"Manngæskan" holdi klædd.

 Að moka sextán manns, sennilega allt karlmönnum af ólíkum uppruna, eins fjarlægum okkur og hugsast getur, í handónýtt hús við íbúagötu er ekki merki mikils hyggjuvits. Nær örugg leið til að gera alla í húsinu geggjaða, svo ekki sé nú talað um íbúana í götunni. Víkingasveit Lögreglunnar og almennir þjónar hennar margbúnir að þurfa að grípa inn í aðstæður. Íbúum nánast haldið í gíslingu af ótta við hvað gerist næst. Allt í nafni "mannúðar".

 Hver ber ábyrgð á svona déskotans vinnubrögðum og því þegja fjölmiðlar? Er búið að gegnsýra þá af rétttrúnaðarhugsunarliðinu, eða er fólk á fjölmiðlum ekki meiri bógar en þetta af ótta við eigendur þeirra? Aulagangurinn alger, hvað svo sem veldur.

 Myndin af húsinu, ein og sér, er dæmigerð fyrir aumingjaskap hins opinbera og sýnir í hverslags skötulíki öll þessi mál eru hjá yfirvöldum og öllum "miskunnsömu samverjunum". Alger niðurníðsla á öllum sviðum. Fátt ef nokkurt hugsað til enda.

 Þetta hús er táknrænt merki um fíflaganginn í þessum málum öllum. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Barði blóðugur að dyrum í Stigahlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjö hundruð milljónir út um gluggann.

 Fjármála og skipulagsvit borgarstjórnarmeirihlutans virðist síst hafa batnað, þó Svíðreisn hafi stokkið á vagninn í stað óræðrar framtíðar, sem reyndar er orðin að súrri fortíð.

 Verslunarhúsnæði í borginni dugar nú þegar hátt í hálfri milljón íbúa, en nú skal bæta um betur. "Lífleg starfssemi á svæðinu"? Er þetta fólk ekki að grínast? Síðasta "líflega" starfsemin sem tuðarakvikyndið man eftir á þessum slóðum var skotárás og þar á undan Iðnaðarbankaránið með lambhúshettunni landsfrægu sem við það er kennd. 

 Sjö hundruð milljónir detta skyndilega á borðið úr galtómum fjárhyrslum Reykjavíkurborgar, sem sífellt kvartar undan blankheitum.

 Áfram skulu börn koma vannærð af undirmönnuðum leikskólum og öryrkjar sviknir af greiðslum frá borginni, sem þeim hafa verið dæmdar af dómstólum. Nostalgíuþvældum sveimhugum í borgarstjórn hefur verið gert mögulegt að halda uppteknum hætti í rugli og óráðsíu. Allt í boði Svíðreisnar. Hafi sú reisn litlar þakkir fyrir.

 Til hamingju Reykvíkingar með nýjan borgarstjórnarmeirihluta. Þvílíkt og annað eins samansafn af alltumliggjandi hug og hyggjuviti fyrir hönd borgaranna hefur trauðla sést í yfir tvö hundruð ára sögu borgarinnar. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Borgin kaupir fasteignir í Breiðholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er hollt að hjóla, en hættulegt að ganga.

 Það eru sennilega flestir sammála um ágæti þess að hreyfa sig. Hjólreiðar eru bæði hollar og góðar, hverjum þeim er þá iðju stundar og hin besta hreyfing. Venjulegt fólk setur vonandi á sig góðan og viðurkenndan hjálm áður rennt er af stað á reiðhjólinu. Það er jú skynsamlegt til að verja toppstykkið skemmdum, ef svo illa færi að óhapp henti í túrnum. Alveg hreint með ólíkindum að ekki skuli fyrir löngu hafa verið sett af stað herferð um að synda í vinnuna. Allir árekstar í sundi eru minniháttar og það eina sem þarf til ferðarinnar er skýla, bikini eða bolur. "Safest way to travel, ever invented" (If you know how to swim)

 Mikið hefur verið "agiterað" fyrir því að ganga, hjóla, eða taka stræ-dó undanfarin ár. Afraksturinn virðist helst skila sér í spantexklæddum miðaldra körlum og kerlingum, sem halda að þau eldist hægar en annað fólk, ef þau hjóla. Klædd eins og allsberar geimverur með egg á hausnum. Með púls, blóðþrýstings og kílómetersmæla á úlnliðnum, á fimmhundruðþúsundkróna hjólum, sextíu kílómetra hraða á gang og hjólastígum höfuðborgarsvæðisins getur varla verið að nokkur eldist neitt að ráði. Hollustan er jú svo yfirgengilega mikil og græjurnar af bestu gerð. Verst hvað allir þessir andskotans gangandi vegfarendur eru sífellt að þvælast fyrir á gang og hjólastéttunum. Að ekki sé nú talað um helvítis ökumennina sem sjá þessar verur ekki fyrr en allt í einu, þvert á akstursleið sína, utan úr engu.

 Óska konunni sem ekin var niður af einu þessara fyrirbæra góðs bata og hvet hana til málssóknar á hendur gerningsmanninum/konunni. Þetta fólk er að verða helst til mikið fyrir venjulegu gangandi fólki og á skilið ærlega hirtingu fyrir.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 

 

 


mbl.is Varð fyrir hjóli og höfuðkúpubrotnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vargur í véum.

 Sjálfstæðisflokkurinn á víst að vera sá flokkur hérlendur, sem samkvæmt stefnuskrá sinni hefur það að markmiði sínu umfram aðra flokka að standa vörð um sjálfstæði þjóðarinnar og þá einstaklinga sem landið byggja, óháð stétt og stöðu. Stétt með stétt. Frelsi einstaklingsins til athafna, dáða og sjálfsbjargar. Stefna sem hugnaðist mér snemma og hef aðhyllst í áratugi og mun gera þar til borinn til grafar, svo þver sem ég er. Enginn hefur knúið mig til fylgis við stefnu Sjálfstæðisflokksins. Þó deila megi um marga forystumenn hans og þeirra gjörðir í einstökum málum hafa þeir flestallir bara verið déskoti fínir þegar allt er dregið upp og saman tekið. En nú er orðin breyting á.

 Meginstoð stefnu Sjálfstæðisflokksins hefur verið mulin niður af aðilum sem flestir hefðu talið hvað ólíklegasta til þess verknaðar. Sjálf forysta flokksins og helstu forkólfar hafa svívirt stefnuna og samlanda sína með þeim hætti að vandséð er hvort þessum svikurum sé stætt lengur í stöðum sínum! Að svikarar helstir við stefnu Sjálfstæðisflokksins skuli vera núverandi formaður og meðreiðarsveinar hans er grátlegt upp á að horfa og Sjálfstæðisflokknum til háðungar og skammar.

 Krata"kríp" hafa laumast á lymskulegan hátt með fagurgala og orðagjálfri í helstu stöður flokksins og auli eins og ég og fleiri höfum látið glepjast. Kosið þennan ófögnuð kosningar eftir kosningar en nú er eðli þessara óberma orðið opinbert mér til sárrar raunar.

 Það er vargur í véum og tími til kominn að sannir Sjálfstæðismenn veiti þessum Trojuhestsfarþegum kratismans inn í Valhöll ærlega ráðningu. Valhöll var ekki byggð fyrir krata eða fullveldisafsalssinna. Hún bar byggð fyrir sjálfstæðismenn.

 Burt með þetta hyski úr forystu Sjálfstæðisflokksins. Taki það ekki staf sinn og hatt hlýtur að vera jarðvegur til stofnunar sanns Sjálfstæðisflokks. Það ætti að vera auðvelt. Stefnan er skýr og löngu fram sett. Núverandi forysta er samsuða reglugerðaraðdáenda og undanlátssamra aula einhvers versta fyrirbæris sem fyrirfinnst í Evrópu þessi dægrin. Sjálfu Evrópusambandinu. Hvað veldur er erfitt að ímynda sér en sennilega voru kúlulánsdrottningarnar og prinsarnir fleiri en eitt eða tvö og nú skal endurgjalda eftirhrunsgreiðana sem veittir voru af Þistilfjarðarkúvendingnum og Gránu gömlu í reykfylltum herbergjum fárra manna funda. Húseignin Valhöll er eign Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki eign formannsins og hans slektis.

 Hræddur um að bylti sér nú í gröf undangengnir forystumenn flokksins sökum brygsla núverandi forystu við land og þjóð. Forysta flokksins er komin í ruslflokk hjá sönnum sjálfstæðismönnum og því ætti þverrandi fylgi ekki að koma á óvart. Fylgi sem enn mun þverra og að lokum tortíma flokknum sökum aumingjaskapar þeirrar forystu sem nú situr. Burt með hana alla eins og hún leggur sig. Að öðrum kosti mun flokkurinn hverfa eins og dögg fyrir sólu, eða björt framtíð.

 Stórt fruss á núverndi forystu Sjálfstæðisflokksins en ekki stefnuna, sem er skýr. 

 Áfram Ísland!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is „Þetta skapar afleitt fordæmi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atkvæði hafi frelsi til að eiga ekki bíl.

 Gott og vel. Hver á að koma krakkakvikyndinum á leikskólann, skólann, unglingsfjandanum í sportið og síðan sækja allt helvítis draslið aftur og koma því heim í háttinn, ef aðeins reiðhjól, stræ-dó eða labba er einungis í boði? 

 Er þetta fólk á lyfjum eða án barna?

 Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Vilja draga úr fjölda bílferða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Táknræn mynd.

 Fremst sitja krakkar í tölvuleik, aftar situr einn og annar stendur, áhyggjufullir á svip, enda full ástæða til. Vel má vera að tilskipunin skapi okkur almenningi rétt og vernd, en það er dómsstigið sem skarast á við lýðræðið. Komi upp vafamál sem leysa þarf, verður hérlent réttarkerfi ekki einu sinni spurt. Brussel sker úr um og dæmir! Evrópusmbandið hefur tekið yfir dómskerfið á Íslandi. Til hamingju forysta Sjálfstæðisflokksins á hundrað ára afmæli fullveldisins. Ömurlegri úlfar í sauðagæru hafa aldrei á þingpalla vora stigið. Þetta hljóta að vera ömurlegustu svik nokkurrar forystu, fyrr og síðar, að Þistilfjarðarkúvendingsumpóluninni meðtalinni. Stétt með stétt, þol ei órétt.

 Engar kveðjur að sunnan. Sjálfstæðisflokkurinn er dauður!


mbl.is Frumvarp um persónuvernd samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír af fimm í símanum.

 Það er bannað að tala í síma undir stýri. Það er bannað senda sms undir stýri. Það er ekki vel séð að hanga á fésbókinni í vinnutímanum.

 Þykir það í lagi að gera þetta allt á næturfundi Alþingis, rétt fyrir þinglok, þar sem málum er mokað í gegn án mikillar ígrundunar? 

 Er nema von að þessir amlóðar séu alveg við það rýra lýðveldið sjálfstæði sínu með aumingjahætti sínum?

 Ömurleg er myndin með greininni, hvenær svosem hún var tekin. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búnir að fá sitt og loka því sjoppunni.

 Enn eru ótal mál óafgreidd hjá Kjara(ó)ráði. Þingheimur gefur skít í það, enda búinn að fá sitt og því óhætt að loka sjoppunni, með innan við þriggja vikna fyrirvara. Pírataómyndin sem ætlaði í mál sat hjá, sem er óskiljanlegt, en það eru jú píratar flestir, svo það kemur svosem ekkert á óvart. Eftir því sem best er vitað hefur enginn þeirra skilað, eða lagt til hliðar, krónu af hækkuninni frá Kjararáði svo þeir hljóta að vera sáttir og gúffa í sig lífsins unaðssemdum, í boði Kjararáðs til jafns við aðra þingmenn og ráðherra annara flokka.

 Þessi ríkisstjórn lyktar illa, svo ekki sé meira sagt. Yfirklór, vandræðagangur og valdaafsal lýðveldisins virðist vera hennar helsta markmið. Ekki merkilegur pappír, frekar en stjórnarandstaða síst minni eiginhagsmunaseggja.

 Virðing Alþingis þverr með degi hverjum, öllum þeim er þar sitja til háðungar og skammar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Kjararáð lagt niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margt smátt gerir helling.

 Ægir Þór á stóra fjölskyldu. Hann á okkur öll að og það er dásamlegt að sjá hve allir taka vel á með stráknum. Það er helst að sjá að ömurleg stjórnvöld og enn verri stjórnmálamenn og konur séu ekki að kveikja á perunni, enda meira og minna á perunni í sjálfshagsmunaframapoti sínu á pólitíska sviðinu. Þar kemst ekkert annað að en ég, ég, ég. Svei því auma liði sem neitar lítilli hetju um sjálfsagðan rétt sinn til lífsins, því aurana skortir! Aurarnir eru nægir.

 Þúsundum milljóna er sóað í bruðl og vitleysu ár hvert, af mis og oft á tíðum fávísum stjórnmálamönnum, engum til gagns. Þegar líf liggur við bregst þolinmæði almennings og nú skal skella á súðum pólitískra amlóða, sem sem best ættu að hysja upp um sig brækurnar og gegna sínu starfi, sem þeir voru kosnir til. Þeir eru jú í vinnu fyrir okkur, en ekki öfugt, hafi það farið framhjá þeim. 

 Almenningur er kominn með upp í kok af bruðli og rugli stjórnmálamanna, sem sumir hverjir virðast varla vita hvar þeir vinna, eða fyrir hvern.

 Ægir Þór skal fá það sem hann þarf! Leggjumst öll á árarnar, svo það megi verða.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is „Margt smátt gerir eitt stórt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fíflagangur, fíflagangur, fíflagangur.

 Það gengur vel. Það gengur svo vel að við ætlum að tala saman til eilífðarnóns um allt sem er æðislegt og alveg "obboslega" spennandi og gaman. Það gengur svo vel að það gengur ekki rassgat. Fyrrverandi meirihluti er kexruglaður og við vitum hreinlega ekki hvurn fjandann við eigum að segja borgarbúum. OK "we fucked up" en allt er svo djöfull "gúddí".

 Viðreisn er búin að drulla upp á bak. Við blasir minnihlutasrjórn í höfuðstaðnum, studd af Viðreisnarómyndinni.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan. 


mbl.is Áfram fundað um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband