Skattfé í áhætturekstur?

 Hvursu miklu af skattfé almennings hefur nú þegar verið varið (sóað) í WOW, í formi eftirgjafa gjalda, sem ekkert annað flugfélag, nú til dags, hefur fengið?. Það skiptir engu þó settar séu upp lonníettur, röksemdafærsla BB er svo gjörsamlega galin að furðu sætir að þessi maður skuli gína yfir Sjálfstæðisflokknum, sem formaður. Er ekki umræðan um WOW kærkomin, þá lauma skal orkupakka númer þrjú gegnum Alþingi? Ísmeygileg framkoma forystu Sjlfstæðisflokksins í "WOWinu", með fulltyngi Kötu sætu og Þistilfjarðarkúvendingsins að hennar baki, er ekkert minna en ömurlegt upp á að horfa. Gulli jafnlaunavottunartrúður og ráðherfan með nöfnin svo mörgu að maður nennir ekki að heyra þau til enda, dansa eins og fábjánar með í fullveldisafsalsdraumi formannsins, enda stórkostlegir hagsmunir í húfi, fyrir rétta fólkið.

 Hverra hagsmuna er hann að gæta, með samningi sem "engu máli skiptir", en er svo algerlega nauðsynlegt að undirrita?

 Hvað er eiginlega að gerast innan forystu Sjálfstæðisflokksins?. Hvernig gat þetta farið svona framhjá okkur fíflunum, sem naglhreinsuðum timbrið í byggingu Valhallar? Gústi í Tollvörugeymslunni og fleiri góðir hugsjónamenn sem þar grófu grunn og reistu byggingu yfir hugsjónir sínar, myndu nú klóra í kistulokin og engjast yfir aumingjaskap forystu flokksins. Hugsjónageldara lið, hefur trauðla rekið á fjörur Íslands. Að Sjálfstæðisflokkurinn skuli vera orðinn afsjálfstæðisflokkur, er svo sárt upp á að horfa að tárin eiga meira að segja erfitt með að falla á hvarm!

 Forysta án flokks, segja sumir. Aðrir segja að forystan hafi gleymt tilgangi sínum og sjái nú ekkert annað en eigið rassgat, takandi við skipunum frá undirsátum sínum, kerfisrottunum og embættismannaelítunni. Það er ekki að vera Sjálfstæðismaður. Það heitir að hafa eigið rassgat að leiðarljósi, sé manni veitt nógu vel fyrir og leiðbeint af "yes minister" hagsmunaaðilum, sem sjá í hyllingum sínum feita skattfrjálsa tékka og feit eftirlaun, suður í brussel.

 Svei rassgatinu. Undarlegt hve langt fólk er reiðubúið að ganga örna sinna, á kostnað samborgara sinna.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Réttlætir ekki skattfé í áhætturekstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránlegir "frasar".

 Orðskrúð og gömul slagorð kommúnismans vefjast ekki um tungu forkonu Eflingar. "Verkalýðsbarátta snýst um að tryggja vinnuaflinu mannsæmandi afkomu sama hvað kapítalísk fyrirtæki gera". Er forkona Eflingar svo gegnsýrð af sósíalismanum að hún viti ekki einu sinni við hverja hún er að semja, fyrir hönd umbjóðenda sinna? "Sama hvað kapítalísk fyrirtæki gera". Almenn fyrirtæki eru ekki rekin til að tapa á þeim. Þau eru rekin til að skapa hagnað fyrir eigendur sína. Endalaust má deila um hvað þykir "tilhlýðilegur hagnaður" og sýnist þar sitt hverjum. Hvers vegna bauð þessi mannvitsbrekka sig ekki fram til formanns BSRB? Hún er eins fjarri hinum almenna launamanni á almenna markaðnum og hugsast getur! Hún er gersamlega úti í skurði!

 Allir ættu að geta verið sammála um að laun þeirra lægst launuðu eru of lág í dag. Meginþorri launþega hefur það hinsvegar alveg ágætt. Aldrei virðist vera hægt að hefja þessar kjaraviðræður og að lokum ljúka þeim, sem ávallt gerist að lokum, öðruvísi en blessað fólkið í lægstu launaþrepumum sitji eftir sem áður með sárt ennið og áframhaldandi óásættanleg kjör.  

 Allir vilja jú meira, en ekki allir þurfa mikið meira. Hvers vegna er ekki hægt að nálgast umræðuna með þeim hætti að þeir lægst launuðu séu teknir út fyrir svigann og þeim rétt það sem þeim ber, án þess það þurfi að strauja upp allan skalann? Hvað veldur?

 Getur verið að vanhæfir, sjálflægir og sósíalismagegnsýrðir, verkfallselskandi verkalýðsleiðtogar, sem skilja ekki hagfræði 101 vinnumarkaðarins séu verstu óvinir vinnuaflsins? "Kapítalistar í sósíalismagæru"?

 Spyr sá sem fátt veit. Ekki er hægt að spyrja Stalín, né Cheves því báðir eru dauðir. Hringja í Maduro eða Gunnar Smára? "You tell me". Sólveig Anna verður greinilega á tali um ókomna tíð.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Barátta óháð kapítalískum fyrirtækjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. mars 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband