Illa lítur þetta út, fyrir hjarðóttaáróðurinn.

 Hver á fætur öðrum fá heilbrygt hugsandi læknar og vísindamenn nú meiri athygli, fyrir skynsamlegar ábendingar og fullyrðingar sínar um þá geggjun sem tröllriðið hefur heimsbyggðinni í tvö ār.

  Heiladauðir stjórnmálamenn og misvel uppkokkaðir talsmenn  og bitlingaþegar lyfjarisanna, falla nú hver af öðrum í bullinu úr sjálfum sér og með þeim munu falla fíflin á fjölmiðlunum.  

 Frjáls fjölmiðlun er dauð. Til þess sáu pôlitískir aumingjar með bæði kjaftvik sín umvafin kjötkötlum pólitískra portkonuspena.

 Hvaða menn og konur sömdu við lyfjarisana um bólusetningar Íslensku þjóðarinnar? Hver, eða hverjir sömdu og hvenær? Hver, eða hverjir eru umboðsmenn þessara veraldarníðinga hér á landi?

 Samningur, þar sem annar afhendir vöru án àbyrgðar og hinn sem við tekur skilyrðislaust, tekur á sig alla ábyrgð hins ábyrgðarlausa framleiðanda????? Þetta getur trauðla talist annað en hörmulegur samningamaður sem svona semur. Hver samdi og hver hagnast?

 Hvenær var samið um þetta og hverjir það gerðu, fáum við sennilega seint að vita, því aumingjarnir á fjölmiðlunum eru ekki lengur fjórða valdið. Þeir eru ríkisstyrkt rusl.

 Aumkunnarverðir móttakarar fréttatilkynninga án einnar einustu spurningar um innihaldið og restin er tekin í google translate og copy paste.

 Sorarestin rennur síðan athugasemdalaust í gegnum útvarp allra landsmanna, með síbyljulegum óttaáróðri, með aðsetur í glæpaleiti.

 Áskriftin er skylda og vei þeim sem ekki borga!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Mæla gegn bólusetningu yngri en tólf ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glópastjórnun veðurfarsans.

 Uppdiktaðir, stefnulausir anarkistar og bjálfar um allan heim, telja að hægt sé að stjórna veðurfari jarðar. Þessi bomba suður af Tonga ætti samkvæmt öllum skölum að slá þau fífl út af borðinu, en það er því miður ekki að fara að gerast.

 Glópahlýnunarbjálfarnir skilja ekki Móður Jörð. Þeir skilja ekki samhengi hlutanna, eða náttúrulegar sveiflur í veðurfari, sem orsakast af öðru tveggja, sólinni og hins vegar náttúruhamförum. Mannskepnan kemur þar hvergi nærri.

 Þetta eina sprengigos í Kyrrahafinu, tekur mannkyn allt þúsundir ára að toppa í “hamfarahlýnun af mannavöldum”, en áfram böðlast leiðniðurtogar heimsins, í allt að því spastískri líkamstjáningu sinni, að telja okkur trú um að mannskepnan sé allt að drepa og það eina sem gagnist gegn því, séu auknar álögur á saklaust fólk og umhverfisskattar út í tómið, sem renna beint i vasa áróðursmeistaranna um hamfarahlýnunina.

 Heimur versnandi fer. Ekki þó eingöngu af mannanna völdum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Hvað gerðist í Kyrrahafinu í gær?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturluð forgangsröðun.

 Á tímum faraldurs og einhverrar verstu fjárhagsstöðu sem höfuðborg Íslands hefur séð, skal skipta um utanhússklæðningu á Grófarhúsi. Sturlaðri verður trauðla forgangsröðun bjálfanna sem stjórna borginni. Sveimhugar, sem svífa um á bleiku skýi, á reiðhjóli, eða í stræ-dó, hafa toppað sig í ruglinu.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Grófarhús fært nær upprunalegu útliti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kenninafn í kyngreiningaróvissu.

 Þegar mjög fámennur hávær hópur er farinn að hafa slíkan slagkraft í allri opinberri umræðu, að ekki megi lengur kalla nýfædd lítil börn drengi eða stúlkur, er eitthvað mikið að. Kenninafn, hvað í ósköpunum er það? Á hvaða leið er samfélagið eiginlega? 

 Er ekki kominn tími til að spyrna aðeins við fótum í þessari blessuðu kynjaumræðu allri, eða verður manni legið á hálsi fyrir að voga sér að hafa orð á þessu? Vel má vera að sá er þetta ritar sé sá eini sem farið er að blöskra þessi endaleysa, en þegar ekki má einu sinni tala lengur um litla drengi og stúlkur, móður og föður, mann og konu, án þess að fá ákúrur fyrir, er fokið í flest skjól almennrar skynsemi.

 Það er einnig sorglegt að sjá hve fjölmiðlar og opinberar stofnanir dansa með, eins og vel sést á þessu nýjasta útspili Þjóðskrár. Enginn þorir lengur að andmæla neinu í þessum efnum og sá, séð eða sáð, sem vogar sér það, er umsvifalaust ataður, ötuð eða atað tjöru og fiðri stráð í umræðunni. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Ekki lengur nýskráð sem stúlka eða drengur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misjafnlega léleg tilraunaefni.

  Þá er það komið á hreint. Tilraunaefnin sem verið er að dæla í heimsbyggðina, eins og enginn sé morgundagurinn, eru misjafnlega léleg að mati utibús Amgen á Íslandi. Ágætt að fá þetta frá fyrstu hendi, sé þetta orðrétt haft eftir þeim sótta og útibússtjóranum.

 Svona í framhjáhlaupi, hvenær má búast við að hin árlega Asíuflensa fari að gera vart við sig?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Janssen verst, AstraZeneca litlu skárra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru ekki bóluefni!

 Bóluefni sem búið er að fullreyna og þróa, jafnvel árum saman, koma í veg fyrir að fólk sýkist. Þau efni sem verið er að sprauta í fólk vegna covid 19 geta því með engu móti talist bóluefni, í skilningi þess orðs. Hér er um mismunandi tilraunakokteila að ræða, sem enginn getur enn sagt fyrir um hvaða fullnaðaráhrif muni hafa til lengri tíma.

 Það er óskiljanlegt með öllu að eini vottur hjarðónæmis sem náðst hefur í þessu veirufári skuli vera hugsunarónæmi hjá opinmynntum fréttasnápum og fjölmiðlum, sem lepja upp hvert einasta orð sem mokað er í þá af yfirvöldum og embættismönnum, með dassi af athugasemdum frá útibússtjóra lyfjarisanna hér á landi. Varla einnar einustu spurningar spurt í öllu ferlinu.

 Nú á síðan að fara að fikra sig niður aldurshópana með þessu tilraunaglundri, sem enginn getur sannað eða afsannað að geri eitthvað gagn. Hver á að njóta vafans, ábyrgðarlausir lyfjarisar, eða fólkið í landinu? 

 Er ekki rétt að stíga aðeins niður fæti og doka við um stund, áður en farið er að dæla í ungviðið óræðum lyfjakokteilum? Er fólk orðið algerlega sturlað?

 Góðar stundir, með áhyggjum að sunnan.


mbl.is Samþykkir bólusetningu barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðarlegt svar.

 Það skal Páli til tekna talið, að greina satt og rétt frá.

 Það vantar mannskap, en ekki tæki eða tól, til að sinna því sem sinna þarf á þjóðarsjúkrahúsinu í Fossvogi.

 Í ofanverðri Vatnsmýrinni, neðan við gamla Landspítalann rís nú mannvirki mikið. Svo mikið, að hægt væri að pakka sjúkrahúsinu í Fossvogi tvisvar sinnum inn i það, í fermetrum talið.

 Aðeins ein spurning.: Hverjir eiga að vinna þarna? Spyr nú barasta svona að rælni. Það virðist nefnilega ekki vera hægt að manna helmingi minni vinnustað í dag. 

 Eitthvað sem ekki er komið fram um reksturinn, eða er Amgen búið að taka hluta húsnæðisins á leigu og fjármagna svona pínulítið fyrirfram, með Kára klára í forsvari?

 Spyr sá sem ekki veit.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Álagið á LSH ekki vegna kórónuveiru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn skaði af því.

 Ekki verður með góðu móti séð að viðvera dofinna, ríkisstyrktra fjölmiðla hafi haft mikið að segja á þessum upplýsingafundum. Lítið spurt og flestöllu sem sérfræðingarnir segja meira og minna skellt orðréttu út í cosmóið.

 Það er hinsvegar blússandi gangur í að fylgjast með töskukaupum hálfberrassaðra svokallaðra áhrifavalda í útlöndum, hinum og þessum að opna sig um allan fjáran og öðru einskisnýtu þvaðri og blaðri.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Fjölmiðlar mæta ekki á upplýsingafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru margir veikir?

 Endalaust er staglast á fjölda greindra smita. Daginn út og daginn inn, nú í rúmt ár hefur að mestu verið sagt frá fjölda greindra smita. Samkvæmt fréttum, sem lítið fer fyrir, eru 97% þeirra sem nú greinast annað hvort með lítil og jafnvel engin einkenni. Hve margir eru alvarlega veikir er varla nefnt af hörmulegum fjölmiðlum, sem opinmynntir gleypa allt og smella á prent eða út í cosmóið, án svo mikils sem spyrja einnar einustu spurningar. 

 Fyrir rúmu ári síðan fullyrti útibússtjóri Amgen á Íslandi að það gæti tekið allt að sjö ár að þróa bóluefni gegn covid19. Sjö mánuðum síðar var farið að dæla tilraunalyfjumm í hundruði milljóna manna um allan heim. Almenningi hér á landi talin trú um að ef aðeins nógu margir létu dæla í sig óvissuglundrinu, væri möguleiki á því að hjarðónæmi kæmist á um eða uppúr miðju því sumri sem nú er brátt á enda. Búið er að bólusetja talsvert umfram það sem sagt var þurfa til hjarðónæmis, en hver er staðan í dag? Jú, nánast komin á byrjunarreit aftur. Fjallað er um þessa veiru, eins og um drepsótt sé að ræða, þegar fyrir liggur að yfir 95% þeirra sem fá veiruna, verður ekkert meint af, umfram venjulega flensu. Í hverjum einasta fréttatíma, nánast hvers einasta fjölmiðils heims hefur verið hamrað á hörmungunum sem fylgja þessari veiru, allan sólarhringinn í rúmlega ár! 

 Það létust fleiri úr berklum í fyrra, en úr covid19. Það létust fleiri úr hungri i fyrra, en úr covid19. Lækning er til fyrir hvoru tveggja, en er sennilega ekki eins fjárhagslega hagstæð og að geta gert stóran hluta mannkyns háðan stöðugri lyfjaglundursinngjöf, árið um kring næstu árin, án þess að bera nokkra ábyrgð. 

 Fyrir rúmu ári fullyrti sóttvarnarlæknir Íslands að andlitsgrímur veittu falskt öryggi og gerðu ekkert gagn. Nú eru þær enn og aftur orðin skilda. Hvað breyttist? Hver kippti í spottann og kom ljósinu fyrir sótta?

 Þessi geggjaða atburðarrás er langt komin með að gera almenning sturlaðan úr hræðslu. Þau sem mest bar á í upphafi og fengið hafa jafnvel orðu fyrir, verða minna og minna sannfærandi með hverjum deginum sem líður. 

 Í dag stendur varla steinn yfir steini af því sem lagt var upp með, en almenningur á bara að kyngja óhroðanum öllum og steinþegja og gegna?

 Ekki mikið lengur!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is „Ekki það gagn sem við höfðum vænst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorólfur, Kàri og co.

 Hvað er hjarðónæmi?

 Er því náð við 60% eða 80%  þjóðarinnar bólustt?

 Bólusett með hvaða sulli sem er? Tvisvar, þrisvar eða oftar?

 Hvar eru fjölmiðlar og aumingjarnir sem þar starfa?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Þórólfur vildi tveggja metra reglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband