Þú ert orðin/n gamall/gömul þegar.....

25 vísbendingar um að þú ert að verða gamall.
 
Þú veist hvenær þú ert að verða gamall þegar...
 
Þú ert sofandi en allir halda að þú sért dáinn.Þú ert með partí og nágrannarnir verða þess ekki varir.Þú getur verið án kynlífs en ekki án gleraugna.Þú ferð oftar í bakinu en þú ferð út.Þú ert hættur að draga inn magann sama hver kemur inn.Þú kaupir áttavita í bílinn.Þú ert stoltur eigandi sláttuvélar.Besti vinnur þinn er með stúlku sem er helmingi yngri... og er ekki að brjóta nein lög.Handleggirnir á þér eru of litlir til að fletta blaðinu.Þú syngur með laginu í lyftunni.Þú vilt frekar fara í vinnu en að vera heima lasinn.Þér finnst gaman að hlusta á aðra tala um spítaladvöl.Þér finnst kaffi vera besti drykkur í heimi.Fólk hringir í þig kl. 9 og spyr "var ég að vekja þig "?"Þú svarar spurningu svona: "vegna þess að ég sagði það!"Endinn á bindinu hjá þér kemur hvergi nálægt buxnaröndinni.Þú ferð með málmleitartæki á ströndina.Þú ert í svörtum sokkum þegar þú ert í sandölum.Þú manst ekki eftir því hvenær þú lást á gólfinu til að horfa á sjónvarpið.Þú ert með meira hár í eyrunum en á höfðinu.Þú talar um "gott gras" en þú ert að tala um blettinn hjá nágrannanum.Þú verður vondur þegar talað er um ellilífeyrinn.Þú fékkst þér gervihnattadisk til að sjá veðurstöðina.Þú getur farið í keilu án þess að drekka.
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Ég er greinilega unglamb enn,

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 17.4.2008 kl. 10:06

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Fanney Björg Karlsdóttir, 17.4.2008 kl. 11:06

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

já sniðugt! Hvernig get ég snúið þessu við?

Edda Agnarsdóttir, 17.4.2008 kl. 13:31

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sjúkket hvar ég er fegin að vera ung ennþá. 

Ásdís Sigurðardóttir, 17.4.2008 kl. 14:58

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Marta B Helgadóttir, 17.4.2008 kl. 21:09

6 Smámynd: Brattur

... ég heppinn... drekk ekki kaffi (bara te) og svo er ég alltaf í hvítum sokkum...

Brattur, 17.4.2008 kl. 21:28

7 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þetta er hann ég sem er lýst þarna, frábært þetta með of stutta handleggi til að lesa blaðið.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 17.4.2008 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband