Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vindmyllur.

Mikið djöfull eru þeir vitlausir sem halda að þeir geti komist upp með að þrefalda rafmagnsreikninginn, án þess að nokkur taki eftir því. Hvar er hugvitið? Sennilega hvergi hjá þeim sem gómaðir hafa verið. Héldu þessi fífl að lamparnir myndu loga frítt og enginn tæki eftir því? Sennilega spurning um orsök og afleiðingu og ekki nema von að gegnreyktir grashausar geti áttað sig á því. Undarlegt að engum þessara mannvitsbrekkna skuli hugkvæmast að nota vindmyllur í "operasjónina".
mbl.is Stórfelld kannabisræktun stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingar og Sjálfstæðisflokksaðdáendaklúður!

Eftir einhverja ruddalegustu, efnahagslegu nauðgun sem framin hefur verið á þjóðinni frá stofnun lýðveldisins, fékk hinn almenni flokksmaður tveggja flokka, sem voru óumdeilanlega gerendur í nauðguninni, að segja hug sinn í prófkjörum til niðurröðunar á mannskap fyrir næstu kosningar. Síðastliðin helgi var meira og minna tekin í þetta. Niðurstaða helgarinnar.: Nánast ALLIR sitjandi þingmenn og ráðherrar fyrrverandi ríkisstjórnar, þar með viðurkenndir gerendur, sem óskuðu eftir áframhaldandi sæti á þingi, auðnaðist að láta ósk sína rætast! Megnið af nauðgurunum hafa verið valdir til þings á ný og það af fórnarlömbunum! Er þessi þjóð ekki komin á einhvern hættulegan punkt, eða á hún ef til vill skilið að henni sé bara nauðgað áfram? Held svei mér þá að þjóðin eigi skilið áframhaldandi raðnauðgun, úr því hún gat ekki andskotast til að benda á gerendurna og þurrka þá út af listum, þegar tækifærið gafst. Þetta var aðeins spurning um hvar X ætti að setja, á miðasnipsi, munandi hvernig hinn eða hin hefði staðið sig, eða hvernig manni/konu litist á ný nöfn. Tuðarinn trúir trauðla að þetta sé að gerast, en þetta hefur þó gerst. Íslendingar eiga skilið nákvæmlega það sem þeir kjósa. Er það ekki lýðræðið í sinni björtustu mynd? Djöfull verður gott að komast til Suður-Ameríku í lok mánaðarins, þar sem "spillingin" og öll "vitleysan" þrífst.  Þar veit maður/kona þó hvar maður/kona stendur. Er ekki eitthvað mikið að, ef jafnvel Tuðarinn er farinn að íhuga að kjósa Framsókn?    


Kosningaklúður.

Hvernig má það vera að keyra eigi prófkjör áfram og kosningar síðan þar á eftir, innan örskamms tíma, án þess að úr því fáist fyrst skorið hvort og þá hverjir innan raða þingmanna, gætu hugsanlega fengið stöðu sakborninga í fjárglæframálum á næstu dögum og vikum.? Hverskonar endemis ruglstefnu er þetta allt saman að taka eiginlega? Tuðarinn fer senn af landi brott og þarf því að kjósa utankjörstaðar. Hvernig í veröldinni á að vera hægt að kjósa utankjörstaðar, ef ekki eru einu sinni allir listar klárir og það sem enn verra er, ekkert haldbært komið fram um fjárhagsfyrirgreiðslu "gömlu bankanna" til þeirra þingmanna sem sumir hverjir "smæla" nú framan í landslýð og bjóða sig fram að nýju án svo mikils sem snefils af innistæðu og jafnvel með óhreint mjöl í pokahorninu. Á að kjósa þessa menn og konur á þing á ný og leyfa þeim þar með að njóta friðhelgi gegn frekari rannsóknum? Bara spyr. Svo talar fólk um að Suður-Ameríka sé spillt og stjórnmálamenn þar óheiðarlegir og handgengnir þeim sem mest eiga af seðlum....... Fruss á þetta allt saman og skítt með flokka og þing. Geng úr mínum flokki á mánudag, en gef hér með einnig skít í samlanda mína fyrir að kjósa sömu amlóðana yfir sig aftur og aftur. Á þetta við um kjósendur ALLRA flokka! Það er ekki nóg að berja potta og pönnur, berja og limlesta lögreglumenn, skemma eignir annara og fleira í þeim dúr fyrir "góðan málstað" , ef þeir hinir sömu og mótmæla eiga engar lausnir við vandanum sem mótmælt er. Það kallast ANARKÍ og er sennilega það sem þjóðin þarf minnst á að halda um þessar mundir. 

P.S.

 

Kaus Rósu í 2. sætið, "by the way".


mbl.is Bjarni sigraði í Suðvesturkjördæmi - Rósa náði 6. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn og konur! "Munið að endurnýja"

Tuðarinn vill hvetja alla þá sem hyggjast taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina að muna eftir að "endurnýja". Tími sumra er liðinn og annara er kominn. Fleira var það nú ekki að þessu sinni. Góðar stundir.

Kostnaðarmat?

Herra Birgir minn.: Fylgdi eitthvert "fyrirfram afgreitt kostnaðarmat" með einkavinavæðingunni, aulagangnum og ruglinu sem þú, samflokksmenn þínir og meðreiðarsveinar undangenginna ríkisstjórna helltu yfir okkur, SAMBORGARA ÞÍNA? Hættu í pólitík. Sú tík á engan veginn við þig lengur. Hentu bindinu og settu á þig slaufu á ný. Láttu fara mjög lítið fyrir þér um stundarsakir og ef þú ert heppinn gætir þú komist á þing aftur um sextugt á ný. (Þetta er bara brotabrot úr stjörnuspá dagsins, fyrir þig kúturinn minn)Wink
mbl.is Stjórnlagaþing fyrir 1,5 milljarða?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn og hálfur hvað?

Það er með hreinum ólíkindum að sama fólk og kostað hefur þjóðarbúið hundruði, ef ekki þúsundir milljarða, með sofandahætti sínum, klíku og aumingjaskap, skuli nú sjá stjörnur yfir löngu tímabærri kúvendingu stjórnkerfisins, sem gæti kostað "allt að" einum hálfum milljarði. Eru siðblindu og afneitun eigin misgjörða engin takmörk sett af hálfu þeirra sem kosnir voru til að stjórna landinu, en brugðust algerlega í því hlutverki? Ætli Geir hafi reiknað út hvað aulagangur hans og samverkamanna hans og kvenna, í flestum flokkum, hafi kostað þjóðarbúið fram að þessu? Að geta fengið það af sér að stíga í púltið og gagnrýna bruðlið við nýja stjórnskipan er ekkert annað en undirstrikun þess að engu tauti verði komið við þá sem sátu á þingi meða Ísland brann innanfrá með þeirra tilstuðlan og aumingjaskap. Það besta sem gæti gerst í komandi kosningum væri það að ENGINN þeirra sem setið hafa á Alþingi undanfarið næði kjöri. Vonandi að í prófkjörum flokkanna næstu daga kjósi þeir sem þátt taka EKKI þá sem setið hafa við Austurvöll undanfarin ár. Farið hefur fé betra. Reyndar stórfé, ef því er að skipta. 


mbl.is Telur stjórnlagaþing kosta meira en milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri burt!

Það er skynsamleg ákvörðun Árna að koma sér af vettvangi stjórnmálanna. Sennilega hefur yfirreið hans um kjördæmi "sitt" leitt honum í ljós að þar átti hann ekki nokkurn minnsta möguleika á að ná kjöri á ný. Tæpast í prófkjöri og enn síður í kosningum til Alþingis. Sumt geta jafnvel hörðustu sjálfstæðismenn engan veginn fyrirgefið, þó um samflokksmenn sé að ræða. Tuðarinn er eitilharður fylgjandi sjálfstæðisstefnunnar. Það var jú ekki stefnan sem brást. Það var fólkið sem fór með völdin í nafni stefnunnar. Það er von Tuðarans að fleiri þingmenn og fyrrverandi ráðherrar Sjálfstæðisflokksins fari að dæmi Árna og dragi sig í hlé. Framundan er eitthvert mesta uppgjör sögunnar hér á landi og þá gagnast lítið að tefla fram þeim mannskap sem svaf á verðinum, meðan undirstöður efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar sviðnaði og brann fyrir allra augum, nema þeirra. Það er ekki nokkurt mál að segjast axla ábyrgð. Það er hins vegar ekki sama hvernig sú ábyrgð er sýnd. Orð vega lítið ef sama fólkið og brást, heldur að það geti síðan haldið áfram að hjakka í sama farinu áfram og allt sé bara "gúddi gúddí". Sú tíð er liðin og best að menn og konur fari að átta sig á því. Hvað aðra flokka en Sjálfstæðisflokkinn áhrærir, getur Tuðarinn ekki séð að um mikla "öxlun ábyrgðar" sé að ræða. Ekki það að ég sé enn sáttur við minn flokk. Langur vegur frá. Í raun brást þingheimur allur og ekki úr vegi að ALLIR flokkar taki nú ærlega til í sínum ranni og andskotist til að varpa eiginhagsmunapoti og fortíðarkarpi fyrir róða. Framtíðin er það sem allt snýst um og mér er slétt sama hvaðan lausnir koma á vandanum sem við blasir, ef þær aðeins koma okkur á beinu brautina á ný. Sú auma tík, pólitík eins og hún hefur byrst okkur undanfarin ár og áratugi, er liðin undir lok og framundan eru viðsjárverðir tímar þar sem þjóðin hefur ekki efni á einu einasta feilspori af hendi þeirra sem stjórna eiga. 

  


mbl.is „Nú fer ég að líta í kringum mig“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loðna-Gulldepla?

Á sama tíma og menn þjarka um hvort hefja eigi loðnuveiðar eður ei,  dásama þeir samtímis "hálfs milljarðs aflaverðmæti af Gulldeplu" þó sölt sé í mjölinu. Á sama, "sama tíma", er íslenskur "auðmaður" sem hingað til hefur fengið allt lánað, en ekkert borgað til baka,  að setja íbúðina sína á sölu í New York og verðmiðinn .....þrír milljarðar! Hvaða andskotans gagn er af þessum sjávarútvegi eiginlega...? Hvað eru menn að gera hér út heilan flota af skipum og helling af mannskap, ef þetta er "trikkið"? Er nema von að umheimurinn hlægi sig máttlausan að okkur, andskotans vitleysingjunum, auðtrúa og opinmynntum aumingjunum fyrir öllu sem þriggja milljarða íbúðareigandinn matreiddi ofan í okkur árum saman í gegnum fjölmiðla sína? Keypti meira að segja einn forseta í leiðinni og lét hann dansa eins og fjarstýrðan hurðaopnara, framleiddan í Kína. Það má vel vera að Tuðarinn sé vitlaus, sem hann eflaust er, en Tuðarinn er orðinn svo þverpólitískur í öllu bullinu að hann mun ENGAN núverandi flokka kjósa í næstu kosningum, svo mikið er víst. Er ekki einhver "game" í nýjan flokk?  Bara spyr.
mbl.is Vilja hefja loðnuveiðar strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PETA- (örfærsla)

Úr hverju ætli skórnir séu sem meðlimir PETA samtakanna ganga í ?
mbl.is Skelfilega ósmekkleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þriðjungur krafna frá EIGIN félögum!?

Vissulega er það áhyggjuefni ef sparisjóðir fara illa út úr þroti Baugs. Það er hins vegar ekki mikillar vorkunnar að vænta frá landsmönnum þó félög eins og Fons og fleiri "kompaní"(langaði að setja "skíta" fyrir framan, en hætti við á síðustu stundu), fái ekki krónu. Ef aðstandendur þessara félaga gera tilkall til krafna í eftirstöðvarnar af Baugi, ef einhverjar verða, er það ekkert annað en undirstrikun þess, að þeir sem þessum batteríum stjórnuðu, séu ekki einasta villtir í eiginhagsmunagræðgisrugli, heldur einnig svo óforskammaðir að halda að þeir geti líka eignast líkið af eigin misgjörðum. Hvers vegna ætli sama liðið sé svona úberspennt að eignast aftur fyrri eignir? Hagnaðarvon? Tæpast. Með kaupum á restunum fylgja fylgiskjöl og pappírar sem illa þola dagsins ljós. Ef stjórnvöld og þeir sem nú fara með uppgjörið á þjóð vorri hleypa svo mikið sem EINUM þessara andskota aftur inn í viðskiptalífið, er voðinn vís og klárt að landsmenn hafa enn og aftur verið teknir ósmurðir í óæðri endann.  Fyrir Tuðarans parta er einfaldlega ekki til smurning í frekari trukkprófanir.Angry   
mbl.is Þrot Baugs yrði þungt högg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband