Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.4.2020 | 00:13
Maðurinn sem féll.
Í gær sá ég mann falla. Hann féll ofan af fjórðu hæð nýbyggingar og lenti bak við skúr, hvar ég sá ekki meir. Staddur í kaffi hjá foreldrum mínum á efstu hæð nálægt atburðinum og sá þetta því vel. Sjón sem aldrei hverfur mér úr huga. Móðir mín nánast missti undan sér allan kraft og hrópaði hringdu í 112.
Hringdi og svo sannarlega var brugðist vel við. Maður lifandi! Innan örfárra mínútna voru komnir þrír sjúkrabílar, þrír lögreglubílar og fimm mótorhjjól á staðinn.
Sá sem féll, var fluttur mikið slasaður á sjúkrahús, en síðan hefur ekkert heyrst. Ekki einu sinni af atburði þessum. Ekki í nokkrum einasta fjölmiðli, fyrir utan örstutt innslag í sexfréttum ruv, þar sem talað var um atvikið í austasta hluta höfuðborgarsvæðisins.
Veit ekki með ykkur, en getuleysi og aumingjagangur hérlends fjölmiðlafólks sem bíður eftir fréttum frá öðrum, eða getur ekki annað en apað eftir hverjum öðrum, er farið að fara virkilega mikið í taugarnar á mér.
Rífið hausinn út úr sjálfumglöðu rassgatinu á ykkur, fjölmiðlafólk. I stað þess að búa til fréttir, apa eftir erlent kjaftæði og hrópa eftir ríkisaðstoð, vinnið vinnuna ykkar! ´´Copy paste´´ er ekki fréttamennska.
Að fylgjast með og vera á staðnum er það hins vegar, ef rétt og hlutlaust er frá sagt.
Það er fréttamennska.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.4.2020 | 00:41
WHO.
Hvernig væri að einhver fréttamaður, já eða fréttamiðill tæki sig nú saman í andlitinu og upplýsti fávísan almenning um hlutverk og skyldur WHO? Er þessari stofnun ætlað að hafa eftirlit með heilsu og heilsuvá heimsins, með virku eftirliti, eða er henni einungis ætlað að vinna úr tölum frá meðlimum Sameinuðu Þjóðanna?
Allir viti bornir menn vita að tölur fra Kína í þessum faraldri, eru alger markleysa. Alger. Þær standast enga skoðun, sama hvernig rýnt er í þær. Þær eru svo stjarnfræðilega úr öllu samhengi við allar tölur annarsstaðar frá, að undrun sætir að einhver skuli trúa þeim. Kína er upphafsstaður veirunnar og þar býr fast að einum og hálfum milljarði manna. 1.500.000.000.- stykki! Að á Ítaliu hafi fleiri látið lífið en í Kína er svo absúrd, að engu tali tekur.
Það er pínlegt að fylgjast með fasi eins valdamesta manns veraldar, trumpinu. Þar fer sjálfumglaður raunveruleikaþáttarstjórnandi sem sér fátt eitt annað en eigið ágæti og hagar sér eins og kjáni, í nánast öllum mannlegum samskiptum. Honum kann þó að ratast rétt orð á munn, af og til, þrátt fyrir trúðsháttinn.
Who is WHO?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Trump hjólar í WHO og hótar að stöðva fjárframlög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.4.2020 | 00:51
Er hægt að verða ömurlegri þingmaður?
Ekki liggur nú mikið eftir í kolefnisfótspori pírata Alþingis annað en fyrirspurnarglatt fólk á mislitum sokkaleystunum og malbikunarjökkum, sem vilja upplýsta umræðu ef hún kemur ekki of mikið við þau sjálf.
Allir vita hver staðan er.
Þegar bjálfar leggja það til sem allir sjá að er rökrétt og verður gert, hverfa vonandi mislitu sokkleystarnir og malbikunarjakkarnir af Alþingi Íslendinga.
Sú stofnun á alls ekki pírata skilið.
Kominn tími til að þetta hyski hverfi af vettvangi í næstu kosningum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Vill að launahækkun þingmanna verði felld niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.4.2020 | 02:32
Fréttir frá Jemen.
Í sturðlaðri umfjöllun vestrænna ríkja, um eigin veiruharm sem barst frá Kína, gleymist harmur margra, vítt um veröld víða.
Það virðist sorglega lítið koma við samvisku vestrænna ríkja, það sem stendur þeim fjærst. Jemen, Súdan, Írak, Afríka öll, Afganistan og hvað þetta nú allt heitir. Sádarnir fá að bomba Jemen að vild, með trumpsins nýjustu tólum( framleiddum af Rockefellurum og Rotcschildunum) og öllum er slétt sama. Ekki nema hundrað þúsund dauðir þar og hér og sennilega þrefalt það að farast úr hungri.
Veira skæð knýr dyra í heimalandi þeirra, sem láta sig þetta litlu varða.
Hvað gerist þá?
Jú, doðinnn og afskiptaleysinu gagnvart hörmungum þeirra, sem þjáðst hafa áratugum saman er kastað enn lengra út í skurð. Not my case.
Þessu tuði mínu er af veikum mætti lítilsmegnum manni ætlað að vekja athygli á því, að í afskiptaleysi okkar af bræðrum okkar og systrum úti í hinum stóra heimi, sem glímt hafa við veirur manngerðar í formi hernaðar og farsótta, hungurs og annarar vosbúðar, höfum við sem höfum það best, ef til vill gott af því að finna harm á eigin skinni, til tilbreytingar.
Svona er það að að lenda í krísu. Svona er það að horfa upp á ættingja sína deyja, svona er það að horfa upp á börn sín deyja, svona er það að missa öll tök á ástandinu!!! og hafa ekkert um það að segja.
Megi allar góðar vættir gefa landsmönnum gleðilega páska og tíma til að athuga sinn gang.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Fjórir blaðamenn dæmdir til dauða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2020 | 04:13
Helmingur einkennalaus.
Ef einhver er einkennalaus og smitandi í einhverja daga, eftir að hafa tekið pestina, hverjar eru þá líkurnar á því að sá hinn sami veikist alvarlega?
Er þetta faraldur, umgangs eða dauðapest?
Hvað létust margir úr inflúensu í fyrra, já eða einhver ár á undan, miðað við árið í ár?
Tuðaranum dylst ekki alvarleiki málsins, en við hvað er verið að miða við?
Í lockdown hagkerfa heimsins eru manneskjur skikkaðar til að halda sig innandyra, hverjar svo sem þeirra aðstæður eru. Hér á Íslandi er þetta tiltölulega lítið mál, svo lengi sem allir fari að tilmælum þeirra sem best eiga víst að vita. Úti í hinum stóra heimi eru hlutirnir ekki svona einfaldir.
Á Indlandi hefur öllum verið skipað að halda sig innandyra í hreysum sínum, hvar mannleg eymd er alger og til skammar. Sé einn smitaður í kofa sem hýsir 15-20 manns, sýkjast allir. Í fátækrahverfum Suður- Ameríku, svo ekki sé nú talað um Afríku alla deyja sennilega margfalt fleiri á næstu dögum og vikum, en nokkurn hefði órað fyrir. Ekki úr covid-19, heldur hungri, tilneyddri nánd við sýkta og vosbúð.
Hvers vegna tók viku að greina dauðdaga erlenda ferðamannains, sem lést á Húsavík, meðan daglega er fullyrt að svo og svo margir hafi látist á einum degi úr þessari veiru? Fróðlegt væri að heyra af því.
Þetta er að verða dulítið ruglingslegt allt saman, en sennilega vita sérfræðingarnir alltaf allt, öðrum fremur. Eða hvað?
Getur verið að lækningin sé farin að kosta meira en faraldurinn, í mannslífum?
Fávís tuðari bara spyr og skilur hvorki upp né niður í þessu lengur.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Um helmingur smitaðra einkennalaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.4.2020 | 06:39
Ó Þórhallur, ó Laddi!
Á tímum veiru, sem engum datt í hug að herjaði með svo miklum harmkvælum á mannkyn, þar sem allir þurfa að standa saman, dettur ekki þessi þáttaröð Jarðarförin mín í fangið á okkur!
Þórhallur, eða Laddi gersigrar allar tilfinningar og situr eftir sem snillingur.
Þvílíkt performans! Snillingur, án nokkurs efa. Takk fyrir mig.
Ef ætti ég fleiri orð um frammistöðu Þórhalls í þessum þáttum, myndi ég glaður valta þeim út í kosmóið. Mig skortir hinsvegar orð yfir frammistöðu hans!
Stærsti sigur í áratugi í leiklist, svo falleg þótti mér sagan af Mín jarðarför vera.
Þorhallur Sigurðsson, þú ert óborganlegur.
Takk fyrir, mig elsku hjartans karlinn minn!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
8.4.2020 | 21:58
Er hvað sem er keypt frá Kína?
Þessi frétt er talsvert sláandi, svo ekki sé meira sagt, eigi hún við rök að styðjast en sé ekki falsfrétt.
Ef þetta er satt.:
Getur verið að nánast hvað sem er sé keypt frá Kína, svo lengi sem það "lúkki" vel og sé nógu djöfull ódýrt??
Að nú sé verslað við birgja, sem alla jafnan er ekki verslað við?
Hvað felst í þessum orðum? Magn mikilvægara en gæði? Hvað er í húfi?
Veiran er uppruninn í Kína. Megnið af þeim búnaði, sem þarf til að berjast við hana, er framleiddur í Kína. Ráðleggingar koma frá Kína, sem trauðla er trúandi.
Feluleikurinn og lygarnar í upphafi faraldursins kom frá Kína.
Sá sem mestan hag hefur af eigin subbuskap, er Kína. Það fær enginn að vita af því, þó hverfi milljón manns í Kína. CCP sér til þess.
Ömurlegt er að horfa upp á vestræn stórfyrirtæki flytja alla sína framleiðslu í þessa forarvilpu CCP, skiljandi samlanda sína eftir útsetta fyrir veirunum, sem sífellt koma frá Kína!
5G og Huaway, jíhaa! Eigum við að ræða það?
Það virðist engu máli skipta hvað kemur frá Kína. Það er allt keypt og í versta falli gleypt, með tilheyrandi afleiðingum. Verði ykkur að góðu.
Sé þetta falsfrétt, er beðist velvirðingar á rausinu og bið ég kærlega að heilsa og óska öllum gleðilegra Páska. Skil ekki hvað maður er að æsa sig yfir þessu.
"Over and out"
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Grímur frá Kína mæta ekki kröfum í Finnlandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2020 | 02:43
Algert gagnsleysi Sameinuðu Þjóðanna.
Það kemur æ betur í ljós, hvílík og gagnslaus fjármagnsholræsi Sameinuðu Þjóðirnar (UN) eru.
Öryggisráðið fundar á fimmtudaginn, tæpum mánuði eftir að veröldinni allri var orðið ljóst, hvað hér er á ferðinni. WHO vissi það fyrr.
Milljarðatugir, eða hundruðir, eru greiddir af aðildarlöndum ár hvert, í þetta duglausa embættismannahreiður, sem yfirleitt er síðast á vettvang.
Viljið þið ræða borgarastyrjöldina í Júgóslavíu?
WHO sleikir rassgatið á uppsprettulandi faraldursins eins og hundur skít af skó húsbónda síns og Öryggisráðið hugar að fundi á fimmtudaginn! Újé, manni verður eiginlega flökurt að horfa upp á þennan ósóma.
ESB og UN eru einhver skelfilegustu dæmi samtímasögunnar um mikil og algerlega gagnslaus bákn. Margir embættismenn og konur, sem ávallt koma of seint á svæðið og gera þar af leiðandi lítið sem ekkert gagn hinum dauðu. Svona eins og líkskoðarar og krufningsteymið gagnast þeim sem er dauður. Alltaf aðeins of sein þegar vá er fyrir dyrum, en oftast fremst, þegar tefja skal venjulegt fólk og fyrirtæki í daglegu amstri sínu, með embættismannakjaftæði, reglugerðum, tilskipunum og öðru déskotans rugli.
Andskotinn bara, að horfa upp á fjárausturinn í þessar botnlausu gryfjur embættismannaelítunnar.
Það mætti kaupa nokkrar öndunarvélar fyrir það sem sóað er í bjúrókratið!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Öryggisráðið fundar um faraldurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2020 | 23:54
Heimurinn og ég.
´´ Þess minnist ég, að mér og þessum heimi
kom misjafnlega saman fyrr á dögum.
Og beggja mál var blandað seyrnum keimi,
því báðir vissu margt af annars högum.
Svo henti lítið atvik einu sinni,
sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti:
að ljóshært barn, sem lék í návist minni,
var leitt á brott með voveiflegum hætti.
Það hafði veikum veitt mér blessun sína
og von, sem gerði fátækt mína ríka.
Og þetta barn, sem átti ástúð mína,
var einnig heimsins barn og von hans líka.
Og við, sem áður fyrr með grimmd í geði
gerðum hvor öðrum tjón og falli spáðum,
sáum loks í ljósi þess, sem skeði,
að lífið var á móti okkur báðum. ´´
Steinn Steinarr.
2.4.2020 | 00:43
Ó, þú sturlaða veröld!
Í sýrlandi hafa fleiri fallið en sem nemur öllum íbúum Íslands. Í Afganistan og Írak eru tölurnar á reiki, en án efa svo stórar, að sennilega mun aldrei fást úr því skorið hve margir féllu og falla enn. Í Jemen eru hundrað þúsund manneskjur fallnar í átökum, sem Saudi Arabía bombar dag hvern, með stuðningi BNA, í formi nútímavæddustu drápstóla sem völ er á. Landið er við það að standa frammi fyrir algerri eyðingu, en enginn tekur eftir því lengur.
Milljónir farast úr hungri og vosbúð ár hvert, en vesturlönd snúa sér ávallt á hina hliðina. Stinga dollar í söfnunarbauka og telja samviskunni borgið. Svona yfirleitt í kringum jólin, svo eyðsluruglið verði ekki eins áberandi. Fínt að geta gefið af sér, ekki satt? Þetta er jú að gerast langt frá okkur!?
Fjölmiðlar vesturlanda hafa algerlega gleymt öðrum hörmungum heimsins, því veira hefur gert strandhögg inn í hin helgu vé þægilegheitanna. Það fer nánast sami tími í fréttaflutning af hörmungum mannskepnunnar í þessum faraldri og ástandinu á hlutabréfamörkuðum! Er hægt að gerast geggjaðri?
Það er nú einu sinni þannig, að enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hefur. Það þarf ekki alltaf púður og skotvopn, til eyða samfélögum, eða lama þau. Það er hægt að stöðva loftárásir, en skaðleg veira er öflugri en nokkurt vopn. Hvernig hún fer af stað, er hinsvegar rannsóknarefni.
Í Afríku, Indlandi og öðrum fjölmennum svæðum, munu á næstu vikum og mánuðum, ef fram fer sem horfir, falla fleiri manneskjur, en í öllum stríðum og fellum mannkynssögunnar til þessa.
Tough times´s ahead
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Fjöldi smita nálgast milljón | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |