Sagt fyrir...hefur áhrif eftir.

Skil ekki alveg hve Steingrímur er "grumpy" yfir þessu. Það sem sagt er fyrir kosningar á að sjálfsögðu að hafa einhverja merkingu eftir þær, ekki satt? Eða er það ekki það sem allir bauna á þá sem standa uppi sem sigurvegarar? Hver bannaði andstöðunni að ræða saman? Nógu var samhljómurinn skýr rétt fyrir kosningar, meðan allir veltu sér upp úr óþolandi skoðanakönnunum ( Sem undirritaður vill að verði BANNAÐAR 2-3 mánuðum fyrir kosningar) Það fer engum stjórnmálamanni vel að arga og garga fyrir kosningar, en leggjast síðan eins og lamb og bjóða alla kosti að þeim loknum. Ágætt að menn átti sig á þessu fyrr en seinna. Stóryrðaflaumurinn hittir menn yfirleitt i bakið að afstöðnum kosningum og undarlegt að menn haldi annað. Steingrímur hefði betur sett upp "sparibrosið" talsvert fyrr. Það má alls ekki vanmeta kraft VG. Gott fólk þar á bæ og margt sem þau hafa fram að bjóða. Synd að ekki sé hægt að vinna að kosningabaráttu öðru vísi en að hafa það eitt að leiðarljósi en "að fella ríkisstjórnina". Aumasta röksemd sem til er, nema að bent sé á HVERNIG eigi að gera hlutina betur en ríkjandi stjórn hefur gert fram að þessu. Maður uppsker eins og maður sáir og orð skulu ígrunduð, áður en fram eru sett. Skemmir heldur ekki fyrir að hafa lausnir á því sem talið er ver gert af andstæðingunum. "Að fella ríkistjórnina" er einfaldlega of ódýrt kosningaloforð, til að mark verði á tekið, eins og niðurstaðan varð. Vil að endingu þakka Framsókn og þó fyrst og fremst Jóni Sig. fyrir að vera menn og konur til standa við að með afhroði myndu þau ekki halda áfram. Guðni er eins og hann er og OK með það, en sjáum hvað setur. Það er EKKI enn búið að mynda nýja stjórn. 
mbl.is Steingrímur: Stjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar allt of hægrisinnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Paul Watson kominn í Álafosshvosina?

Það eru vesælar sálir sem taka uppá svona löguðu. Engu líkara en að "gáfumennið" Paul Watson sé mættur á svæðið til stuðnings við málstað sem á sér æ færri fylgjendur, eftir því sem dagarnir líða. Hvort sem um er að ræða skemmdir á vinnuvélum eða niðurrif á girðingum, er hvorugt líklegt til árangurs og síst til þess fallið að auka samhug með með þeim sem eru á móti framkvæmdinni. Hvort sem þarna er verið að grafa fyrir skólprörum eða vegarstæði, skiptir engu máli. Framkvæmdin er lögleg og ekki við verktakann að sakast, þó einhverjir séu ósáttir við raskið. Það er verið að byggja nýtt hverfi í landi Helgafells og þangað þarf fólk að komast til og frá. Búið er að taka tillit til þeirra sem mótmæltu veginum eins og kostur er og nú er komið að framkvæmdinni. Vel skiljanlegt að ekki séu allir sáttir við allar framkvæmdir og slæmt fyrir suma þegar leggja þarf vegi innan þéttbýlis sem auka umferð í grónum hverfum. Hjá því verður hins vegar ekki komist í vaxandi bæ og vonandi að fólk fari nú að slíðra sverðin og stuðla að áframhaldandi uppgangi Mosfellsbæjar. Þar er gott að búa. Hvort kjósa eigi um allar framkvæmdir sem hreyft er mótmælum við, tel ég afar hæpinn kost. Bæjarbúar hafa þegar veitt umboð sitt til bæjarstjórnar að sinna sínum málum næstu árin og eiga ekki að þurfa að vera sinkt og heilagt að leggja blessun sína yfir hin ýmsu verk, stór eða smá. Á til að mynda að kjósa um hvort byggja eigi hið nýja hverfi í Leirvogstungu núna, þegar framkvæmdir eru hafnar? Ég bara spyr. Þar er búið að stórraska útsýninu hjá mömmu og pabba, en þau eru svosem alveg róleg, þannig lagað séð.   
mbl.is Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Helgafellshverfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DHL - Klúður!!!!!

Þetta er ótrúlegt! Hvað voru þetta mörg atkvæði? Miðað við hve tæpt stóð með úrslit kosninganna hlýtur eitthvað að þurfa að skoða þetta og það ekki seinna en strax. Hrikalegt klúður og með ólíkindum að þetta skuli geta gerst.  
mbl.is DHL segist áskilja sér rétt til að opna pakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bleikir kjörseðlar og "fyrirfram fréttir".

Er ekkert annað en hundfúll með litinn á kjörseðlunum.

Hvað hefðu Vinstri Grænir og co sagt ef seðlarnir hefðu verið bláir?! Allt orðið vitalaust, alveg pottþétt. Undarlegur litur á seðlunum og undra mig yfir því hvers vegna ekki var hægt að hafa seðilinn hvítann?.

Lít á þetta sem argasta áróður og gaf það hressilega til kynna á kjörstað.

Hvort sem Fréttablaðið hefur drullað upp á bak eður ei með fávitalegri prentun, langt á undan raunverulegum úrslitum, kemur í ljós með morgninum, lesendum blaðsins vonandi til einhvers heilahristings. Það er jú hægt að fá miða sem frábyðja manni að þurfa að taka á móti fréttum sem ekki hafa enn gerst. Hver andsk..... er að ykkur að gefa út þennan snepil með þessum hætti?Á ég og ótaldir aðrir bara að kyngja þessu eins og hverjum öðrum Bónusbæklingi? Hei hó, lifi í þeirri von að enn sé eitthvað á milli eyrna minna. 

Set sennilega upp brennara á útihurðina og les bara Moggannn á netinu hér eftir.

 


Hættið þessu kannanabulli!!!!!

Hvernig væri að kjósendur fengju frið til að gera upp hug sinn? Fer þess hér með á leit að ég verði látinnn í friði fyrir þessari óværu svona skömmu fyrir kosningar. Fréttamenn.: Við erum ekki öll fífl! Eigendur fjölmiðla.: Við erum ekki öll fífl! Sýnið okkur Mary Poppins eða bara eitthvað annað en þetta kannanakjaftæði sem búið er að telja okkur trú um að sé niðusrstaða komandi kosninga miðað við núverandi úrtak og og virðist engu skipta hve margir svara í. Hlífið okkur í Guðs bænum við þessu árans bulli ykkar!!!!!!!
mbl.is Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skoðanakannanbann!!!!!

Fari það kolað að þetta skoðanakannanrugl haldi áfram! Legg til að þetta óbermi verði bannað a.m.k. tveimur vikum fyrir kosningar. Að horfa á fréttamenn fjölmiðlanna þeysast um skjáinn milli súlurita kannanana oft á dag er ekkert annað en ömurlegt á að horfa. Svipað og þegar ónefndur fréttamaður á ónefndri sjónvarpsstöð, byrtist alþjóð með bíl í gangi fyrir aftan sig, ef ske kynni að Skeiðará tæki upp á því að hlaupa á næstu mínútum. Sem sagt ekkert að gerast annað en það að fréttamenn eru að flytja fréttir af einhverju sem ekki er orðið. Skelfing getur þetta allt saman orðið ömurlegt á að horfa. Og svo borgar maður fyrir þetta andsk..... rugl! Er hægt að verða öllu firrtari? Ég bara spyr. 
mbl.is Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Stöðvar 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Salernispappírsrúllan mín.

 

Fyrir nítján  dögum var mér úthlutað salernispappírsrúllu. Svo sem ekki í frásögur færandi, en dálítið sérstakt, því hún átti að duga mér í rúman hálfan mánuð, eða jafnvel lengur og mér hefur aldrei áður verið skammtaður þessi "munaður". Staddur um borð í erlendum togara við strendur Máritaníu, þar sem jafn sjálfsagður hlutur og þessi rúlla, er talin verðmætari en svo, að menn geti leyft sér að bruðla með þetta einfalda þæginda og þrifnaðartól. Núna nítján dögum seinna á eg enn eftir tæpa hálfa rúlluna og er eiginlega farið að þykja dálítið vænt um hana blessaða. Aldrei hefði mig grunað að ég ætti eftir að husa þannig til jafn "sjálfsagðs"hlutar og þessarar litlu rúllu. Búin að reynast mér afar vel, enda hef ég lagt mig allan fram um að fara einstaklega sparlega með hana. Pappírinn frekar grófur, en meiðir ekki og greinilega endurunninn, eftir því sem best verður séð. Sem sagt verið einstaklega nettur og sparsamur við notkun hennar alveg frá þeim degi er hún var fengin mér í hendur en þó aldrei svo að nein óþrif hafi af hlotist. Eftir nítján daga er hún semsagt enn hér í klefanum hjá mér og aðeins rétt um það bil hálfnuð eins og áður sagði. Hér um borð tekur hver maður sína rúllu með sér til sinna þarfa og síðan aftur með sér til síns klefa, að því loknu. Þannig er því reyndar einnig farið með sápu og sjampó, því allt er þetta skammtað hverjum og einum.Mörgum kann að finnast þetta óþarfa sparnaður og aðhaldssemi og þannig var einnig með mig sjálfan í fyrstu. Nú hef ég hins vegar alveg skipt um skoðun og að auki haft nokkuð gott af þessu. Það er nefnilega þannig með okkur, í landi allsnægtanna heima á Fróni, að okkur hættir til að bruðla svolítið og jafnvel mikið, með hluti sem okkur finnst sjálfsagt að séu til staðar, alls staðar og alltaf, þegar við þurfum á að halda. Salernispappír er ein af þessum vörum sem of fáir spá sjálfsagt mikið í að spara við sig og hef ég verið einn af þeim slóðum. Maður reynir jú að velja pappír sem er með hvað mestu magni á hverri rúllu, fyrir sem hagstæðast metraverð, helst mjúkan tveggja laga, en þegar kemur að notkuninni sjálfri hættir mörgum til að láta þessi hagkvæmnissjónarmið lönd og leið og spreða pappírnum óhóflega til sinna "neðanþrifa". Þegar ég hugsa málið betur, hef ég sennilega verið með þeim verri gegnum tíðina hvað þetta varðar og hálf skammast mín núna, með þennan rúlluræfil fyrir framan mig, sem búinn er að endast mér sem góður vinur væri, allan þennan tíma. Oft á tíðum hafa aðfarirnar verið slíkar þegar draga skyldi af rúllunni heima við og annars staðar, að meira hefur mynnt á að verið væri að snúa sláttuvél eða utnaborðsmótor í gang, en að verið væri að draga niður örþunnan pappír af lítilli rúllu. Meter eftir meter, sóað og sóað. Hundruðir metra, þúsundir metra gegnum tíðina. Doðrantinum síðan rennt eina bunu í gegn, látinn detta og næsti mótor snúinn í gang. Hugsa í dag með hryllingi til alls þess pappírs sem ég hef bruðlað með í gegnum tíðina með þessum hætti og hef svarið þess eið að taka mig verulega á og stunda hófsama notkun á salernispappír hér eftir. Mun að sjálfsögðu leggja þær skyldur á herðar annara fjölskyldumeðlima, þegar heim verður komið, að þeir taki upp sama hátt, en svolítið að velta fyrir mér hvernig best sé að bera sig að því að sýna fólki og útskýra hvernig sparlegast sé hægt að fara með þetta þarfaþing, svo eftir verði farið og eitthvart mark á tekið. Gæti orðið hálf fáránlegur fyrirlestur og ekki víst að félli í góðan jarðveg hjá öllum. Hætt við að glott verði við tönn, eða karlinn hreinlega stimplaður snarruglaður eftir úthaldið á togaranum og réttast að koma honum í hendur fagfólks til frekari aðhlynningar. Mun að minnsta kosti reyna. Ekki veitir af að fara sparlega með. Það er ekki endalaust til af öllu til alls. Ekki heldur salernispappír.


Engin áfallahjálp?

Einar seigur að að fara bara á "puttanum" það sem uppá vantaði. Sennilega notið stöðu sinnar en bara allt í lagi með það. Margur hefði kallað eftir áfallahjálp og gert mikið úr málinu, en ekki hann. Vinnur á karlinn og undirstrikar það að við eigum að treysta svona fólki fyrir landsins gagni og nauðsynjum næstu fjögur árin að minnsta kosti. Að kjósa það sem maður þekkir er ávallt gott og við ættum að hundskast til að átta okkur á því að við höfum aldrei haft það betra.  Vissulega er margt ekki gott hjá okkur, en aðrir hefðu sjálfsagt ekkert betur gert.  Þeir sem fá lengstan tímann til að laga hlutina eru sennilegastir til árangurs. Gefum þeim eitt kjörtímabil enn og sjáum hvað setur. Við höfum það svo gott að það liggur við að við ættum að skammast okkar, en alltaf viljum við meira. Undarlegur þjóðflokkur Íslendingar.

90 km h´markshraði?

Hvernig má það vera að maður velti bíl á þessum stað? Var einhver á ólöglegum hraða?
mbl.is Ráðherrann slapp ómeiddur úr bílveltu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máritaníublogg?

Á leiðinni til Máritaníu og þar með kominn í bloggfrí um óákveðin tíma. Ekkert hægt að blogga þar að minnsta  kosti og flugmiðinn bara "one way". Mætti halda að maður væri að fýja skattinn eða ógreidd meðlög, en svo er þó alls ekki í pottinn búið. Skuldastaðan í nokkuð góðu "meðallagi" á landsvísu og nánast ekkert í vanskilum.Vinna, vinna og meiri vinna, er tilgangur ferðarinnar. Óska öllum bloggvinum gleðilegs vors og vonast til að vera kominn aftur áður en sumar gengur í garð. Vona að allir kjósi "rétt" og að áfram verði ísland landa best að búa í.  Lifið heil.

(Sé að teljarinn fyrir heimsóknir er alveg að detta í 3000 hjá mér!. Hver hefði trúað þessu?) 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband