Samt er kvartað og kveinað.

 Hvort þessi könnun er marktæk, eður ei, er ávallt gaman að sjá að á okkar landi skuli fólki almennt líða vel og þar sé almenn velmegun og öryggi í fyrirrúmi. Margt má betur fara í samfélagi okkar, en þegar á heildina er litið er sennilega hvergi betra að vera en á Íslandi. 

 Þvi vekur það furðu þegar fólk sér sig knúið til að níða skóinn af því góða landi sem við byggjum og mælast til þess að þjóðin ráði sér ekki lengur sjálf, heldur skuli seld undir embættismannavald suður í bulluseli. 

 Þeim sem þannig hugsa væri hollt að taka smá rúnt um veröldina og kynna sér aðstæður á hinum ýmsu landsvæðum. Byrja á Afríku, taka síðan Asíurúnt og enda að lokum hér í Suður-Ameríku. 

 Hafandi ekki tekið þennan rúnt, ættu þeir sem hæst gaspra um ómögulegheit Íslands að grjóthalda kjafti.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Ísland besta landið til að stofna fjölskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Orð í tíma töluð Halldór. Það þarf svo sem ekki að dvelja nema nokkra stund í Noregi til að skilja hvers vegna við höfum ekki farið til baka í meira en 1000 ár.

Magnús Sigurðsson, 4.8.2020 kl. 21:22

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Vona og byð til allra vætta að þú sérst ekki staddur í Noregsveldi á höltum Sjérókí Magnús minn.

 Nei án gríns þá veit ég  að þú ert fyrir austan og það rignir sem aldrei fyrr. Velkominn í klúbb þeirra sem eitt sinn sögðu regnið gott fyrir gróðurinn en nánast drukknuðu að lokum.

 Þakka innlitið kúturinn minn ;-)

 Bestu kveðjur að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 5.8.2020 kl. 00:41

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Góð grein Halldór og í tíma skrifuð.........

Jóhann Elíasson, 5.8.2020 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband