Ekkifréttir.

 Eitt hundrað og átta ára gömul kona lést í gær af völdum kóróna veirunnar. Þessi kona lifði af spænsku veikina, en féll á örfáum dögum fyrir annari kórónaveiru,  rúmri einni öld seinna.

 Einmitt það sem við viljum heyra. Hvað næst? Heimsmetabók Guinnes?

 Uppbyggilegar fréttir, eða hitt þó heldur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Lifði af spænsku veikina en lést vegna veirunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aleksander Kíelland.

 Kvöldið sem Kielland fór á hliðina, var tuðarinn kornungur háseti  á togara sem sigldi fram hjá þessu logandi furðuverki.  Ekófisksvæðið sást úr hundrað mílna fjarlægð með berum augum, vegna afgassins sem brennt var á toppum olíuborpallanna í þá tíð. Háseti  á stímvakt skildi ekki með nokkru móti hvers vegna ljósin út við sjóndeildarhringinn komu ekki fram á radarnum, hvar hann gróf höfuð sitt í gúmmítúttuna og reyndi sitt besta, til að finna út úr ljósbjörmunum, klukkutímum saman. Tímunum saman sigldum við að ljósunum, en þau virtust aldrei færast nær, svo langt voru þau i burtu.

 Grettir Jósefsson stýrimaður, að vestan, fullvissaði mig um að ég þyrfti ekki að hafa nokkrar áhyggjur af þessu, þvi sem nær við kæmumst, kæmi ljósbjarminn betur í ljós og ef illa færi, væri jú stýri á skipinu. “Róaðu þig drengur” sagði hann og hélt kúlinu. Við sigldum framhja Ekofisk svæðinu í myrkri og það var gjörsamlega galin tilfinning kornungum tuðaranum. Logandi helvíti um allt, en samt allt í góðu lagi! Það var ekki fyrr en við vorum komnir til Cuxhaven sem við fengum fréttir af því sem gerst hafði, örfáum klukkustundum eftir að við sigldum framhjá. Hvort við hefðum gert eitthvað gagn, Grettir og ég,  mun enginn aldrei vita. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is 40 ár frá Kielland-slysinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump.

 Það hafa margir horn í síðu Donalds Trump. Mörg horn, jafnvel flest, á hann skilin. Það er hinsvegar eitt sem karlinn hefur hamrað á, sem nú er að koma í ljós. Nefnilega það að “Make America great again”.

 Í þessum orðum hans liggur sú hugsun að baki að útsenda ekki alla framleiðslu úr landi og þá yfirleitt til Kína. Leggja niður framleiðslu, loka verksmiðjum og segja upp ómældum fjölda fólks, því allt er svo ódýrt í Kína. Í Kína er nánast allt framleitt í dag, því það er svo ódýrt. Þetta á ekki aðeins við um fyrirtæki í BNA. Þetta á við um öll lönd. Ísland engin undantekning. Fiskur er t.a.m. fluttur héðan til Kína til vinnslu og síðan aftur til Evrópu!

 Nú kemur upp skelfileg veira sem á upphaf sitt í Kína. Hvernig og með hvaða búnaði á að verjast þessari veiru frá Kína? Jú, með vörum framleiddum í Kína. Liggur við að manni sundli við að fylgjast með þessari hringavitleysu. 

 Vonandi kennir þessi súrealíska staða fólki og þjóðum það, að treysta frekar á eigin innviði og framleiðslu eigin landa, en ekki þrælaframleiðslu í Kína, undir ógnarstjórn einræðiskommúnismans, sem laug og lýgur enn um afleiðingar faraldursins. Það er nákvæmlega ekki nokkurn skapaðan hlut að marka upplýsingar frá Kína. Ekki eitt einasta orð!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Skipar GM að hefja framleiðslu öndunarvéla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna !

 Sérdeilis fínt að þessir pinnar skuli hafa fundist. Maður getur hins vegar ekki annað en furðað sig á því, mitt í öllu þessu fári, að svona lagað geti gerst í birgðahaldi sjúkrahússins. Utanumhald og skráning á birgðum virðist ekki upp á marga fiska og spurning hversu víðtæk þessi óreiða er, svo ekki sé nú talað um hugsanlegan kostnað. Þarna þarf greinilega að stórbæta vinnubrögðin og það strax.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Fundu óvæntan lager með sex þúsund pinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd.

 Einhverjir bestu pistlar, sem varpað er á emmbéeellið.is  eru pistlar Rúnars Kristinssonar frá Skagaströnd.

 Veit ekki  hvort megi  benda á pistla hans í rétthafakjaftæði en öllum mönnum holl lesning. Skiptir litlu hver dagurinn er. 

“ Sú mí if jú læk Rúnar”

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Skrækur Skellibjalla á RÚV.

 Eru virkilega engin takmörk fyrir því hvað þessi Skrækur Skellibjalla (Gísli Marteinn) kemst upp með að láta eins og algert andskotans fífl, í “sjónvarpi allra nauðbeygðra greiðenda”.?

 Er þetta ekki að verða gott, með þennan skræk og gasprara, sem sökum tónsviðs raddar sinnar, gerir hvern mann brjálaðan á mettíma. KGB er þar sem hann hefði átt að starfa, í yfirheyrsluherberginu.

 Leilo og Valdimar redduðu þættinum, “by the way”;-)

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


Hver er hin raunverulega ógn? Vírusinn eða umræðan?

 Hvort er meiri ógn, vírusinn eða umræðan? 

 Í venjulegu árferði deyja 650.000 til ein milljon manna á ári úr umgangspestum um veröld  alla. Virusinn sem nú geysar hefur lagt tæplega 7000 sálir í gröfina á næstum fjórum mánuðum.

 Statístikin er að klofna og niðurstaða móðursýkislegra viðbragða á eftir að koma í bakið á okkur öllum. 

 Þegar efinn étur  sálina, er erfitt um vik, hvað gera skuli. Loka öllu, slá allt niður, sjá síðan til?

 Orangúti í USA lokar og lokum því öll!

 Þetta meikar engan sens. 

 Hvað dóu margir úr inflúensu á Ítalíu í fyrra á þessum árstíma?

 Íran?

 Spáni?

 UK?

 USA?

  Þegar hinum töfræðilegu staðreyndum um ástandið á umliðnum árum, miðað við árið í ár,  verður varpað á aðgengilegan vegg til upplýsingar almennings, er þessi “plága” stormur í vatnsglasi. Aldrei í sögu mannkyns hefur pólitík misstigigið sig jafn illilega í Göbbelskri græðgisvæðingu sinni. Fröken Merkel undirstrikaði það í dag. 

 “The fourth reich is emerging”

 Vonandi hef ég rangt fyrir mér.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Hvað er að gerast í BNA?

 Tvö gamalmenni keppast nú um að verða forsetaefni demokrata í BNA í komandi kosningum. Annar sósíalisti og hinn elliær. Púfff! Er þetta uppstillingin gegn Donald Trump? 

 Hvor sem hlýtur tilnefninguna, er eins gott að varaforsetaefni beggja sé að minnsta kosti hálfri öld yngri. Demókratar hljóta að vera í, ekki djúpum skít, heldur engu nema skít, ef þetta er úrvalslið þeirra. 

 Donald Trump verður sennilega seint talinn til mestu mannvitsbrekkna mannkyns og í raun nú þegar, talinn alger vitleysingur í sinni stöðu. Gaman að karlinum af og til og hann hefur svo sannarlega ekki gert efnahagskerfi BNA neitt illt. Þvert á móti hefur í fyrsta sinn í mörg ár mátt sjá uppgang og efnahagslegar umbætur í forsetatíð hans. Enginn getur tekið það af honum, nema það að flestir vita að hann ákvað ekkert af þessu, heldur ráðgjafar og þeir sem komu honum í embætti á sínum tíma. Þeir sem kusu hann, fá lítið fyrir sinn snúð. Maðurinn er hinsvegar algert fífl í allri framkomu og sjálfselsku. Algert fífl. Algert fífl og á stundum alger trúður. Mest á Twitter. Svona eins og óharðnaður, ofdekraður pabbastrákur með enga hugmynd um neitt. Sorry, varð bara að segja þetta.

 “In the land of the free, with these terrible options only available, God Save America”

 Spennandi verður framhaldið, svo ekki sé meira sagt.

 “America great again”? eða 

  Alzheimer?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 

 


mbl.is Biden lofar kvenkyns varaforsetaefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirlægjan kostar sitt!

 Það er ekkert minna en ömurlegt að horfa upp á hérlenda ráðamenn líta út eins og algera bjálfa, þá tilskipun kemur frá Brussel um lokun Schengen svæðisins. Aldrei nokkurn tíma í lýðveldissögunni hefur ríkisstjórn litið eins illa út. Í ástandi sem hún hélt sig ráða einhverju í og hefði átt að ráða, væri hún sjálfstæð. Skömmin er alger og svívirðileg. Öll á kostnað stjórnvalda og þeirra sem sjá ávallt grasið grænna,  hinum megin girðingar. Í viðtölum við barnunga og algerlega reynslulausa ráðherra, eiga þeir engin svör sem von er. Sömu ráðherrar og hafa unnið að því öllum árum undanfarið að færa meira vald til Brussel og treysta á að allt sem þaðan kemur sé okkur ávallt til góða. Nú hittir reynsluleysið, undirlægjuhátturinn og valdagræðgin þessa krakkabjálfa illa fyrir og sennilega færi þeim betur að lækka aðeins rostann og sjálfhverfuna í samtali sínu við þjóðina.

 Ríkisstjórnarfundur Ríkisstjórnar Íslands um þetta mál skiptir engu máli, hvern svosem tíma sólarhringsins haldinn. Ríkisstjórn Íslands hefur ekkert lengur um þetta mál að segja. Er þetta almennt talið í lagi, eða er ekki kominn tími til að hamra á sjálfstæði lands okkar?

 Brussel er búið að ákveða! Hvaða svo sem geltir úr unglingabarka Ríkisstjórnar Íslands, skiptir ekki nokkru einasta máli. 

 Brussel er búið að loka Íslandi! Til hamingju fullveldisafsalssinnar Íslands.

 Sorgarstundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Hafa hingað til talið bann hafa litla þýðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örskammtar í krísuástandi.

 Niðurfelling tryggingargjalds, niðurfelling gistináttagjalds......

 Er þetta fólk ekki í sambandi? 

 Þrjúhundruðkall kall á hvern ferðamann?

 Niðurfelling af gjöldum ferðamanna sem eru  EKKI AÐ KOMA!

 Niðurfelling tryggingagjalds af hverju? Engum rekstri?

 Er þetta lið á sýru, eða svona algerlega úr takti við þjóðfélagið sem það lifir í?

 Maður verður svo að gjöra sér svo vel að spyrja! 

 Næturfundir, með þessar niðurstöður, benda til þess eins að þetta lið er búið að drulla upp á bak og verður varla skeint óþverranum úr þessu.

 Ef þetta heldur áfram sem horfir, greiða engin fyrirtæki eitt eða neitt í Ríkissjóð því þau verða ekki til lengur!

 Þarf virkilega næturfundi þessara mannvitsbrekkna um allt og ekkert og niðurstaðan þessi?

 Ísland hefur aldrei haft það eins slæmt og núna, segja sumir aular. Mestmegnis aular sem dreymir um erlend yfirráð landsins okkar. Þeirra draumur er maðkað mjöl að utan og ormétnir pólitíkusar og amlóðar í samskiptum við eigið fólk. Því pakki er einmitt að takast að gera tilvistina óbærilega undir fávitastjórnun og fíflagangi, með snuð ESB í munninum.

 Veirur hafa enn ekki gengið af þjóð okkar dauðri og þessari mun heldur ekki takast það. 

 KÍNA....Þar er uppruni alls ills, sem mun yfir heimsbyggðina hvolfast á næstu árum í veirum, skít, óþrifnaði og græðgi. Kína kann sér engin takmörk í skítsælni sinni, enda einn sorarpollur frá suðri til norðurs, austurs og vesturs, étandi rottur, eðlur og leðurblökur, skeinandi sér á fingrum eigin handa eða annara, hvort heldur hentar betur, það og það skiptið.

 Of margt fólk og vandanum verður einungis útrýmt með færra fólki. Þeir kunna þetta kvikyndin at tarna í Kína. Of margir munnar.......fækkum þeim þá bara. Úps, fór aðeins of langt, en “what the heck” 50.000.000 more.....in other countries?

 “We will survive”

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Skoða tímabundna niðurfellingu tryggingagjalds
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband