Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hæfnisnefnd sem ætlað er að velja rétt.

 Ráðherra skipar hæfnisnefnd, til að meta hæfi umsækjenda um ráðuneytisstjórastöðu í sínu ráðuneyti...........

 Halló, halló, halló! Er hér ekki eitthvað eins og það á alls ekki að vera? 

 Lausn forsætisráðherra er sú, að ef allir fari í fýlu, geti allir lögsótt alla. 

 Umsækjandinn hæfnisnefndina, hæfnisnefndin umsækjandann, ráðherrann umsækjandann og svo koll af kolli, þar til ráðherrann hverfur úr embætti og málið er dautt....eða hvað? Ó nei. Að þessum farsa liðnum getur umsækjandinn farið í mál við ríkið, ríkið í mál við ráðherrann og ráðherran í mál við hæfnisnefndina, sem ráðherra skipaði sjálf. Nefndin fer síðan í mál við jafnréttisnefnd, sem síðan fer í mál við umsækjandann fyrir að hafa komið þessari andskotans dellu af stað. Sagan um litlu gulu hænuna lifir góðu lífi og ekkert útlit fyrir annað en hún haldist klassísk, sem aldrei fyrr.

 Púfffff......pólitík er slæm tík.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Stefna Lilju þingfest 1. september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smé af sér brók og prumpaði á gamlingja.

 Duru Duru Duru, listrænn stjórnandi Ding Dong leikhússins í Hvergistan sagði að maður hefði nýlega smeygt af sér brók og prumpað á aldraða móður sína í lest.

 Dur Duru Duru, sem er bleikur, birti færslu sína á Twitter um málið. Þar segir hann að maðurinn sem er litförull, hafi hlaupið úr lestinni eftir konsertinn og kallað

 “Þetta er það sem þið öll hin gerið”

 Duru Duru Duru bætti því við að hann væri voða, voða feginn, því kórónuveikipróf móður hans kom neikvætt til baka.

 Bara spurning hvernig það fór af stað.

 Í alvöru gott fólk.: Er þetta frétt?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Fjarlægði grímu og hóstaði á ungling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ásættanlegt?

 Í verslunargeiranum heyrist oft af tilboðum þar sem að ef þú kaupir tvennt, fáir þú það þriðja með í kaupbæti. Kostakjör, ekki satt?.

 Í kóvidgeiranum er tilboðið hinsvegar á þá leið að fyrir hverja tuttugu og fimm sem látast, látast sextán á móti úr öðrum sjúkdómum, því það er ekki pláss fyrir þá í kerfinu sökum “kóvidsins”. Fólk ýmist forðast heilsugæsluna af ótta við smit, eða er hreinlega yfirgefið á alls kyns stofnunum og skilið eftir eins og hvert annað rusl. Hver hugsar um, eða skrifar um þetta fólk og rétt þess til jafns við öll okkur hin? Hver skrifar um lífið í fátækrahverfum heimsins, hver skrifar um aukningu glæpa og aðra óáran sem fylgt hefur auknum takmörkunum á ferðafrelsi og aðgangi að eðlilegri heilbrigðisþjónustu?. Ekki fjölmiðlar, svo mikið er víst, nema að mjög takmörkuðum hluta. Hvað veldur, er hulin ráðgáta.

 Kó-óvitið hefur tekið allt yfir og ekki einu sinni sjúklingar með auðlæknanlegar pestir eða aðra ómerkilga kvilla fær lengur þá athygli eða umönnun sem þeir þurfa og farast því í algerlega óásættanlegu hlutfalli við kóvitið!

 Nú hefur slagorðið um þrjá fyrir tvo, snúist upp í tvo fyrir þrjá. Trauðla telst það góður “díll”.

 Þrír úr kóvid og tveir úr öðru og enginn segir neitt?.

 Er þetta ekki að verða dulítið tvíbent alltsaman og kominn tími til að endurskoða hlutina, eða teljast tveir fyrir þrjá ásættanlegur fórnarkostnaður?

 Það er eflaust ekki langt í að hlutfallið verði á pari og geti jafnvel endað með því að fyrir  hverja tvo látna úr kóvid, farist þrír sem ekki voru með veiruna, gamlir sem ungir um allan heim. Nú þegar held ég reyndar að stuðullin sé kominn mun hærra, en það telst nú varla frétt, eða hvað?.

 Kóvid selur svo helvíti vel þessa dagana.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Tveir fyrir hverja þrjá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrustu kjötbollur í heimi?

 Á sínum tíma, þegar Keikó blessaður dvaldi í Klettsvík, var talið að hann dygði í um það bil tuttugu og tvö þúsund kjötbollur, með góðan mann á hakkavélinni. Úr því varð hinsvegar aldrei, því dýrið galt “greiðann” með því að rjúka til Noregs við fyrsta tækifæri og drapst þar án þess nokkur nyt væru af honum nýtt. Ekkert fékkst upp í milljóna dollara kostnað við uppihald og transport á kvikyndinu og ku hann urðaður á óræðri strönd frænda okkar í Noregi, hvar aldrei er lagður blómsveigur til minningar um þá dauðans dellu alla saman, sem von er. 

 Nú er nýtt Keikórugl farið af stað aftur. Reyndar verið í gangi um allnokkurt skeið og búið að eyða milljónum USD í delluna. Ómæld fjölmiðlaumræða, sem opinmunnar islenskra “fréttamanna” gína sífellt við án nokkurra spurninga og slengja á síður djöflamiðla sinna, hugsunarlaust með öllu.

 Meðan fólk sveltur og deyr um heim allan, finnast “spon-sorar” í svona dauðans dellu, að því er virðist endalaust. Raunveruleikafirrt rusllið sem veit ekki aura sinna tal, telur umframsjóðum sínum frekar betur varið í tvö mjaldrakvikyndi í búri á Íslandi, en í mat fyrir sveltandi fólk, eða aðra mannlega, eða samfélagslega aðstoð. 

 Það er nóg til af Mjöldrum. Þessi hvalategund er ekki í útrýmingarhættu og ekkert sem bendir til að svo verði um ókomin ár. Ísbirnir ráðast á og éta sennilega hundrað Litlu Grár og Hvítar á hverjum degi, allan ársins hring, en samt er nóg af þeim. Að færa skepnu úr litlu búri í aðeins stærra, gerir hana ekki frjálsa. Hræsnin er alger og hálfvitarnir dansa með og borga.

 Það er sorglegt að horfa upp á fíflaganginn í Klettsvík. Suðaustanstormurinn Stóri mun einn daginn gera mönnum það ljóst, en áfram heldur fíflaríið, meðan einhver borgar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Mjaldrarnir komnir til Klettsvíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Argentína í gær- II.

 Sjö þúsund og fimm hundruð greindir með veiruna í gær. Eitt hundrað fjörtíu og fjórir látnir.

 Þrátt fyrir skuggalegar tölur virðist lítið vera gert í því að halda hlífiskyldi yfir þeim sem viðkvæmastir eru. Litlar eða jafnvel engar takmarkanir á heimsóknum á elli eða hjúkrunarheimili og annað í þeim dúr.

 Hér syðst í Argentínu, í Tierra Del Fuego, hefur verið ákveðið að loka á allar flugsamgöngur frá og með sautjánda þessa mánaðar og vel fram í september. Tierra Del Fuego er eyja og því þýðir þetta algera lokun. Fram að þessu var leyft eitt flug á viku, en nú verður tekið fyrir það. Ríkisstjórnin hefur gefið út alls kyns tilskipanir og tilmæli, en fylkisstjórnum og jafnvel einstökum bæjarstjórnum er síðan heimilt að bæta í, en ekki undir neinum kringumstæðum gera minni kröfur en alríkisstjórnin gefur út. Það gilda því nánast hvergi sömu reglur milli fylkja, eða bæja, en þetta er jú S-Ameríka og kemur ekki á óvart.

 Fjölgun glæpa er skelfileg og víst má telja að í gær létust ekki færri úr óbeinum afleiðingum veirunnar, en úr veirunni sjálfri. Útlitið er allt annað en bjart.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Samt er kvartað og kveinað.

 Hvort þessi könnun er marktæk, eður ei, er ávallt gaman að sjá að á okkar landi skuli fólki almennt líða vel og þar sé almenn velmegun og öryggi í fyrirrúmi. Margt má betur fara í samfélagi okkar, en þegar á heildina er litið er sennilega hvergi betra að vera en á Íslandi. 

 Þvi vekur það furðu þegar fólk sér sig knúið til að níða skóinn af því góða landi sem við byggjum og mælast til þess að þjóðin ráði sér ekki lengur sjálf, heldur skuli seld undir embættismannavald suður í bulluseli. 

 Þeim sem þannig hugsa væri hollt að taka smá rúnt um veröldina og kynna sér aðstæður á hinum ýmsu landsvæðum. Byrja á Afríku, taka síðan Asíurúnt og enda að lokum hér í Suður-Ameríku. 

 Hafandi ekki tekið þennan rúnt, ættu þeir sem hæst gaspra um ómögulegheit Íslands að grjóthalda kjafti.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Ísland besta landið til að stofna fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Argentína í gær.

 Fimm þúsund og fjögur hundruð smit staðfest, fimmtíu og tvö dauðsföll. Aðeins þeir sem eru þegar veikir eru prófaðir. Engir aðrir. Skelfileg tölfræði og á morgun , þriðja ágúst, fer hér allt á hæsta viðbúnaðarstig.

 Glæpir, morð, rán, gripdeildir og annar ófögnuður er að setja hér allt á annan endann. Að sjálfsögðu heyrist ekkert af þessu í fjölmiðlum á Íslandi eða annarsstaðar. Til þess er Argentína sennilega of langt í burtu. Þetta snýst jú ekki lengur um fótbolta og því ekki bleksins virði að nefna.

 Sennilega munu fleiri farast úr afleiðingum veirunnar hér, en úr veirunni sjálfri, þegar upp verður staðið. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Snillingur!

 Þið sem þykir það ekkert mál að hrækja út úr munni ykkar tyggigúmmíinu hvar sem þið standið, ættuð heldur betur að hugsa ykarkar gang. Ekki það ég vilji að þið kyngið ófögnuðinum, því tyggigúmmí meltist ekki, heldur það að þessi andskotans óþverri límir sig nýhræktur við allt skótau og skemmir jafnvel hinar fallegust ofnu mottur og annað gólfefni eftir að heim er komið, fari fólk ekki úr útklíndum skónum í forstofunni.

 Lengi hefir tuðaranum leiðst þessi ósómi, en nú er risinn trukkur í andstöðu og athöfnum öllum gegn þessum ósóma. Maður sem tekur af skarið og nær vonandi að vekja máls á því hversu subbuleg hegðun það er að láta bara tuggudelluna detta þar sem maður stendur og stíga létt yfir, eins og ekkert hafi gerst og ganga síðan á braut til annar athafna. 

 Guðjón Óskarsson er mættur og megi hann hafa árangur sem mestan í því að benda fólki á að venja sig af þeim afleita sið að spýta tuggunni þar sem það stendur. 

 Þetta á bæði við um tyggigúmmí og annan ósóma sem fólk treður innan munnvika sinna..

 Gangi þér vel elsku Guðjón.

 Það er alla vegana einn þverhaus og gangstéttatyggjóóþolandi sem stendur með þér í átakinu. Hef grun um að fjölga muni í hópnum fyrr en nokkurn grunaði.

 Takk Guðjón minn.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Alla tíð fundist þetta mikill ófögnuður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi?

 Er ástæða til að óska hafró, lobbýistum og leiðitamri og lítilshugsandi stjórnmálamannaelítu Íslands til hamingju með árangurinn af besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi?

 Nú, tæpum fjörtíu árum eftir að hafró fann það út að besta leiðin væri að geyma fiskinn í sjónum og veiða hann seinna, þegar hann væri orðinn voða, voða stór, virðist eitthvað vera að klikka og hefur reyndar klikkað frá upphafi þessarar dellu. Nú bregður svo við að minnka þarf þorskkvótann um einhver sex prósent, þrátt fyrir tæplega fjögurra áratuga forskrift færustu vísindamanna í veiðiráðgjöf á Íslandsmiðum, sem pólitískir amlóðar hafa að mestu fylgt.

 Pólitík og vafasöm vísindi fara óþægilega illa saman. Nægir þar að nefna ömurlega eltistefnu málefnageldra stjórnmálamanna horfinna hugsjóna við hamfarahlýnun af mannavöldum og aðra dauðans dellu. Þingmenn og ráðherrar þurfa jú að halda sætum sínum, hvað svo sem líður hugsjónum, eða almannahag.

 Bændur slátra lömbum sínum á haustin og setja ærnar á garða um vetur, í samræmi við afrakstur túna sinna og haga.

 Samkvæmt reiknilíkani hafró, með áratuga aðstoð aulanna í sjávarútvegsráðuneytinu og bjálfanna á Alþingi er tekin þveröfug afstaða til fisksins í sjónum. Þar skal ánum slátrað og lömbin látin lifa, þó heyforði sé af takmörkuðum skammti. 

 Ef þetta er ekki heiladauði, þá heiti ég Kristján Þór Júlíusson, krati, Þistilfjarðarkúvendingur, svíðreisn, fullveldisafsalfylkingin, píratabjálfi í malbikunarjakka, eða annað þaðan af verra og réttast væri að einhver rassskellti mig út fyrir endimörk alheimsins og aftur til baka, þannig að ég lenti einhversstaðar þar sem enginn mundi finna mig. 

 Sjávarútvegsráðuneytið væri sennilega góður lendingarstaður, því þar hugsa fáir og enginn tekur eftir raðrassskelltum ráðherra, sama hvaða dauðans dellu hann hefur á ferilskránni, eða öðrum sem á undan honum réðu.

 Embættismennirnir halda jú ávallt velli og fá að launum feit eftirlaun, án tillits til árangurs í starfi. Pöpullinn borgar jú brúsann. Ekki það skipti embættismennina miklu.

 Andskotinn sjálfur að horfa upp á þessa óhæfu, meðan hagkerfi Íslands verður af hundruðum milljarða, sökum heimskunnar í fisveiðistjórnun.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Farið að vísindalegri ráðgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir vita og hafa vitað lengi.

 Það er alkunna og hefur verið árum saman að erlendum verkamönnum er hrúgað eins og skepnum í alls kyns húsnæði víða um borg og bí um land allt. Sorglega mikið af þessu húsnæði er tæpast mönnum bjóðandi og þó það sé það, er hrúgað það mörgum einstaklingum inn í eitt og sama rýmið að trauðla getur talist annað en hreinn og klár skepnuskapur. Ósvífnir kennitöluflakkandi byggingaverktakar bera af í þessari ósvífnu mannvonsku og ætti að taka laglega í durginn á þeim andskotum í eitt skipti fyrir öll.

 Allt stjórnkerfið, frá lítilsnýta blýantsnagandi kerfiskarlinum, borgarstjóraónefnuunni og ótöldum bæjarstjórum upp til ráðherra Íslands, skella hinsvegar skollaeyrum við þessu skammarlega ástandi sem þau öll vita af og hafa vitað af um árabil. Það lúkkar jú svo djöfull kúl að taka fyrstu skóflustungur, presentera glærusjó, klippa á borða í beinni og svo þarf jú að keyra upp hagvöxtinn og helst byggja helmingi meira en þörf eða geta er fyrir. Þess vegna er flutt inn ódýrt vinnuafl, sem sumir virðast telja að megi fara með eins og hvern annan búpening. 

 Sveiattan í heitasta að horfa upp á ömurlegt báknið þykjast ekki hafa vitað af þessu og embættismennina benda hver á annan í algerri afneitun eigin lasta, kæruleysis og rósrauðra drauma um labbahjólastrætóborgarlínuþvælur og annað lítilsvert prjál.

 Öll líf skipta máli!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Lögðu blóm við Bræðraborgarstíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband