Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
4.7.2017 | 15:15
" Kill and cook in the wild "
Svona gætu slagorðin verið fyrir markaðssetningu á náttúru Íslands. Öruggt að trekkti að og seldist vel. Síðan mætti einnig bæta við " Take a shit, where ever you like, down town, or in the wild ".
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Villimennskutexta Kúkú Campers breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.6.2017 | 07:14
Ábyrgðarlaust blaður fjármálaráðherra.
Ef embætti Ríkislögreglustjóra býr yfir vitneskju um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, greinir embættið að sjálfsögðu ekki frá því í fjölmiðlum. Búi fjármálaráðherra landsins yfir þess háttar upplýsingum, eins og hann hefur fullyrt opinberlega, hlýtur hann að teljast vanhæfur með öllu, með því að greina frá þeim. Búi fjármálaráðherra ekki yfir neinum óyggjandi upplýsingum, um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, en segist samt vita af því, er hann einnig algerlega vanhæfur sem ráðherra og ber að víkja nú þegar.
Það er sama hvernig litið er á þetta mál, Benedikt Jóhannesson er ekki starfi sínu vaxinn og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér. Það mun hann hinsvegar að sjálfsögðu ekki gera. Hann mun áfram böðlast fram veginn, með öllum mögulegum ráðum til að sverta lögeyri landsins, með það að markmiði að eyða honum af yfirborði jarðar, svo moka megi Íslandi í gin gráðugra bjúrókrata í Brussel. Þar dreymir ráðherrann um sína fjöl, á skattfrjálsum launum og feitum eftirlaunum, að þjónkuninni lokinni.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Kannast ekki við málið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2017 | 01:36
Leggja niður gjaldtökuhliðið!
Gísli Gíslason nefnir það ekki í þessu viðtali, þar sem hann mærir norðmenn og færeyinga fyrir þeirra göng, að hvergi nokkursstaðar, hvorki í Noregi né Færeyjum, þarf að stoppa til að borga í hliði, hvorki áður eða eftir að ekið er um göngin. Allt er myndvætt og "sjálfrukkandi". Á álagstímum er það gjaldtökuhliðið sem veldur mestu töfunum í Hvalfjarðargöngunum. Umferð gæti hæglega runnið allt að tvisvar til þrisvar sinnum hraðar í gegn, ef ekki væri fyrir stoppið til að borga.
Nýjustu tækni í málið, burtu með hliðið og sjáum hvað setur.
Koma svo Gísli!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Ný göng óhjákvæmileg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2017 | 18:13
Samreisn?
Það slitnar ekki slefan á milli forkólfa Vireisnar og Samfylkingarinnar, þessa dagana. Varla flettandi blöðum öðruvísi en lesa fréttir af Viðreisnarburgeisum að skrifa undir innantómt loforðakjaftæði og lygaplögg með antíbílistanum, eða þá núna þetta! Fyrrum einsatkvæðisformaður einsmálsflokksins orðinn formaður Tryggingastofnunar. Bíðið nú aðeins hæg. Formaður? Annað hvort er blaðasnápurinn sem reit þessa frétt kjáni, eða Árni Páll orðinn formaður Tryggingastofnunar. Er hann þá forstjóri? Nei, hann er sennilega titlaður formaður stjórnar Tryggingastofnunar og þar af leiðand stjórnarformaður, ekki satt? Hvað um það.
Það er grugg í pípunum meðal Viðreisnar og deginum ljósara að þar á bæ ætla menn sér í borgarstjórn í næstu kosningum, með samfó og síðan taka landið allt í næstu þingkosningum, einnig með samfó. Sennilega verður Skrækur Skellibjalla helsta tromp Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum, ef að líkum lætur, mávunum á Tjörninni til mikils hugarangurs. Mávastofninn rétt nýbúinn að ná sér eftir "The Reykjavík Grand Pond Seagle Massacre" Skellibjöllunnar, þá er hann sat í Borgarstjórn, já eða sat ekki. Um það má deila. Hann var víst ansi mikið fjarverandi, en það er nú allt önnur saga.
Viðreisn er viðsjárvert stjórnmálaafl, sem einskis lætur ófreistað að koma Íslandi undir járnhæl fröken Merkel, innan vébanda fjórða ríkisins og Stór-Þýskalands. Viðreisn verður hinsvegar ekki kápan úr því klæðinu, þó hún sleiki sér upp við Samfó. Úr því verður aldrei annað en einhverskonar samreisn, hvernig svosem ber að skilja það. Það hef ég reyndar ekki hugmynd um, enda einungis að losa um smá tuðhnút sem var farinn að plaga mig, þar til nú, að burt er ritaður úr sýsteminu.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan, þar sem sæljón leika við hvurn sinn fingur og mörgæsir fljúga um loftin blá.
![]() |
Árni Páll formaður Tryggingastofnunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.6.2017 kl. 14:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.5.2017 | 18:56
"Friðarboðskapur" úr höfuðvígi hryðjuverkaógnar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti boðar vináttu, von og ást. Hann greinir einnig frá samkomulagi ríkja við Persaflóa um að koma í veg fyrir að hryðjuverkahópar fái fjármagn. Þetta er allt gott og blessað hjá karlinum. Eða hvað? Nei, þetta er ekki allt gott og blessað. Hann flytur þennan boðskp nefnilega í höfuðvígi hryðjuverkaógnarinnar, Saudi Arabíu. Þaðan sem fjármagn streymir 24/7, 365, til alls kyns brjálæðinga, um allan heim, til að myrða saklausa borgara. Forsetinn stendur beinlínis á uppsprettu hryðjuverkasjóðsins, er hann mælir þetta. Til að verðlauna handklæðahausana fyrir "vinskapinn" selur hann þeim vopn, fyrir hönd bandarískra vopnaframleiðenda, fyrir ellefu þúsund milljarða. Svona rétt til að sýna smá þakkarvott fyrir vel unnin störf og góðan business í vopnabransanum. Það eru jú bandarískir vopnaframleiðendur sem stjórna Hvíta Húsinu, meira og minna, hafi það farið framhjá einhverjum, öðrum en vestrænum fjölmiðlum. Friður á jörð er eitur í þeirra beinum og því gott að geta teflt fram appelsínugulum kanínuhnakka og raunverluleikastjörnu, í embætti forseta, til að tilkynna um herlegheitin. Það verður nefnilega að selja vopn, hvað sem tautar og raular. Það fer enginn út í hergagnaframleiðslu til að skapa frið á jörð. Tvíburaturnar, lestarsprengingar, fjöldamorð á götum úti, að ekki sé minnst á allar hörmungarnar í Írak og Sýrlandi, auk Arabíska Vorsins" og annað smávægilegt er talinn ásættanlegur fórnarkostnaður og í raun hvati til að selja enn meira af vopnum. Bandaríkjamenn hafa stuðlað að einhverjum mestu hörmungum sem um getur, eftir seinni heimsstyrjöld, með framferði sínu í miðausturlöndum. Þeir hafa skapað nánast alla helstu hryðjuverkahópa, sem upp hafa sprottið, undanfarna áratugi. Að auki hafa þeir fórnað þúsundum af sínu eigin fólki í þessari "óráðssíu" sinni. Óráðssíu sem er þó tæpast nokkur óráðssía, heldur þaulskipulögð áætlun vopna og hergagnaframleiðenda í USA. Rockefellarnir kætast sem aldrei fyrr, þessa dagana, yfir góðum business og að geta sent trúðinn í "uppistand" til Saudi klansins, þar sem hann nú hvetur þjóðir heims til að einangra Íran. Ef einhverjar þjóðir þarf að einangra, þessa dagana, eru það USA og Saudi Arabía. Það verður þó sennilega seint raunin. Money makes the world go round, world go round.....
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Trump vill einangra Íran |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.5.2017 | 18:44
Sádar, hryðjuverk og kaninn.
Sádar eru stuðningsmenn hryðjuverkahópa, um víðan heim. Kaninn er helsti stuðningsmaður Sádanna. Kaninn er þar af leiðandi mesta hryðjuverkaógn veraldar, með útibú í Saudi Arabíu. Þetta er ekki flókið......., eða hvað?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
11.000 milljarða samningur við Sádi-Araba |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.5.2017 | 02:02
Sérhæfð sjukrahúsþjónusta?
Þegar fólk veikist, hristir það annarsvegar af sér krankleikann sjálft, eða leitar læknis, ef ekki vill betur til. Sumir lenda á sjúkrahúsi, en aðra er hægt að meðhöndla með einfaldari hætti. Heilbrigðisráðherra, sem þarf að stofna sérstaka nefnd um það, hvað teljist eðlileg sjúkrahúsþjónusta, er greinilega ekki í réttu ráðuneyti. Jafnvel ekki á réttum vinnustað.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Stuðningur við sjúkrahús stytti biðlista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2017 | 07:18
Mosfellsbær og "innviðagjald".
Það er undarlegt að lesa í Mogga, að Mosfellsbær hyggist hugsanlega innleiða "innviðagjald", til að taka þátt í kostnði við innviðauppbyggingu, svosem skóla og annað. Þetta "annað" er að sjálfsögðu ekki tilgreint, en hverjum ljóst, sem eitthvað hugsar og fylgist með umræðunni, að ætlað er í þessu þvælu, sem kallast borgarlína. Er einhver glóra og rekstrargrundvöllur fyrir þessari Línu Langsokk? Er ekki kjörið að einkavæða hana? Nú er lag! Halda menn að verktakar og rekstraraðilar framtíðarinnar standi í röðum og sláist um bitann? Nei, ekki aldeilis. Enginn sem hefur eitthvað vit umfram hvítvoðung og vill stunda rekstur hefur áhuga á þessari þvælu. Það er ekkert minna en ömurlegt að fylgjast með sjálfstæðismönnum, í bæjarstjórnum umhverfis Reykjavík, sleikja hverja delluna upp á efrir annari, sem bjálfarnir í borgarstjórn, höfuðstaðar Íslands láta frá sér fara. Þó minnihluti sjálfstæðismanna í Reykjavík sé höfuðlaus her, sem enginn veitir eftirtekt, þarf meirihluti sjalfstæðismanna í Mosfellsbæ ekki að lepja drulluna upp eftir þá. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar væri nær að koma skikki á skipulagsmál bæjarins, áður en leggja á frekari álögur á íbúðaeigendur. Skipulagsmál bæjarins eru flór, sem dugar ekkert minna en stórvirkar vinnuvélar á, ef gera á hreint á þeim bænum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Efast um lögmæti innviðagjalds |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.5.2017 kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2017 | 00:23
Mörg orð, en ekkert innihald.
Einstaka stjórnmálamaður getur talað og talað, án þess nokkuð sé á honum, eða henni, að skilja. Talið er innantómt þvaður, um daginn og veginn og veðrið í gær. Núverandi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra er einn af meisturum þess að tala mikið, en segja ekki neitt. Sorglegt að lesa þessa grein. Sérstaklega það sem er innan gæsalappa. Útibú Sjálfstæðisflokksins er ekki að virka. Frændinn eins vingull, Tobba bullar og fjölskyldan fær hvert verkefnið á fætur öðru, fyrir hið opinbera. Manni liggur við uppsölum!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Þorgerður Katrín: Mikil vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2017 | 02:57
Fávitaháttur!
Miklabraut er ein þyngsta umferðargata Reykjavíkur. Á álagstímum, snemma morguns og í eftirmiðdaginn er hún gjörsamlega uppseld. "Fávitarnir", sem kjósa einkabílinn, í stað handónýtra Stræ Dó eða reiðhjóls, til innanborgarferða, sitja þar fastir í teppu, sem venjulega leysist úr svona um og upp úr klukkan hálf níu á morgnana og hálf sex seinni partinn. Flestir hafa sitt á hreinu, hvað þetta varðar, nema að sjálfsögðu "doktor" krulluhaus og hjálmurinn. Þessir fávitar, (þ.e. fíflin í bílunum)sem þó hafa atkvæðisrétt, eru langt í frá sáttir við þetta, en láta þetta yfir sig ganga. Þeir(altso hálfvitarnir í bílunum) vita og skilja, að þegar eitt stykki samfélag fer til og frá vinnu, á sama tíma, getur myndast röð. Röðin getur gengið mishægt, eða hratt, en að lokum rætist úr og flestir komast til sinna heima á umþaðbil réttum tíma.
Nú hafa fáráðlingarnir í borgarstjórn ákveðið, sennilega undir áhrifum einhverra vímugjafa,(hvað getur annars orsakað aðra eins brjálaða hugmynd og þá, að þrengja Miklubraut, tímabundið eður ei) að lengja umferðarteppuna um óræðan tíma. Borgarbúar, sem stillt hafa sig inn á aðgerðarleysi þessara bjálfa, þurfa nú að endurskipuleggja morgna og eftirmiðdaga sína, því krulluhausinn og hjálmurinn hafa fundið það upp, að verja þurfi gangandi vegfarendur og hjólreiðarfólk, með Berlínarmúr samliggjandi Miklubraut, en aðeins fyrir landi Klambratúns! Er hægt að verða öllu vitlausari, sem borgarstjórn? Meðan börn eru svelt á dagheimilum borgarinnar, eru götur þrengdar og hjólabrýr byggðar, fyrir hundruði milljóna!
Ef þetta er ekki fíflagangur, algerra rugluhausa, þá veit tuðarinn minna en ekki neitt.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Loka akrein á Miklubraut á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)