Forseti Alþingis.

 Síðuhafi telst seint til aðdáenda Pírata. Það hefur hinsvegar gerst af og til að þeir mæla orð af vörum sem ´´meika´´ einhvern ´´sens´´. 

 Ef þessir píratar gerðu ekki annað en að klæða sig eins og fólk á Alþingi, í stað þess að koma þar fyrir almannasjónu sem skólausir flækingar í malbikunarjökkum gæti hugsanlega meira mark verið tekið á því sem þeir telja sig hafa fram að færa. Nóg um það.

 Í hásæti Alþingis situr maður sem gert hefur þessari þjóð meira böl en hægt er að meta. Það ætti engum að koma á óvart lengur þó hann ljúgi og þjösnist áfram í vissu eigin ágætis og óskeikulleika. Hann hefur jú setið lengst allra á jötunni, mergsjúgandi samborgara sína fyrir ansi lélegt framlag á móti. Ef færi fram skaðamat á frammistöðu hans, yrði niðurstaðan skelfingin ein. Hann hefur margoft logið. Hann hefur marglogið kinnroðalaust úr ræðustól Alþingis og nánast hvar sem honum hentar gegnum árin. Hann lýgur enn og djöflast eins og hann telji sig eiga settið. Þistilfjarðarkúvendingurinn í slagtogi við gránu gömlu hefur sennilega kostað almenning meira en veiran, sem nú ríður húsum. Ömurlegri stjórnmalamann er trauðla hægt að hugsa sér.

 Að hann skuli verma hásæti Alþingis er gjaldfelling á þeim sem það samþykktu.

 Að Sjálfstæðismenn á Alþingi skuli komnir í þá stöðu að verja þennan óskapnað, sætir furðu og mun koma þeim í koll.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Sakar Steingrím um að ljúga og misnota aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessu um hann og Gránu gömlu er ég mjög sammála nafn minn. Þessi maður tekur alltaf búsetustyrk eins og hann búi á Gunnarsstöðum en hefur búið flott í Reykjavík í áratugi.Skítlegt eðli er að finna hjá fleirum en Davíð

Halldór Jónsson, 22.4.2020 kl. 13:32

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Veira vermir hásæti Alþingis nafni. Veira af verstu sort.

Halldór Egill Guðnason, 24.4.2020 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband