15.4.2009 | 19:02
Hinn fullkomni fáránleiki.
Í dag er 15. apríl. Enn er ekki komið alveg á hreint hvaða flokkar bjóða fram til Alþingiskosninga eftir örfáa daga! Tuðarinn kaus í lok mars, utankjörstaðar, eins og áður hefur verið tuðað um. Vel má vera að ég sé að gera úlfalda úr mýflugu, en fáránleikinn varðandi þessar kosningar er slíkur, að þeim hárum fer nú sífellt fækkandi sem tolla á hausnum á mér. Gott ef þau eru jafnvel ekki farin að toga á móti. Maður á kannski ekkert að vera að reyta hár sitt vegna þessa, en umræðan um Ísland og það sem þar hefur átt sér stað er slík, þar sem ég hef farið, að það er farið að hafa veruleg áhrif á sálartetrið, svo ekki sé meira sagt. Meira að segja hér í Argentínu er hlegið að Íslandi og þeim fávitagangi sem þar á sér stað. Talað um að taka Ísland inn í samtök ríkja í Suður-Ameríku og annað í þeim dúr. Hér borgar sig að segjast bara vera frá Finnlandi eða Færeyjum, nema ef vera skildi að maður kærði sig um að verða skotspónn fimmaurabrandara og fá á sig skot og skæting fyrir að vera Íslendingur. Svei mér ef ég hef ekki lækkað líka um einhverja sentímetra. Ég sem eitt sinn gekk stoltur og sperrtur Íslendingur um götur og torg, skáskýst nú eins og hálfopinn vasahnífur milli húsasunda og er helst ekki á ferðinni, nema eftir að skyggja tekur.
Megi allar góðar vættir blessa land og þjóð í komandi kosningum og gefa sem flestum kjark og þor til að skila auðum atkvæðaseðlum á kjördag. Íslendingar hafa ef til vill ekki áttað sig alveg á því enn, en það er nánast sami pakkinn í framboði og setti með aulagangi og amlóðahætti, þjóðina á hausinn. Svei þeim sem sátu á þingi, hvar svo sem í flokki þau eru. Vei þeim sem kjósa þau aftur! Þeir eiga ekki skilið annað en að þjást.
Kveðja frá Eldlandinu.
![]() |
Flestir framboðslistar gildir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2009 | 22:59
Skuldaraáhlaup á Nýja Kaupþing?
![]() |
Óttast áhlaup á Kaupþing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 00:08
Fáránleg utankjörstaðarkosning!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.4.2009 kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.3.2009 | 00:38
Vindmyllur.
![]() |
Stórfelld kannabisræktun stöðvuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.3.2009 | 02:27
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksaðdáendaklúður!
Eftir einhverja ruddalegustu, efnahagslegu nauðgun sem framin hefur verið á þjóðinni frá stofnun lýðveldisins, fékk hinn almenni flokksmaður tveggja flokka, sem voru óumdeilanlega gerendur í nauðguninni, að segja hug sinn í prófkjörum til niðurröðunar á mannskap fyrir næstu kosningar. Síðastliðin helgi var meira og minna tekin í þetta. Niðurstaða helgarinnar.: Nánast ALLIR sitjandi þingmenn og ráðherrar fyrrverandi ríkisstjórnar, þar með viðurkenndir gerendur, sem óskuðu eftir áframhaldandi sæti á þingi, auðnaðist að láta ósk sína rætast! Megnið af nauðgurunum hafa verið valdir til þings á ný og það af fórnarlömbunum! Er þessi þjóð ekki komin á einhvern hættulegan punkt, eða á hún ef til vill skilið að henni sé bara nauðgað áfram? Held svei mér þá að þjóðin eigi skilið áframhaldandi raðnauðgun, úr því hún gat ekki andskotast til að benda á gerendurna og þurrka þá út af listum, þegar tækifærið gafst. Þetta var aðeins spurning um hvar X ætti að setja, á miðasnipsi, munandi hvernig hinn eða hin hefði staðið sig, eða hvernig manni/konu litist á ný nöfn. Tuðarinn trúir trauðla að þetta sé að gerast, en þetta hefur þó gerst. Íslendingar eiga skilið nákvæmlega það sem þeir kjósa. Er það ekki lýðræðið í sinni björtustu mynd? Djöfull verður gott að komast til Suður-Ameríku í lok mánaðarins, þar sem "spillingin" og öll "vitleysan" þrífst. Þar veit maður/kona þó hvar maður/kona stendur. Er ekki eitthvað mikið að, ef jafnvel Tuðarinn er farinn að íhuga að kjósa Framsókn?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.3.2009 | 06:23
Kosningaklúður.
Hvernig má það vera að keyra eigi prófkjör áfram og kosningar síðan þar á eftir, innan örskamms tíma, án þess að úr því fáist fyrst skorið hvort og þá hverjir innan raða þingmanna, gætu hugsanlega fengið stöðu sakborninga í fjárglæframálum á næstu dögum og vikum.? Hverskonar endemis ruglstefnu er þetta allt saman að taka eiginlega? Tuðarinn fer senn af landi brott og þarf því að kjósa utankjörstaðar. Hvernig í veröldinni á að vera hægt að kjósa utankjörstaðar, ef ekki eru einu sinni allir listar klárir og það sem enn verra er, ekkert haldbært komið fram um fjárhagsfyrirgreiðslu "gömlu bankanna" til þeirra þingmanna sem sumir hverjir "smæla" nú framan í landslýð og bjóða sig fram að nýju án svo mikils sem snefils af innistæðu og jafnvel með óhreint mjöl í pokahorninu. Á að kjósa þessa menn og konur á þing á ný og leyfa þeim þar með að njóta friðhelgi gegn frekari rannsóknum? Bara spyr. Svo talar fólk um að Suður-Ameríka sé spillt og stjórnmálamenn þar óheiðarlegir og handgengnir þeim sem mest eiga af seðlum....... Fruss á þetta allt saman og skítt með flokka og þing. Geng úr mínum flokki á mánudag, en gef hér með einnig skít í samlanda mína fyrir að kjósa sömu amlóðana yfir sig aftur og aftur. Á þetta við um kjósendur ALLRA flokka! Það er ekki nóg að berja potta og pönnur, berja og limlesta lögreglumenn, skemma eignir annara og fleira í þeim dúr fyrir "góðan málstað" , ef þeir hinir sömu og mótmæla eiga engar lausnir við vandanum sem mótmælt er. Það kallast ANARKÍ og er sennilega það sem þjóðin þarf minnst á að halda um þessar mundir.
P.S.
Kaus Rósu í 2. sætið, "by the way".
![]() |
Bjarni sigraði í Suðvesturkjördæmi - Rósa náði 6. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2009 | 13:58
Sjálfstæðismenn og konur! "Munið að endurnýja"
7.3.2009 | 02:05
Kostnaðarmat?

![]() |
Stjórnlagaþing fyrir 1,5 milljarða? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.3.2009 | 00:37
Einn og hálfur hvað?
Það er með hreinum ólíkindum að sama fólk og kostað hefur þjóðarbúið hundruði, ef ekki þúsundir milljarða, með sofandahætti sínum, klíku og aumingjaskap, skuli nú sjá stjörnur yfir löngu tímabærri kúvendingu stjórnkerfisins, sem gæti kostað "allt að" einum hálfum milljarði. Eru siðblindu og afneitun eigin misgjörða engin takmörk sett af hálfu þeirra sem kosnir voru til að stjórna landinu, en brugðust algerlega í því hlutverki? Ætli Geir hafi reiknað út hvað aulagangur hans og samverkamanna hans og kvenna, í flestum flokkum, hafi kostað þjóðarbúið fram að þessu? Að geta fengið það af sér að stíga í púltið og gagnrýna bruðlið við nýja stjórnskipan er ekkert annað en undirstrikun þess að engu tauti verði komið við þá sem sátu á þingi meða Ísland brann innanfrá með þeirra tilstuðlan og aumingjaskap. Það besta sem gæti gerst í komandi kosningum væri það að ENGINN þeirra sem setið hafa á Alþingi undanfarið næði kjöri. Vonandi að í prófkjörum flokkanna næstu daga kjósi þeir sem þátt taka EKKI þá sem setið hafa við Austurvöll undanfarin ár. Farið hefur fé betra. Reyndar stórfé, ef því er að skipta.
![]() |
Telur stjórnlagaþing kosta meira en milljarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.2.2009 | 01:05
Fleiri burt!
Það er skynsamleg ákvörðun Árna að koma sér af vettvangi stjórnmálanna. Sennilega hefur yfirreið hans um kjördæmi "sitt" leitt honum í ljós að þar átti hann ekki nokkurn minnsta möguleika á að ná kjöri á ný. Tæpast í prófkjöri og enn síður í kosningum til Alþingis. Sumt geta jafnvel hörðustu sjálfstæðismenn engan veginn fyrirgefið, þó um samflokksmenn sé að ræða. Tuðarinn er eitilharður fylgjandi sjálfstæðisstefnunnar. Það var jú ekki stefnan sem brást. Það var fólkið sem fór með völdin í nafni stefnunnar. Það er von Tuðarans að fleiri þingmenn og fyrrverandi ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fari að dæmi Árna og dragi sig í hlé. Framundan er eitthvert mesta uppgjör sögunnar hér á landi og þá gagnast lítið að tefla fram þeim mannskap sem svaf á verðinum, meðan undirstöður efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar sviðnaði og brann fyrir allra augum, nema þeirra. Það er ekki nokkurt mál að segjast axla ábyrgð. Það er hins vegar ekki sama hvernig sú ábyrgð er sýnd. Orð vega lítið ef sama fólkið og brást, heldur að það geti síðan haldið áfram að hjakka í sama farinu áfram og allt sé bara "gúddi gúddí". Sú tíð er liðin og best að menn og konur fari að átta sig á því. Hvað aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn áhrærir, getur Tuðarinn ekki séð að um mikla "öxlun ábyrgðar" sé að ræða. Ekki það að ég sé enn sáttur við minn flokk. Langur vegur frá. Í raun brást þingheimur allur og ekki úr vegi að ALLIR flokkar taki nú ærlega til í sínum ranni og andskotist til að varpa eiginhagsmunapoti og fortíðarkarpi fyrir róða. Framtíðin er það sem allt snýst um og mér er slétt sama hvaðan lausnir koma á vandanum sem við blasir, ef þær aðeins koma okkur á beinu brautina á ný. Sú auma tík, pólitík eins og hún hefur byrst okkur undanfarin ár og áratugi, er liðin undir lok og framundan eru viðsjárverðir tímar þar sem þjóðin hefur ekki efni á einu einasta feilspori af hendi þeirra sem stjórna eiga.
![]() |
Nú fer ég að líta í kringum mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)