Farinn til Argentínu.

Síðast var það Kína, nú er það Argentína. Mörg flug og sum ansi löng, en hefst vonandi allt saman. Fer að vora í Argentínu fljótlega, en enn er snjór í fjöllum syðst í landinu, þangað sem förinni er heitið til. Kaupmannahöfn, Madrid, Buenos Aires í fyrstu atrennu en síðan flogið suður til syðstu borgar Argentínu, þaðan sem farið verður út á sjó til veiða. Veiðisvæðið sunnan við Falklandseyjar og eins langt suður og komist verður. Heyrumst með haustinu og smjúts á línuna.Heart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Góða ferð Halldór. 

Argentína hljómar vel.... mig langar þangað einhvern daginn. 

Anna Einarsdóttir, 9.8.2008 kl. 23:46

2 Smámynd: Brattur

... Góða verð, karlinn... og hafðu það sem allra best... hvað veiðir þú þarna annars?

Brattur, 9.8.2008 kl. 23:50

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Góða ferð í nýtt vor.

Marta Gunnarsdóttir, 10.8.2008 kl. 00:27

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Að hugsa sér að hægt sé að upplifa tvenn vor á einu sumri! Takk fyrir góðar óskir og gleðilegt eitt haust. Þegar upp verður staðið hefur Tuðarinn upplifað tvenn vor, eitt sumar og eitt haust í haust...

Halldór Egill Guðnason, 10.8.2008 kl. 00:34

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Góða ferð Halldór!

Ég kem til með að sakna tuðsins! Hafðu það gott og ég bið að heilsa öllum fallegum argentínskum mönnum

Hrönn Sigurðardóttir, 10.8.2008 kl. 13:56

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Úps og vaá, ferðu svo að dansa tangó?

Vinur minn var ekki alls fyrir löngu þarna á ferð í veiði, lét vel af landi og þjóð.

Edda Agnarsdóttir, 10.8.2008 kl. 16:22

7 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Er kallinn eitthvað eyrðalaus? Góða ferð.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 10.8.2008 kl. 21:43

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Halldór ef þú ert á ferðinni um bloggið, viltu þá kíkja á síðuna mína?

Edda Agnarsdóttir, 14.8.2008 kl. 20:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband