninn. Allt skal brennt til andskotans, svo fremi náist mynd af skóflustungum, "fyrirhuguðum lausnum á glæruformi" og öðru déskotans rugli.

 Nú skal börnum ekið í önnur sveitarfélög, til að forða þeim frá heilsuspillandi umhverfi höfuðborgarinnar.

 Það er sorglegt að horfa upp á ömurleik stjórnenda höfuðborgarinnar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Fossvogsbörnin í Kópavoginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð fjárfesting?

 Á aðeins sex mánuðum hafa fjárfestar tapað að minnsta kosti helmingi "fjárfestingar" sinnar. Fá ekki einu sinni vextina greidda í fyrstu atrennu. Allt útlit fyrir að stofnandinn og aðalgæinn hafi haft af þeim milljarða. Ulli síðan framan í þá og gefi þeim puttann. Skuldabréfaútboðinu var aldrei ætlað að bjarga öðru en eigandanum. Skúli á ekki bót fyrir boruna á sér. Það er staðreynd. WOW Air er í raun gjaldþrota fyrir löngu síðan og rekið á lánum væntanlegra farþega, með fyrirframgreiddum fargjöldum, þó þau borgi ekki einu sinni fyrir hreinsun á klósettum flugvélanna.

 Enn heldur félagið áfram að bjóða ferðir á minna en ekki neitt, áfram sér Íslenska Ríkið í gegnum fingur sér með lögbundin gjöld og enn er ekki staðið á því að rukka lendingargjöld af hálfu Isavia! Hvurskonar andskotans endaleysa er þetta eiginlega að verða?  Ef Icelandair, British Airways, Lufthanza eða önnur flugfélög höguðu sér svona, hver yrðu viðbrögðin af hálfu hérlendra stjórnvalda og eftirlitsaðila? 

 Getur verið að hérlendir lífeyrissjóðir og bankar hafi "fjárfest" svo mikið í þessu óbermi að allir innan "kerfisins" keppist um að fela slóðina og "treina" þetta eins lengi og hægt er?

 Aumur tuðari bara spyr.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Hyggjast ekki greiða vextina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband