Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
25.8.2016 | 02:32
Nöturlegt.
Það er varla hægt að koma orðum yfir það sem í þessari frétt kemur fram. Opnu beinbroti, eins og blessað barnið þjáist af, fylgir nánast óbærilegur sársauki, við hina minnstu hreyfingu. Það þekkir tuðarinn vel, enda margbrotinn gegnum tíðina. Að þurfa að bíða dögum saman eftir aðgerð, er óskiljanlegt. Það duga engar afsakanir eða útskýringar. Árið er 2016 og samkvæmt því sem okkur er tjáð, höfum við sjaldan, ef í nokkurn tíma, haft það eins gott. Lilju Líf og foreldrum hennar sendir tuðarinn afsökunarbeiðni, fyrir að hafa ekki staðið sig betur í að velja fólk til landsstjórnarinnar, auk þess að óska þessari prinsessu góðs bata.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Óeðlilega langur biðtími |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2016 | 00:16
Norðurljósin mætt!
Nú um miðnættið sáust norðurljósin á himni, hér yfir og sunnan við Reykjafell í Mosfellsbæ. Ekki er tuðaranum kunnugt um hvort þetta er snemmt, eður ei, en ekki man ég eftir því að hafa séð þau í ágúst áður.
Göðar stundir.
7.8.2016 | 03:29
Hefur einhver "blaðamaður" spurt starfsmenn?
Tvöþúsund og sjö fnykinn í blaðamennsku leggur nú um langar leiðir. Á ný taka húðlatir blaðamenn við fréttatilkynningum fyrirtækja og slengja þeim á síður fjölmiðla sinna, án nokkurra athugasemda og án nokkurra spurninga. Ömurleg vinnubrögð og stéttinni til ævarandi skammar. Rífið þið ykkur upp á rassgatinu, blaða og fréttasnápar landsins og segið fréttir, í stað þess að búa þær til, eða það sem öllu verra er, láta mata ykkur eins og ómálga börn, eða bjálfa!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Lyfjaverksmiðjunni lokað á næsta ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.7.2016 | 03:27
Úrsögnin verður gæfuspor.
Úrsögn Bretlands, úr evrópusambandinu, verður mikið gæfuspor fyrir efnahag þeirra. Það gæti tekið eitt til þrjú ár fyrir þá að átta aig á því. Eftir situr ömurleg hjörð blýantsnagara og einskisverðra kerfis og möppudýraafætna, sem gert hefur Bretlandi lítið gagn, á undanförnum áratugum. Allt á kostnað skattborgaranna. Bretland er ekki að fara eitt eða neitt, hvað svo sem "kúbunorðursinsáróðursgöbbelsarnir"segja.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Vilja viðskiptasamning við Bretland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 03:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2016 | 00:37
Kóngulær.
Mikið er tuðarinn sammála skordýrafræðingnum, um köngulær. Hvað gæti hugsanlega verið dásamlegra en sjá eina renna sér niður af þakskegginu, aðeins örfáa sentimetra frá manni, eða jafnvel á mann, þar sem legið er í algerri slökun á pallinum? Fylgjast með henni spinna vef sinn, upp og niður, út og suður og skapa eitthvert fallegasta prjónaverk náttúrunnar, köngulóarvefinn. Köngulær eru þjóðþrifa skepnur og undursamlega hannaðar. Ef aðeins verkfræðilegi hlutinn er skoðaður, í uppbyggingu einnar köngulóar, kemur svo margt ótrúlegt í ljós, að það tæki of langan tíma að telja upp. Einungis þráðurinn sem köngulóun spinnur er þvílíkt snilldarverk, að enginn ætti að hafa rétt á því að slíta hann, eða deyða framleiðandann. "Óþægindi"nútímamannsins eru aumt yfirklór. Tuðarinn ætti ekki annað eftir en að ráðast á spunameistarann.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Köngulær eru aldrei plága |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2016 | 02:43
Matvælastofnun og gæludýr.
Hvers vegna í veröldinni er Matvælastofnun, já Matvælastofnun, ætlað að sjá til þess að meðferð gæludýra sé með lögbundnum hætti? Matvælastofnun? Hvað næst, í þessu kexruglaða embættismannakerfi, sem hægt og örugglega er éta innviði samfélagsins inn að beini, með aðgerðarleysi sínu, skrifræði og óskilvirkni. Endalausir blýantsnagarar, sem haga sér sem smákóngar, til að telja samfélaginu trú um að þeir séu ómissandi, tröllríða kerfinu. Getuleysi, aðgerðarleysi og doði, er það sem blasir við í þessu máli. Greinilega fársjúkur einstaklingur, sem ef til vill óafvitandi þrífst á dýraníði, virðist geta gert það sem honum eða henni sýnist, án þess að til þess skipaðir eftirlitsaðilar geri nokkurn skapaðan hlut. Úrræðaleysi yfirvalda algert og embættismenn ekki starfi sínu vaxnir, eða nenna ekki að sinna skyldum sínum. Eitthvað mikið er að, en þar sem kerfið er orðið sjálfala og nánast ríki í ríki sínu, mun svona málum aðeins fjölga. Þökk sé blýantsnögurunum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Áður uppvís að dýrasöfnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2016 | 01:34
"Virðing fyrir leiknum", í boði Borgunar.
Kortafyrirtækin Borgun og Valitor hafa á undanförnum árum verið dæmd til að greiða "sáttagreiðslur" vegna markaðsmisnotkunar og vanvirðingar við sinn eigin leik, upp á milljarða króna. Hræsnin, viðbjóðurinn og óvirðingin sem þessi fyrirtæki telja sig geta hent aftur fyrir sig, með stuðningsyfirlýsingum og fjármokstri í auglýsingar, ásamt einhverjum stuðningi við landslið karla í fótbolta, sem greitt er af kortanotendum, ætti að fá flest hugsandi fólk til að æla. Það ælir hinsvegar enginn og flestir halda áfram að eiga viðskipti við þessi virðingarlausu fyrirtæki, sem víla ekki fyrir sér samráð og undirferli í sínum leik. Þar ríkir enginn heiðarleiki. Þar gengur leikurinn út á undirferli og skepnuskap.
Held ég æli bara einn, en áfram Ísland!!!!!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2016 | 00:04
Láta hann borga og setja reglur!
Alveg er það makalaust hve stjórnvöld, ferðaþjónustufyrirtæki og nánast allir, sem koma að ferðamannaiðnaðinum eru gjörsamlega vanbúin fyrir alls kyns uppákomum og lausnum, er varða afvegaleidda ferðamenn. Hingað til lands getur nánast hver sem er komið og gert nánast hvað sem honum sýnist. Týnst, villst eða ratað illa og allir eru tilbúnir að leita. Fara úr vinnu, missa tekjur og fá síðan aðeins klapp á bakið. Þetta er ekki sanngjarnt og kominn tími til að láta rífa í buddur þeirra sem skilja ekki alvarleikann. Upplýsa ferðamenn um að allt vapp utan áður skipulegra ferða geti kostað þá skildinginn sinn.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Göngumaðurinn fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.6.2016 | 23:55
Hverjum er ekki andskotans sama?
Fleiri orð þarf sennilega ekki að hafa um þennan farsa.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Hafa selt hlut sinn í Austur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.6.2016 kl. 05:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2016 | 23:46
Byrjunarreit hvers?
Það eina sem vantar á eða í hausinn á Cameron, er grá hárkolla. Gott ef einnig væri hægt að koma fyrir rauðleitum skalla úr Þistilfirðinum með í óskapnaðinn. Skattahækkanir og annar áróður, sem kemur við pyngju kjósenda, er sterkur. Staðeyndin er hinsvegar sú, að með úrgöngu úr þessum óskapnaði, sem Evræpusambandið er, væri hægt að lækka skatta og verja landamærin, eins og um sjálfstæða þjóð væri að ræða. Allt blaður um Kúbu norðursins og Norður Kóreu virkar vonandi ekki lengur. Kostnaður Breta af veru sinni í viðbjóðnum er margfaldur á við það sem fæst til baka. Vonandi sér almenningur í Bretlandi í gegnum þvæluna í Þistilfjarðarkúvendingsjókuhaugnum Cameron.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Bretar færu aftur á byrjunarreit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)