Móðuharðindi hin nýju.

Þar hafið þið það landsmenn góðir. AGS stokkið fram á sjónarsviðið í sinni tærustu mynd.: Til fjandans með almenning á Íslandi. Hann er ekkert of góður að éta skít og í besta falli það sem úti frýs næstu árin eða áratugina, svo lengi sem tekst að kroppa upp í skuldina. Kúvendingurinn úr Þistilfirðinum og Silfurskottan hljóta að sofa vært þessa dagana. Hvernig er það annars, er rauð málning uppseld í bænum eða hvað, eða tollir hún bara á sumum húsum?

BURT MEÐ AGS, BURT MEÐ ÞESSA RÍKISSTJÓRN!

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX og ekkert kjaftæði um hver gerði Gerði grikk í sumar. Nú þarf að snúast til varnar gegn þessari vá sem AGS er. AGS er ekkert minna en fjárhagslegur terrorismi fyrir þessa þjóð. Sjóðurinn er að taka öll völd hér á landi og það er engu líkara en núverandi stjórn ætli að kyngja þeim köggli og dansa eins og strengjabrúður eftir skipunum frá AGS. Andskotinn bara, þetta má barasta ekki gerast!

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX, STRAX, STRAX!

Ef þingheimur allur kemur sér ekki sameiginlega saman um næstu skref, er hver einasta manneskja sem þar starfar ómerk orðin og heigull stimplaður ævilangt, hvar svo sem í flokki þetta fólk er.


mbl.is Vill varkárni í vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband