Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Endanleg niðurstaða á næstu dögum"

Þetta fer nú að verða ansi þreyttur frasi úr munni Þistilfjarðarkúvendingsins, sem nú gegnir embætti skattpíningarmeistara ríkisins í nafni "Ríkisstjórnar fólksins", nýja Íslands og "skjalborgarvarða" heimilanna. "Endanlegrar niðurstöðu á næstu dögum", hefur nefnilega verið að vænta í ansi mörgum málum, frá því þessi óbermisstjórn tók við völdum, eftir að fyrri vitleysisstjórn hraktist frá völdum. Endanleg niðurstaða hefur reyndar fengist í afar fáum málum fram að þessu, svo hugtakið "Á næstu dögum" virðist vera mælikvarði á einhverja tímaeiningu sem enginn skilur nema ráðherran. Í samfloti með helmingi fyrri vitleysisstjórnar, er svosem ekki við því að búast að niðurstaða fáist í nokkurn skapaðan hlut, en það virðist ekki plaga kúvendinginn, svo lengi sem hann situr í stóli ráðherra. Embættið ofar öllu, skítt með allt annað. Hugsjónir ekki meira virði en prump út í loftið, svo lengi sem hægt er að halda skrípaleiknum áfram og sitja sem fastast, enda miklir hagsmunir í húfi í formi eftirlauna og annara bitlinga sem ráðherrum hlotnast, sama hversu vel eða illa þeir standa sig. Þar sem sauðburður hefst væntanlega´"Á næstu dögum" samkvæmt tímatali ráðherrans, held ég að hann ætti að fara að gera sig kláran í það og slá þessa stjórn út af borðinu. Það er eini leikur hans í stöðunni, ef hann ætlar að halda áfram í pólitík. Það er hægt að svívirða þjóðina með öðrum hætti en bara stela af henni peningum, en það virðist núverandi stjórn lítið kippa sér upp við. Nú skal kné látið fylgja kviði, skríllinn skattpíndur og sjálfstæðinu fórnað fyrir EB aðild. Þetta er þokkalegt samansafn sem við höfum í vinnu, landsmenn góðir!  ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!
mbl.is Steingrímur: Ágæt samstaða um skattamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

250.000 kjotbollur.

Thad er nu aldeilis gaman ad kvikyndid skuli vera svona mikid a ferdinni. Thad vaeri sennilega efni i enn meiri frett ef hann taeki nu upp a thvi ad snarstoppa og hreyfast ekki sponn fra rassi, blessadur. Aetli se ekki haegt ad fa svona bunad til ad fylgjast med ferdum storgrosseranna sem settu allt a hausinn? Undarlegt hve litid er fjallad um tha alla saman thessa dagana. Annars varla nema von, their eiga flestalla fjolmidlana enntha og geta thvi dreift athyglinni fra sjalfum ser med omerkilegu prumpi um hvalkjot a ferd um hofin bla og annad sem skiptir akkurat ekki nokkru mali. Vona annars ad blessadur hvalurinn svamli afram spraekur um sundin bla, ahyggjulaus eins og utrasarvikingur eftir bankahrun. Thad ma ef til vill kroppa nokkrar kronur af turistabjalfum i skodunarferdum a medan. Ef ekki, ma alltaf gera ur svona skrokk um thad bil 250.000 kjotbollur. Thad kaemi ser an efa vel einhversstadar i theirri oaran sem nu gengur yfir landslyd. 

Kvedja fra Sudurskautinu, svona "sirkabout". 


mbl.is Hnúfubakurinn heldur áfram för sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að svelgjast á skyndibitanum.

Davíð opnaði Mc Donalds með pompi og prakt hér um árið. Síðan þá hefur hann verið margt í flestu, sem síðan varð til þess að loka sjoppunni aftur. Getur verið að hann hafi tekið of stórt "uppí sig" við opnunina? Maður bara spyr. Enn er ekki búið að loka Mc Donalds í Tíbet, svo staðan á Íslandi hlýtur að vera fjandi slæm. Skyndibitar vara aldrei lengi, enda hétu þeir þá ekki skyndibitar, en það er hins vegar allt annað mál. Hér í Argentínu er hins vegar nóg af Mc Donalds og öðru óæti, svo varla getur landinn lengur talað um að ástandið á Íslandi sé svipað eða álíka slæmt og í Suður Ameríku. Hér suður frá er ástandið miklu betra en á Íslandi, ef velmegun er mæld í skyndibita, það er að segja. Íslendingar geta hins vegar vel lifað án Mc Donalds. 
mbl.is Frétt af hvarfi McDonalds frá landinu vekur athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðuharðindi hin nýju.

Þar hafið þið það landsmenn góðir. AGS stokkið fram á sjónarsviðið í sinni tærustu mynd.: Til fjandans með almenning á Íslandi. Hann er ekkert of góður að éta skít og í besta falli það sem úti frýs næstu árin eða áratugina, svo lengi sem tekst að kroppa upp í skuldina. Kúvendingurinn úr Þistilfirðinum og Silfurskottan hljóta að sofa vært þessa dagana. Hvernig er það annars, er rauð málning uppseld í bænum eða hvað, eða tollir hún bara á sumum húsum?

BURT MEÐ AGS, BURT MEÐ ÞESSA RÍKISSTJÓRN!

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX og ekkert kjaftæði um hver gerði Gerði grikk í sumar. Nú þarf að snúast til varnar gegn þessari vá sem AGS er. AGS er ekkert minna en fjárhagslegur terrorismi fyrir þessa þjóð. Sjóðurinn er að taka öll völd hér á landi og það er engu líkara en núverandi stjórn ætli að kyngja þeim köggli og dansa eins og strengjabrúður eftir skipunum frá AGS. Andskotinn bara, þetta má barasta ekki gerast!

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX, STRAX, STRAX!

Ef þingheimur allur kemur sér ekki sameiginlega saman um næstu skref, er hver einasta manneskja sem þar starfar ómerk orðin og heigull stimplaður ævilangt, hvar svo sem í flokki þetta fólk er.


mbl.is Vill varkárni í vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjargvættur Íslands!

Mikið er þjóðin "rík" að eiga ráðherra á borð við þann sem nú gegnir embætti félags og tryggingamálaráðherra. Annað eins mannvit hefur tæpast verið á borð borið fyrir okkur sauðsvartan almúgan frá stofnun lýðveldisins, sem nú rambar reyndar á barmi gjaldþrots. Það er dásamlegt að geta sofið rólegur, vitandi það að heljarmenni og "ofurvitsmunaverur" á borð við fyrrnefndan ráðherra vaka yfir landslýð og verja hann með kjafti og klóm, "vitsmunum", ótrúlegri kænsku, ráðsnilld og einhverjum "djúphugsuðustu" efnahagsaðgerðum seinni tíma. Hvaða hest sem við veðjum á, er nokkuð ljóst að ráðherra þessi hefur aldrei svo mikið sem stígið á bak neinum þeirra. Veit hvorki hvað snýr fram eða aftur, eða hvorum endanum étið er með eða hvorum skitið. Hvernig er það annars, eru engin inntökuskilyrði í pólitík? Greindarpróf, könnun á reiknikunnáttu, eða eitthvað sambærilegt? Það þarf stúdentspróf og hreint sakavottorð ef einhver vill gerast flugliði, svo lítið dæmi sé tekið. Er nema von að hér sé allt í kaldakoli?
mbl.is Veðja á réttan hest?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru í skilanefndinni?

Hvernig á annað að vera en að hægt gangi að upplýsa um sukkið þegar sama fólki,sem að hluta til tók þátt í því, er falið að finna féð sem horfið er, eða reyna að gera sem mest úr því sem eftir stendur? Hvernig má þetta vera? Hvurn fjárann eru t.a.m. menn eins og Árni Tómasson að gera í skilanefnd banka? Er nema von að heilt ár sé liðið og lítið orðið ljósara um ástandið, eða hvernig hinir og þessir höguðu sér, þegar hinir sömu og rannsaka og eiga að sjá um "skil" bankanna, eru þeir sömu og áttu stóran þátt í fallinu? Er nema von að erlendir bankar gefi skít í þennan farsa sem hér hefur átt sér stað undanfarið ár?
mbl.is Skilanefnd rannsakar mörg mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er verðmætið?

Það er engu líklegra en að vel "sjóaður" stjórnmálamaður hafi skrifað þessa frétt. Það má endalaust buna út upplýsingum um prósentur og aukið magn. Þær tölur skipta hins vegar ekki nokkru einasta máli, nema með fylgi hvort meira eða minna fékkst fyrir aflann. Grunar að krónurnar séu fleiri, en að um "jafnstöðu" eða jafnvel talsverða lækkun sé að ræða ef dæmið er borið saman við erlendan gjaldeyri. Væri til dæmis athyglisvert að heyra hvort verðmætið væri nægt, í dollurum talið, til að kaupa íbúðina hans Jóns Ásgeirs á Manhattan og ef svo væri meira en nóg, hve oft.
mbl.is Afli og verðmæti aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurlæging í útlöndum.

Tuðarinn er nýkominn aftur til landsins eftir hátt í sjötíu daga fjarveru á hjara veraldar. Ferðalagið heim var bæði langt og strangt. Eftir tæplega fimmtán tíma flug frá Buenos Aires til London, var kvikyndið tekið í "Rutine Check" af yfirvöldum á ömurlegasta flugvelli veraldar, Heathrow. Niðurlægingin og skömmin sem ég mátti þola var slík að það var varla orðinn einn einasti fersentímeter á kroppnum, sem ekki bogaði af sviti. Var "pikkaður" úr röðinni eftir vegabréfaeftirlitið og látinn setja töskurnar á langt spegilgljáandi ryðfrítt stálborð og látinn opna þar handtöskuna, auk þess sem embættismaður hennar hátignar skar með hníf plastfilmuna utan af stærri töskunni, svo hægt væri að opna hana. Töskuna nota ég sennilega ekki aftur, þar sem hnífsegg embættismannsins risti hana svo illa. Ekki var farið afsíðis með mig, heldur fór þetta allt saman fram fyrir framan farþega sem gengu hjá í hópum og hafa sennilega álitið mig stórhættulegan terrorista sem verið væri að taka á teppið. Hver einasta spjör rifin upp úr töskunum, bæði skítugar og hreinar, auk þess sem breitt var úr skjölum og pappírum eftir endilöngu borðinu. Þar lágu áður en yfir lauk, trúnaðarskjöl og skýrslur innan um skítugar nærbuxur og illa lyktandi sokka. Embættismaðurinn lét sem hann hefði handsamað Osama Bin Laden og bókstaflega tætti í sig farangurinn, auk þess sem hann kallaði til fíkniefnahundaliðið og lét fartölvuna á gólfið með tómri handtöskunni svo hundurinn gæti þefað af herlegheitunum. Meðan á þessu gekk, gengu farþega framhjá okkur sem "eftirlitsmaðurinn" rak áfram með hrópum og köllum eins og algera vanvita. Hvað gerir maður annars þegar framan við mann liggur fartölva og ferðataska, annað en að hægja á sér og kanna málið? Skoða illmennið sem verið er að "bösta" og renna augunum yfir farangur hans sem ligggur eins og nýlistarverk eftir endilöngu spegilfægðu stálborðinu? Eftir því sem betur varð ljóst að saklaus sál ofan af Íslandi, hafði ekkert vafasamt meðferðis, var eins og embættismaðurinn gerðist enn staðráðnari í að auka á niðurlæginguna. Háværar spurningar um allt og ekkert og alls kyns bendingar og líkamstjáning þessa valdsins manns urðu á köflum slíkar, að Tuðarinn beið bara eftir því að verða járnaður af sérsveitarmönnum og snúinn í gólfið. Það gerðist þó ekki og hraðar en maður hnerrar, var sagt "you can go" og eftir stóð ég eins og ég veit ekki hvað við borðið, með allan farangurinn og mátti gjöra svo vel að pakka honum einn og í smærri hópum. Leið eins og ég hefði orðið fyrir eldingu. Sópaði saman spjörunum og ætlaði að moka þeim í töskurnar, en þá voru þær allt í einu ekki nógu stórar, altso töskurnar. Mundi þá að þegar ég pakkaði, var hver einasti ferrúmsentímeter þaulskipulagður og öllu raðað í röð og reglu. Fékk skyndilega nóg, henti því sem ekki var talið bráðnauðsynlegt í ruslatunnu, lokaði töskunum, raðaði þeim saman og hélt áfram í sam"floti" með þeim sem runnu framhjá. Gekk gegnum hurð og fram í stóran sal, leitaði að auðu sæti, settist og reyndi að byrgja inni öskrið. Það tókst og eftir klukkustundar"afslöppun" hélt ég áfram göngu minni um þennan ömurelgasta fluvöll veraldar. Þessi andskoti hlýtur að hafa átt reikning hjá ICESAVE hugsaði ég og komst að þeirri niðurstöðu að niðurlæging mín væri sennilega tveimur "Úlfum" að kenna, ásamt fólki af svipuðu kaliberi. Andskotinn bara að þurfa að vera íslendingur þessa dagana og ferðast um heiminn. 


Súpuþjófsdómsviðmið?

Það er ólíklegt annað en að einhver eða einhverjir hljóti dóma í uppgjöri efnahagshrunsins. Hver eða hverjir það verða mun tíminn leiða í ljós. Tuðarinn vill leggja til við dómstóla landsins að við ákvörðun refsinga sem þessu munu fylgja, verði tekið mið af dómi yfir manni sem stal súpu og hefur nýlega hafið átta mánaða afplánun í fangelsi fyrir vikið. Súpan getur varla hafa kostað meira en 500 - 1000 krónur og því ljóst að dómurinn miðar við um það bil einn mánuð fyrir hverjar hundrað krónur.
mbl.is Fyrstur til að fá stöðu grunaðs manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!

Óskundinn og ruglið sem þessi ríkisstjórn hefur áorkað, á ekki lengri tíma en raun ber vitni, er með hreinum ólíkindum. Yfirlýsing um byggingu nýs Landspítala sem hluta af endurreisn atvinnu og efnahagslífssins á Íslandi, toppar síðan déskotans delluna alla saman og sýnir svo ekki verður um villst að hér stjórnar algerlega óhæft fólk ríkisbúskapnum og endurreisninni, sem nú er nauðsynleg. Varla við öðru að búast af fólki sem í fárviðri efnahagskreppunnar sáu þau verkefni mikilvægust, fyrir utan náttúrulega að halda völdum, að almenningur greiddi fyrir fjárglæfra örfárra þjóðfélagsnýðinga og síðan að moka okkur með góðu eða illu í Brusselflórinn og afsala okkur sjálfráðaréttinum í okkar eigin málum.  Þjóðin er orðin svo blönk að það er varla gert ráð fyrir því í fjárlögum lengur að fólk veikist, slasist, fatlist eldist og já bara jafnvel fæðist lengur, hvað þá að hægt sé að halda uppi lágmarks þjónustu í heilbrigðisgeiranum. Hvurn fjandann á þá eiginlega að gera við nýtt sjúkrahús? Veruleikafyrring Jóku og kúvendingsins úr Þistilfirðinum virðist alger orðin og hafi einhverntíma verið gjá milli þings og þjóðar, þá er það nú um stundir. ÞJÓÐSTJÓRN STRAX! ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!    


mbl.is Nýr Landspítali mun rísa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband