Veruleikafyrring stjórnmálamann.

Það hefur verið hverri einustu manneskju á Íslandi ljóst, nema náttúrulega allt of mörgum stjórnmálamönnum, að öflug löggæsla er eitt af undirstöðuatriðum samfélagsins, ásamt mörgu öðru , að sjálfsögðu. Niðurskurður hjá lögreglunni undanfarin ár, er hreint með öllu óskiljanlegur. Virðist litlu máli skipta hvort hér drjúpi smjör af hverju strái, eða allt komið til andskotans. Það er undarleg "lógík" að skera enn frekar niður til löggæslu á þessum síðustu og sennilega einum verstu tímum sögu vorrar. Óþjóðalýðurinn er ekki lengi að renna á lyktina og sjá má aukningu í nánast alls lags glæpum, stórum sem smáum. Að hinn almenni borgari geti ekki lengur treyst á aðstöð lögreglunnar, þegar brotist er inn á heimili hans og hann stendur berskjaldaður frammi fyrir gerendunum, er með öllu ólíðandi og kominn tími til að þessu verði kippt í liðinn sem fyrst. Ef ekki, er ekki annað hægt en að álykta sem svo að stjórnmálamenn, sumir hverjir að minnsta kosti, sjái sér hag í sem mestri upplausn og stjórnleysi. Það getur varla verið annað sem hvetur amlóðana á Alþingi til að láta þetta viðgangast. Stjórnmálamenn sem bera ekki einu sinni virðingu fyrir skoðunum sjálfs síns og selja sig hæstbjóðenda, með von um feita stóla í Brussel, eru aumingjar og því miður virðist sem þeim fjölgi frekar en hitt, þ.e. aumingjunum á Alþingi. Á Austurvelli standa hins vegar fáir í dag og berja potta og pönnur og það er sorglegt, því það er einmitt það sem amlóðarnir á Alþingi vissu að myndi gerast. Þetta er eins og að þreyta kokgleyptan fisk á stöng. Ef hann er bara þreyttur nógu lengi, hættir hann að berjast fyrir lífi sínu og gefst upp að lokum. Þegar fiskurinn síðan snýr kviðnum upp, dregur veiðimaðurinn hann að landi og stútar honum. 

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!!!!!    


mbl.is Lögregla komst ekki í útköll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að tína til það "helsta" úr fréttum annara fjölmiðla.

"The EU directive was muddled, stipulating only that states must set up a "guarantee scheme" for banks, not that they are liable for all losses. It was well-known that these schemes are often private foundations with tiny resources, yet the UK "hardly bothered" to inform savers of this fact. It let IceSave state on its website that savers enjoyed protection equal to the UK's own scheme."

Hvað ætli valdi því að fréttamaðurinn sem ritar þessa frétt, eða MBL, telur ekki vert að snara þessari romsu hér að ofan inn í fréttina? Þetta er jú sennilega bitastæðasta efnið í greininni sem vitnað er í. Jú, treyst á að sauðsvartur skríllinn opni ekki "linkana" sem vitnað er í, heldur kokgleypi allt sem sett er fram. Íslenskir fjölmiðlar geta á engan hátt talist trúverðugir ef þetta litla dæmi er samnefnari "fréttamennskunnar" sem Tuðarinn telur einhverja þá aumkunarverðustu beggja vegna Atlantsála nú um stundir. Segja helminginn er sennilega nóg, eða hvað? Við eigum síðan bara að borga!


mbl.is Fjallað um reiði Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borðleggjandi svik?

Það hlýtur að teljast meira en lítið skrítið að enn skuli enginn af þessum "útrásarsýkingum" verið hnepptur í varðhald í þágu rannsóknar þeirrar sem nú stendur yfir. Brotin eru nánast borðleggjandi, eins og fram kemur í þessari frétt. Það er ekki eins og það sé óþekkt fyrirbæri að menn hafi verið hnepptir í varðhald vegna streklegs gruns um afbrot. Annað eins hefur nú gerst hér á landi áður. Það sorglega við þetta allt saman virðist þó vera það, að eftir því sem menn fremja stærri glæpi, er engu líkara en erfiðara sé að lögsækja þá og koma þeim á bak við lás og slá. Jafnvel þjóðargjaldþrot virðist ekki nægja. 
mbl.is Arðgreiðslur Sjóvár árið 2007 meiri en hagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað nú?

Já, já Jóhanna. Þinn tími kom og þú hefur nú komið þessu máli á koppinn, þó Tuðarinn hafi ekki nokkra einustu trú á að þetta fullveldisafsal verði samþykkt þegar þjóðin verður að endingu spurð. Þjóðin sem þú treystir ekki til að velja um hvort hún vildi, eða vildi ekki hefja þessa "vegferð", eins og margar pílitískar druslur kjósa að kalla þetta upphaf að endalokum fullveldis á Íslandi. Gott og vel. Þetta mál er frá í bili. Sendið nú hverja sendinefndina af annari, skipaða flokksgæðingum og öðru fánýtu liði í aðildarviðræður um inngöngu Íslands í þetta eitt ömurlegasta skrifræðisskrímsli mannkynssögunnar. Þar munu margir kerfiskarlar, fyrrum þingmenn, flokksgæðingar, vinir, vinkonur og aðrir vandamenn, maka krókinn á yfirvinnu og ferðalögum á okkar kostnað, með von um að fá einn daginn að verma bekkinn í Brussel, þar sem rúmlega þrjú hundruð þúsunda manneskja þjóð hefur akkúrat ekkert minna en andskotann ekki neitt að segja um sjálfa sig, hvað þá aðra. Frasinn "Minn tími mun koma" hefur snúist undarlega upp í andhverfu sína, svo ekki sé meira sagt. Meðan Ísland brann og heimili og einstaklingar töpuðu öllu sem þeir áttu, sjáfsvirðingu sem eignum, fór nánast allt púður "þíns tíma" í að afsala okkur fullveldinu og um leið horfa fram hjá þeim vanda sem þú og þitt fylgifé lofaði að leysa með einum eða öðrum hætti. Tíminn sem farinn er í þetta mál er orðinn svo langur og upplausnin svo alger orðin,  að nú hefur "þinn tími" búið svo um hnútana að varla er orðið borð fyrir báru með nokkurn skapaðan hlut sem skiptir raunverulegu máli lengur fyrir þessa þjóð. "Þinn tími" er orðinn ansi dýr, Jóhanna. Sennilega dýrasti tími sögu vorrar. Hann hefði betur aldrei komið. Skjaldborg um hvað? Hvað nú?     
mbl.is Yfirlýsing forsætisráðherra um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnilegur ungur maður.

Það er ekkert minna en ofurgeisli sem "strækar" mann, þegar heyrist af hugsjónamönnum, vinstra megin í stjórnmálunum og af háðungarpöllum Alþingis. Ungur maður sem segir það sem honum býr í brjósti! Megi allar góðar vættir gefa okkur 63 svona stykki, sem síðan samþykkja að "fækka sér" í svona tuttugu manna og kvenna teymi, sem leitt geta okkur út úr ófögnuðinum. Ásmundur er vonandi það sem koma skal, hvar svo sem í flokki svona Ásmundar finnast.

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX OG 'ASMUND MEÐ!


mbl.is Tal um stjórnarslit undarlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já eða nei!

Er það til of mikils mælst að þeir sem kjörnir eru á Alþingi hafi skoðun? Má vera skoðun á hverju sem er og líka bæði illa og vel af samflokksfólki, sem andstæðingum. Hvað er eiginlega gert við fólk sem kemst á Alþingi? Dr. Jekyll og Mr. Hyde eru eins og fermingardrengir við hlið "skoðanaskiptaamlóðanna" sem nú sitja á þingi, en ÞORA EKKI að kjósa eftir eigin sannfæringu. Er einhver klefi í kjallaranum sem "afhugsjónar" þingheim, áður en honum er hleypt upp á efri hæðina á takkaborðið, við hvern stól, sem þó hefur einungis fjóra hnappa. Já, Nei, Situr hjá eða lætur "FLOKKINN" ráða.? Þvílikar druslur og duslimenni hafa sennilega ekki setið Alþingi svo lengi sem elstu menn muna, enda muna þeir ekki neitt. Þeir sem á annað borð komast á Alþingi ættu að sjá sóma sinn í að hanga ekki eins og afhugsjónaðir aumingjar á "SITJA HJÁ" takkanum, heldur gera álit sitt opinbert. Það er mikið lagt á putta þingmanna þessa dagana, en tengingin upp í haus rofnar vonandi ekki hjá þeim sem hafa eitthvað annað og meira en hálm á milli eyrnanna. Íslenska þjóðin fylgist með hverju og einasta ykkar og því eins gott að ALLIR þingmenn og konur greiði atkvæði JÁ eða NEI. "SITUR HJÁ" er einfaldlega ekki í boði í þessu máli. 
mbl.is Hjáseta kann að ráða úrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotans hræsni.

Af orðum sauðfjárbóndans má ráða, að það að þurfa að kokgleypa og kyngja stóryrðunum og loforðunum sem sett voru fram fyrir kosningar, geti reynst nauðsynlegt, til að stjórnin haldi velli. Þetta sýnir svo ekki verður um villst, að hérlendir stjórnmálamenn eru lítið annað en pólitískar druslur og dusilmenni sem gefa skít í þjóðarhag. Það skiptir semsagt ÖLLU máli að STJÓRNIN HALDI VELLI, sama hve miklu þarf að kyngja, bakka með, svíkja eða ganga á bak orða sinna. Ráðherra og þingmannastólarnir ganga þjóðarhag framar og hugsjónin nær ekki lengra en þetta. Eftir að búið er að draga stólinn undir rassgatið á þessu liði, hvar svosem í flokki það "tilbehörer" virðist ekkert heilagt. Ekki einu sinni eigin sannfæring. Hvað ætli rollubóndinn hafi oft sagt "ALDREI ESB" fyrir kosningar? Einhver sem getur uppfrætt einfaldan Tuðara á því?

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!!!!!!!! Þetta fólk veit ekki hvað það er að gera þjóðinni. Það skilur ekki hagfræði, það skilur ekki þarfir samlanda sinna og það sem verst er, það hefur kastað fyrir róða eigin hugsjónum.

 Enn og aftur í ég veit ekki hvaða skipti.: ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!   


mbl.is Erfitt mál fyrir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttamennskusori.

Hvort sem Davíð Oddsson, ellilífeyrisþegi, (Sem Steingrímur kaus að kalla hann, illu heilli, öðrum ellilífeyrisþegum til minnkunar, en þó Steingrími mest sjálfum)sem hvítþvær hendur sínar af fjármálasukki liðinna ára, hvaða stöðu svosem hann gegndi á þeim tíma(sem eru sennilega fáar), eða sauðfjárbóndinn og fyrrum íþróttafréttamaðurinn af Langanesinu hafa rangt eða rétt fyrir sér, er ljóst að mati Tuðarans, að verið er að drepa þjóðhagslega lífsnauðsynlegum málum á dreif með einhverju ömurlegasta "fréttamennskuplotti" sögunnar hér á landi. Tuðaranum er Andskotans slétt sama hver sagði hvað, olli hverju, átti minnisblað um hvað, gat vísað á, vitnað til eða bara bullað út um eyrun á sér um hvað gerðist fyrir eða eftir þetta eða hitt, þessa stundina. Ég vil enn geta treyst því að sökudólgar verði dregnir til saka þegar þar að kemur og verði teknir ærlega í karphúsið, hvaða flokki sem þeir tilheyrðu, eða viðskiptablokk. Ég er enn ekki svo vonlítill orðinn að ég treysti því ekki að það verði gert. Þegar vonin ein er eftir, er talsvert eftir. Við munum standa þetta af okkur. Spurningin er "einungis" hversu dýrt verður það? Það er jú ansi stór spurning og það er það sem ALLT snýst um!

Það sem veldur Tuðaranum einum mestu áhyggjum þessa dagana er ömurleg frammistaða fjölmiðla á Íslandi. Þar virðist ríkja alger hugsunarskortur og fagleg umræða vandfundin, með örfáum undantekningum, enda flestir helstu fjölmiðlar landsins alfarið, eða að hluta til, í eigu þeirra sem stóran hluta áttu í "HRUNI ÍSLANDS", eða þeirra sem nú vilja draga okkur með góðu eða illu inn í eitthvert ægilegasta skrímsli skrifræðis og "Sovétmennsku" sem um getur.... ESB. Þeir fréttamenn sem í dag flytja okkur "fréttir" af gangi mála og telja sig umkomna að geta verið að "plammera" fyrrum "sómamenn" útrásarinnar í einhverjum fyrirfram pöntuðum viðtölum eða "heat of the moment" "yfirheyrslum" ættu að skoða sinn hag gjörla. Þau sem sungu með fyrir ári síðan, eru allt í einu orðin leiksoppar í viðbjóðslegasta leikriti fjölmiðlasögu vorrar. Haldi þetta lið að almenningur sé alvitlaus, skjátlast því hrapalega. Það er ekki lengur hægt að deyfa vitund þessarar þjóðar með bensínstöðvasumarleikjum og sirkúsbrellum fjölmiðla. Það er hugsandi fólk sem býr í þessu landi og nú er "ÞESS TÍMI KOMINN"!.  Það skiptir akkúrat andskotans engu máli hvað Davíð segir lengur, eða hvað Steingrími J. finnist um það sem Davíð segir eða heldur fram. Okkur vantar lausnir, NÚNA!! AÐ ÞETTA SÉ AÐALFRÉTTAEFNIIÐ SÝNIR HVE FYRIRLITLEGA ER KOMIÐ FYRIR FJÖLMIÐLUM Á ÍSLANDI OG ÞEIM  SEM ÞAR STARFA. Ef hérlendir fréttamenn og konur hefðu samvisku og bein í sínu nefi, gengju þau út á morgun af flestum fjölmiðlum, en það mun sennilega fyrr frjósa í Helvíti en að það gerist. Fjölmiðlafólk á Íslandi er nefnilega að stórum hluta orðið gegnsýrt af gjálífi undanfarinna ára, enda nánast orðin eign þeirra sem áttu þá og hafa spriklað eins og til hefur verið ætlast.

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!!!!! Og ekki einn einasta þingmann í hana sem sat meðan Ísland hrundi!  Við þurfum lausnir en ekki svona djöfullegar uppákomur sem stuðla einungis að því að auka á sundrungu og marklaust karp um "Hver gerði Gerði grikk í sumar".

ENN OG AFTUR.: ÞJÓÐSTJÓRN STRAX! Kæru landar, gefið skít í pólitíkina og allt sem hún hefur "upp á að bjóða". Við þurfum fólk sem tekst á við hlutina af skynsemi, en er ekki blindað af pólitík, enda einungis fundin upp til að þjóna rassgötum þeirra sem hana stunda. Hvort aðstoðin sem við þurfum núna kemur að utan eða innan skiptir litlu máli. Við þurfum aðstoð og verðum að vera snögg að átta okkur á því hvernig við náum best að bjarga okkur.  Eitt er víst.: Við gerum það EKKI með aðstoð hérlendra fjölmiðla. Þar vinnur nú nánast einungis fjarstýrður hópur strengjabrúða sem setur það eitt á prent og út í loftið sem sundrað getur og tvístrað þjóðinni sem mest hann getur, samkvæmt valdboði að "OFAN" enda hagur stjórnenda þar að halda okku óupplýstum. Ef þetta er ekki sori þá veit ég ekki hvað. Skammist ykkar barasta, "fréttamenn" að missa svona af lestinni, meðan Ísland brann.

ÞJÓÐSTJÓRN STRAX!


mbl.is Ósvífin og ódýr afgreiðsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta reddar öllu!

Loksins kom fram á sjónarsviðið tillaga frá Vinstri Grænum, sem bjargað getur heimilum þessa lands. Nú verður hægt að borga af Audi jeppanum hans Páls með þremur afborgunum á ári hjá hinum almenna borgara sem hefur ekkert val um þennan óskapnað. Hvurn andskotann voru menn að fjargviðrast út í Sovétið eiginlega? Ég bara spyr.
mbl.is Gjalddagar útvarpsgjalds þrír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúba norðursins? Nei, Nígería.

Haft var eftir Gylfa Magnússyni viðskiptaráðherra í dag, að ef Ísland ekki greiði Ice-Save skuldirnar eins og búið er að semja um, muni Ísland einangrast í samskiptum sínum við aðrar þjóðir og verða að einhverskonar Kúbu norðursins. Sennilega nokkuð til í því og ekki beint sá stimpill sem þessi þjóð kærir sig um að fá á sig, eða hvað? Kæru Íslendingar.: Hvaða stimpill teljið þið að þegar sé kominn á þessa þjóð? Þegar síðan "reddingarplan" sauðfjárbóndans af Langaneshorninu og hans samverkafólks er skoðað, kemur í ljós að jafnvel þó brennivínsflaskan væri hækkuð í milljón ónýtar krónur per pitlu, bensínið í tíu þúsund kall líterinn og sígarettupakkinn í tuttugu og fimm þúsund kall, myndi það samt ekki duga til að rétta úr kútnum. Þetta dæmi gengur einfaldlega ekki upp og mun aldrei gera. Við erum nú þegar einangruð frá öðrum þjóðum. Við erum nú þegar fyrirlitin og útmáluð sem samansafn svikahrappa og fjárglæframanna. Það er ekki litið á okkur sem Kúbu norðursins. Við erum Nígería norðursins, hvort sem fólki líkar það betur eða ver. Það er lítill munur á kúk og skít og í raun skiptir engu hvaða nöfnum þessi þjóð verður nefnd hér eftir. Íslenskir stjórnmálamenn í öllum flokkum, sem sátu á þingi fram að hruni, eru landeyður og dusilmenni. Samansafn hálfsofandi eiginhagsmunapotara og tækifærissinna sem ekki svo mikið sem hálfa mínútu báru hag heildarinnar fyrir brjósti. Það hafa ekki setið ærlegir þingmenn á Alþingi frá því Vilmundur Gylfason og Eyjólfur Konráð Jónsson voru og hétu. Þeir börðust fyrir hugsjónum sínum, en var ávallt bolað til hliðar, illu heilli, því hinir og þessir armar hinna ýmsu flokka og persóna töldu sér ógnað af þeim. Eftir situr "Hnýpin þjóð í vanda" sem getur ekki einu sinni treyst á ábyrga umræðu í fjölmiðlum, því svikahrapparnir eiga þá flesta meira og minna. Hækkið þið bara allt til andskotans og leggið á okkur  allar þá álögur sem ykkur dettur í hug, þið auma stjórnmálamannahyski. Það kemur að því einn góðan veðurdag að VIРBORGUM EKKI! ÞjÓÐSTJÓRN STRAX, STRAX, STRAX! Svei ykkur sem komuð okkur í þessa stöðu. Ykkar nöfn munu verða rituð í sögubækur Íslands sem lándráðamanna og kvenna sem ýmist sváfuð á verðinum, eða högnuðust á ástandinu. Djöfullinn sjálfur að horfa upp á þetta! 
mbl.is Boðar auknar álögur á áfengi og tóbak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband