Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Lífsstílsblogg.

 Á blogginu má lesa marga pistla frá lífsstílsráðgjöfum allskonar, sem virðast hafa nánast allar lausnir sem þarf, við hinum ýmsustu vandamálum líkamshulstursins og handa sálartetrinu sem þar hýrist innanhúðar. Af nógu er að taka, hvort heldur fjallað er um hreyfingu, mataræði, slökun, hugarró eða annað tengt daglegu lífi nútímamanneskjunnar.

 Einn ráðgjafi leggur til að allir sleppi morgunmatnum, meðan annar telur málsverð þann hinn mikilvægasta fyrir komandi dag og síðan eru allskyns ráðleggingar um matmálstíma, tíðni máltíða, hollustu, hreyfingu, keto, vegan og hvað þetta nú allt saman heitir. Hvernig maður á að hugsa jákvætt og láta gott af sér leiða og jari jarí jarí. Semsagt allskyns ráðleggingar um allt milli himins og jarðar, sem leiða á til betra lífs.

 Tuðarinn hefur svosem ekkert út á þessar ráðleggingar að setja, þannig lagað séð, en þegar hann rak augun í þá ráðleggingu að maður ætti að kúka minnst tvisvar til þrisvar á dag var honum öllum lokið. Þetta grey sem hefur bara kúkað þegar honum er mál, er eiginlega bara alveg neðar sér yfir þessu. Samkvæmt flestöllum öðrum ráðleggingum  á maður að vera duglegur að hreyfa sig, stilla matarneyslu sinni í hóf, en síðan er ofsaskita ráðlögð í kjölfarið!

 Nú steinhætti ég að lesa lífsstílsblogg. Það er alveg kristalklárt.

 Held mig bara áfram við að borða það sem mig langar í þegar ég er svangur og kúka þegar mér er mál. Ég þarf engan “owners manual” um það.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Þvælujöfnun Orkusölunnar.

 Orkusalan framleiðir ekkert rafmagn. Ekki eitt einasta volt. Nema ef vera kynni 12 volt í “alternator” forstjórabílsins. Þar af leiðandi ættu frorsvarsmenn fyrirtækisins ekki að gera sig fleðulega og breiða, flaggandi einhverri kolefnisjöfnun á móti framleiðslu sinni, sem engin er. Halda þessir menn að allur almenningur sé algerlega heiladauður? Þvílík og önnur eins déskotans vitleysa og ófyrirleitni.

 Orkusalan er ómerkilegt heildsölufyrirtæki, sem selur rafmagn sem aðrir framleiða. Orkasalan er eitt þeirra fyrirtækja sem varð til við innleiðingu orkupakka eitt og tvö, sem áttu að koma af stað “eðlilegri samkeppni” á raforkumarkaði, sem sér rúmlega þrjú hundruð þúsund sálum fyrir rafmagni. Markaði sem sjálfur hafði byggt upp framleiðslu og dreifikerfi síns rafmagns í áratugi og notið góðs af einföldu innheimtukerfi og hreinum línum um það hverjir áttu staurana, línurnar og virkjanirnar. Stofnun Orkusölunnar og annara svipaðra heildsölufyrirtækja í raforkugeiranum hefur haft eitt og aðeins eitt í för með sér.: Hærra rafmagnsverð til neytenda og hinna einu sönnu eigenda orkunnar! 

 Orkusalan og önnur svipuð fyrirbæri eru ömurlegir og algerlga óþarfir milliliður sem kosta sitt. Það þarf forstjóra, fjármálastjóra, ritara, og móttökuritara og skrifstofur og bíla undir mannskapinn og svo þarf náttúrulega að auglýsa eigið ágæti út um rassgatið á sér, helst oft á dag, svo það fari nú ekkert á milli mála hversu ómissandi þjóðþrifafyrirtæki þessi óþarfnaðaróskapnaður er. 

 Það skal jú eltast við reglugerðafarganið frá Brussel út í hið óendanlega, sama hvað tautar og rausar og alveg sama hvað það kostar almenning og hérlend fyrirtæki. Hérlendir stjórnmálamenn eru orðnir að steinrunnum hugsjónageldum skjalastimplurum evrópusambandsins og Orkusalan og annar ámóta ófögnuður ein af afleiðingum þess.

 “Orkusalan kolefnisjafnar eigin raforkuframleiðslu”.......þvílíkt og annað eins andskotans kjaftæði og hananú og það held ég.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Orkusalan kolefnisjafnar eigin raforkuvinnslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskan er fundin.

 Stórviðri gengur yfir ákveðinn hluta landsins. Í óveðrinu brotna rafurmagnsstaurar og samskipti fara úr skorðum, þar sem veðrið er verst. Allt hið versta mál. 

 Á einhvern óútskýranlegan hátt, fær formaður einsmálsflokksins það á sinnið, að byggðaójöfnuður hafi afhjúpast í óveðrinu. 

 Óveðrið skall á ákveðin byggðalög með ofurþunga og því varð tjónið þar mest. 

 Óveðrið hafði ekki teljandi áhrif á önnur byggðarlög en þau, sem það skall harðast á.

 Af þessu dregur þessi ámátlegi forkólfur einsmálsflokksins þá niðurstöðu að ef allir stæðu jafnir í nafni kratismans, hefðu allir átt að verða fyrir jafnmiklu tjóni í óveðrinu, sama hvort blés eins og hjá andskotanum og snjóaði, eða gekk á með dimmum éljum og hægum vindi.

 Ef þetta er ekki heimska, þá fyrirfinnst hún ekki.

 Þar sem heimskan er fundin, er gott að vita hvar hún er.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Byggðaójöfnuður hafi afhjúpast í óveðrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðasala í stað hlutafés?

 Vonandi tekst fólkinu að koma þessu flugfélagi á koppinn. Það fer hinsvegar um mann hrollur, þegar maður les að miðasala byrji mjög fljótlega, en ekki hægt að gefa upp hvenær byrja eigi að fljúga. ´´Vá´´ hvað þetta hljómar ekki vel. Eru komin flugleyfi, er búið að útvega flugvélar og annað smálegt, sem þarf víst til svona rekstrar?

 Getur verið að með fyrirframsölu á miðum í ótilgreind flug, á ótilgreindum tíma, sé verið að sparsla í einhverjar holur, sem vand eða ófundið hlutafé átti að sjá um að loka?

 Spyr sá sem ekkert veit og er alltaf með einhver leiðindi.

 Góðar stundir, með jólakveðju að sunnan,

 þar sem sæljón leika við hvurn sinn fingur og

 mörgæsir fljúga um loftin blá.

 

 


mbl.is Play stefnir á miðasölu í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað telst meiriháttar brot?

 Arion banki sér um fjárfestingar fyrir þrjá lífeyrissjóði. Arion banki sér um hlutafjárútboð fyrir dauðadæmt svindldæmi í Helguvík. Arion banki á sjálfur stóran hlut í því fyrirtæki.  

 Arion banki sér til þess að þessir þrír lífeyrissjóðir ´´fjárfesta´´ í hlutabréfaútboði Helguvikurþvælunnar. Samtals reiða lífeyrissjóðirnir þrír um 1.400.000.000.- kr af hendi í þessa ósvinnu. Það fé er sennilega að mestu eða öllum hluta tapað. Ekki aðeins að tapið rýri stöðu sjóðanna þriggja og eigenda þeirra lífeyrisþeganna, heldur tapast ógreiddar skatttekjur til ríkisins einnig.

 Arion banki sleppur með 21.000.000.-kr sekt, þar sem ekki telst um ´´alvarlegt´´brot að ræða!

 Það er alger óþarfi að leita spillingar út fyrir landsteinana, svo mikið er víst. 

 Nema náttúrulega að aumur tuðarinn sé algerlega að misskilja þessa frétt og bulla tóma þvælu.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Viðurkennir brot í tengslum við kísilverksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óborganlegur snillingur.

 Hann Þórður á Skógum er engum líkur. Þessi þjarkur, sem í sveita  síns andlits hefur byggt upp eitthvert glæsilegasta byggðarsafn veraldar, rennur rólegur inn í hvern dag. Þakkar sjálfum sér ekkert, en forsjóninni allt. 

 Varla að nokkur orð dugi yfir mann sem þennan. 

 Takk Þórður. Ég kom fyrst að byggðasafninu að Skógum  árið 1969 með foreldrum mínum. Safnið var þá aðeins  í einu húsi, en mót okkur tók Þórður. Níu ára guttinn ég efaðist fyrst um karlinn, en þegar hann tók að ausa úr viskubrunni sínum um hlutina sem voru til sýnis, rann nánast huliðsgríma athygli og löngunar um meiri fróðleik, á kvikyndið mig. 

 Aldrei á lífsleið minni hef ég hitt manneskju, sem var meira í mun en Þórði, að miðla af viskubrunni sínum. Jafnvel þó aðeins fimm manna fjölskylda væri að hlusta og safnið ekki stórt. 

 Mikið væri gott, ef fleiri fyndust, sem Þórður Á Skógum! Takk Þórður, fyrir allt!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Held ennþá hugsunum inni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrirhyggjuleysi og skammsýni.

 Það hefur verið magnað, en um leið hálf sorglegt, að fylgjast með umræðunni um nýafstaðið stórviðri. Engu er líkara en að stór hluti þjóðarinnar átti sig ekki lengur á staðsetningu landsins og þeim veðurhamförum sem þeirri staðaetningu geta fylgt. Það er aldrei spurning um hvort, heldur hvenær stórviðri lík þeim sem nú er ný afstaðið, skella á. Þetta var alveg örugglega ekki síðasta fárviðrið á Íslandi, svo mikið er víst. Það munu koma önnur og jafnvel örugglega verri veður í framtíðinni. Þetta ætti allt fólk að vita, sem býr á Íslandi. Síðasta Básendaveðrið hefur enn ekki skollið á! 

 Vonandi tekst að koma á rafurmagni á Dalvík, með vélakrafti nýjasta varðskips okkar. Hinsvegar vekur furðu að þessi staða sem nú er uppi skuli ekki hafa verið tekin með í reikninginn við hönnun og smíði skipsins. Vel má vera að auðvelt sé að dæla rafurmagni frá borði, en það er hinsvegar til lítils, ef klóin á móti passar ekki.

 Reynsla undangenginna áratuga í veðurhamförum, svo sem snjóflóðunum miklu á Súðavík og Flateyri hefði átt að leiða til þess, að við ættum skip sem fljótlegt væri að sigla á viðkomandi hamfarastaði og tengja við rafurmagnskerfi viðkomandi staða.

 Ástæða þess að svo er ekki, er sennilega sú, að stjórnmálamenn og handhafar valdsins hafa verið svo uppteknir af öðru, því miður. Hvers vegna er arðurinn af Landsvirkjun t.a.m. ekki nýttur í uppbyggingu öruggara dreifikerfis rafurmagns, í stað þess að puðra þeim fjármunum út í tómið? 

 Hvort liggur meira á að moka ofan í skurði, eða tryggja tilveru og öryggi landsmanna, í öllum byggðum þessa lands? Er ekki kominn tími til að stjórnmálamenn láti af fyrirhyggjuleysi sínu og skammsýni? Halda flónin við Austurvöll að orkupakki 3,4,5 og allt það fjandans rugl sem því fylgir, muni auka afhendingaröryggi rafurmagns í framtíðinni? 

 Spyr sá sem ekkert veit.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Flókið að koma á rafmagni úr Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

´´Andi hins liðna´´

 Eitt gott frá Steini Steinari, fyrir svefninn.:

 

 ´´í fjarska, á bak við allt, sem er

   býr andi þess, sem var.

   Og andi þess, sem enn er hér,

   er ekki þar.

 

   Sem hugarórar, huliðs-sjón,

   hann hrærir líf hvers manns.

   Og yfir sérhvers auðnu og tjón

   rís ásýnd hans.

 

   Hann andar ljósi á barnsins brá

   og beyg í hjarta manns.

   Og löngun hvers og leit og þrá

   er leikur hans.

 

   Og okkar sjálfra mark og mið

   er mælt við tilgang þann:

   Af draumi lífsins vöknum við

   og verðum hann.

 

   Að veruleikans stund og stað

   er stefnt við hinstu skil,

   Því ekkert er til nema aðeins það,

   sem ekki er til.´´

 

 Væri ungmennum kennd og sýnd ljóðlist sem þessi, gætu menn sennilega troðið písanu upp í afturendann á sér.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Spilling er samofin nánast öllu.

 Það er allt að því spaugilegt að lesa þessa frétt. Reyndar allt að því sprenghlægilegt. 

 Heimska þeirra sem fara fram á að liðkunarfé Samherja sé greitt til baka til namibísku þjóðarinnar, með atbeina stjórnvalda á Íslandi er yfirgengileg.

 Það finnst nefnilega fyrirbæri sem heitir réttarkerfi. Í þessu máli hefur enginn verið dæmdur, enn sem komið er. Það virðist hinsvegar ekki velkjast fyrir þessum mannvitsbrekkum, enda uppaldir í spillingarbælinu Namibíu. Namibía og stjórnkerfi hennar, er og hefur um langt árabil verið gegnsýrt af spillingu. Að fara fram á að skattgreiðendur á Íslandi borgi til baka einhverjar upphæðir, sem þegar er búið að borga spillingargemsunum í Namibíu er slík reginsteypa og della, að varla verður orði upp komið, yfir heimsku þessa tríós á myndinni. 

 Þetta jaðrar við heimsmeti í heimsku, því miður, en umræðan öll hefur jú ekki beint verið á gáfulegum nótum fram að þessu, svo varla bregður fávísum aulanum mér, við lestur svona dellufréttar. Aumingja sendiherrann að þurfa að standa í svona fíflagangi.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Vilja að namibíska þjóðin fái endurgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítt með alla lögreglustjóra landsins.

 Krakkinn sem nú gegnir hlutverki dómsmálaráðherra landsins, telur eðlilegt að gera starfslokasamning við fyrrum Ríkislögreglustjóra upp á tæpar litlar fimmtíu milljónir króna.

 Hvað eru margir svona samningar í gangi? Hvar er heimild fyrir þeim í lögum og HVAR er seljanið og rúvið?  Er Namibía jafnvel nær en við höldum?

 ´´Starfslokasamningi´´fyrrum ríkislögreglustjóra fylgir að vísu þriggja mánaða ánauð í ráðgjafastarfi, en hver myndi ekki hrista sig aðeins í gírinn fyrir svoleiðis titlingaskít? Eigandi fullt af mánuðum eftir á fullum launum, plús orlof?

 Á meðan dópið, mafíugengin, vændið, sígaunaruslið, falsaðir hælisleitendur og mansalið, ásamt annari óáran vellur inn í landið, telur Dómsmálaráðuneyti Íslands það helst sér til tekna að gera starfslokasamning við flokkspartner.

 Ráðherfan fékk jú djobbið fyrir orkupakkastðuninginn, ekki satt? Eða logið? Tuðari bara spyr. Bjarni geldur greiða mót greiða að sagt er.

 Með starfslokasamningi sínum við fyrrum ríkislögreglustjóra, gefur núverandi dómsmálaráðherfa skít í alla lögreglustjóra landsins. 

 Löggæsla er fyrir bí, í boði dómsmálaráðherra. Ráðherfa sem græðir á daginn og grillar hvítvínsleginn humar á kvöldin, með titilin cand jur hlýtur að vita allt sem dómsmálaráðherfa hlýtur að þurfa að kunna. ´´Reynslubolti´´ úr samfélaginu sem allt veit og kann. Hokin reynslu og kann öll ´´trixin´´ eftir áratuga reynslu úr atvinnulífinu beggja vegna borðs.

 Á meðan ráðherfan hverfist um eigið ágæti, í orðagjálfri og innihaldslausu rausi, deyja börnin okkar úr ofskömmtum og ofbeldi í hennar boði.

 Barninu í ráðherrastólnum ætti að finna annað hlutverk hið snarasta, ef ekki á illa að fara fyrir landi og þjóð. 

 Sjálfstæðisflokkurinn minn er rjúkandi rúst, í boði formanns og fylgifénaðar hans. Daprari verður trauðla nokkur forysta nokkurs flokks.

 Svei ykkur forystufólki Sjálfstæðisflokksins öllum!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Ekki vanhugsað að nýta „reynslubolta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband