Íbúðir í kortunum.

 Borgarstjóraónefnan í Reykjavík hefur með þessari nýjustu kynningu sinni bætt enn og aftur við listann, af öllu því húsnæði sem lofað hefur verið, en ekki verið byggt ennþá. Endalaust bla bla jarí jarí og lítið sem ekkert að gerast. "Hagkvæmar íbúðir"? Hvað þýðir það nákvæmlega? Það er ekkert útskýrt. Samkvæmt reglugerðarugli frá drulluseli í Belgíu kostar formúu að byggja hvern fermeter íbúðarhúsnæðis. Orðagjálfur eins og hagkvæmar íbúðir eða blágrænar niðurfallslausnir hafa enga þýðingu fyrir venjulegt fólk, nema með fylgi hvað verið er að tala um og hvað það kostar.

 Hagkvæmar íbúðir hljóta að vera þær sem reistar eru á ódýrum lóðum og þar sem minnstu er varið í þvælu, sem engin not eru fyrir, eins og t.a.m. 30cm útveggi. 

 "Blágrænar niðurfallslausnir" eru síðan nafnóbermi sem aðeins veruleikafyrrtum rugluhausum dytti í hug. Lausnin er aðallega fólgin í því að allt vatn sem affallskerfi ráða ekki við, sígi á einhvern "blágrænan" hátt út úr ábyrgð þeirra sem skipuleggja eiga fráveitur! Með kynningunni, sem sauðslegir "fjölmiðlar" apa upp, er fólki talin trú um að yfirborðsvatn geti bara svona horfið, hókus pókus ofan í jörðina, ef aðeins er rist renna í landslagið. Til að þetta kerfi gangi upp þarf ótal drenlagnir og fráveitukerfi neðanjarðar, en krulla kjána og holuhjálminum tekst ávallt að skauta fram hjá að nefna það. Vatnið hverfur jú víst bara sísona ef stefna borgarinnar heitir blágræn. Hvert það fer, kemur bara í ljós. Gæti jafnvel endað með kúknum í Frostaskjólinu. "Who knows"?

 Þvílíkir andskotans bjálfar!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan. 


mbl.is 500 hagkvæmar íbúðir í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumur vopnaframleiðendanna.

 Það er skelfilegt að skoða þær myndir, sem fylgja þessari endursögn úr erlendum fjölmiðli, hver svo sem hann er, því augljóst er að hún er ekki unnin af fréttamanni mbl.is frá grunni.

 Rúmlega ígildi íslensku þjóðarinnar hefur verið tortímt í þessu brjálæði og menningarverðmæti og sögulegum mynjum eytt, til óbætanlegs skaða.

 Hinn almenni meðaljón harmar hörmungarnar, þó hann fái ekki nema brotabrot af upplýsingum um ástandið sökum ömurlegra fjölmiðla. Þó finnast menn og konur sem fagna þeim. Kætast við hvert ársfjórðungsuppgjör, yfir gróðanum. Eyða meiru fé í athvörf fyrir heimilislausa ketti en fólk, nema til að drepa það. Drekka sín rándýru vín á bestu veitingastöðum heims og eiga svo mikla peninga, að heil mannsævi dugar ekki til að eyða þeim, þó gjálífi væri stundað alla ævina. Hvaða varmenni ætli það séu nú? Jú, sori mannkyns. Ekki þeir sem taka þátt, ekki þeir sem verða fyrir áföllunum, ekki fórnarlömbin í hildarleikjunum. Hverjir þá? Jú, eigendur vopnaframleiðslufyrirtækjanna sem nú mala gull, sem aldrei fyrr. Fyrirtækja og samsteypa sem nærast á ófriði og hörmungum órekjanlegra og ómerkilegra fórnarlamba. Eftir því sem fórnarlömbunum fjölgar, ófriðurinn dregst á langinn, dofnar umræðan, þökk sé ömurlegum fjölmiðlum og þetta sorapakk auðgast meir og meir, með hverri konu, karli, gamalmenni og síðast en ekki síst barni, sem drepið er með framleiðslu þessara dusilmenna. Með auðæfum sínum hefur þeim tekist í langan tíma að stjórna atburðarás heimsmálanna. Jafnvel getað pantað stríð, ef svo ber undir. Þessi viðbjóður hefur á sínum snærum "lobbyista" á fjölmörgum þjóðþingum "hins frjálsa heims", sem ávallt telur sig þess umkominn að ákvarða örlög þjóða í nafni "frelsis" eða baráttunni gegn hryðjuverkum.

 Það er umhugsunarefni fyrir hvern hugsandi einstakling, hvers vegna þessu skólpi mannlegrar tilveru, hefur tekist þetta í svo langan tíma. 

 Fjölmiðlar eru einnig hluti vandans, því þar á bæ virðist metnaður og sjálfsvirðing horfin. Hvað veldur er erfitt að segja til um. Eignarhald fjölmiðla spilar þar eflaust einhverja rullu, en hversu ömurlegir geta svokallaðir frétta og blaðasnápar orðið, sem telja það upplýsingaflæði að endursegja þvæluna, hver eftir öðrum, án nokkurrar athugunar eða gagnaleitar, frétt?

 Góðar stundir, með sorgarkveðju að sunnan.


mbl.is Hamfarakennd eyðilegging (myndir)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtur Samfylkingarleiðtogi.

 Málflutningur Loga er með slíkum eindæmum, að engu tali tekur. Annar eins bjálfamálflutningur hefur ekki heyrst úr sölum Alþingis í mörg ár.

 Kreistum útgerðina til andakotans. Látum þessa andskota blæða. Rukkum þá helst um fleiri krónur en þeir afla, en viðhöldum byggð í landinu samhliða.

 Þvílikur málflutningur! Þvílík gargandi snilld í hagfræði! Þvílíkur andskotans vitleysisgangur! Þvílíkur foringi! Þvílík reiknisnilld! Þvílíkt og annað eins andskotans rugl, úr einum túla!

 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is „Kaldar kveðjur frá formanni Samfylkingar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að fordæma, en á meðan......

  Fimm stjörnu hótel í Kabul, hljómar einhvernveginn "absúrd". Landið er gjörsamlega í rúst, en enn álpast þangað kanabjálfar á fimm stjörnu hótel. Á Íslandi er ein hæð í Keflavík með fimm stjörnur og sennilega ekki langt í að fimm stjörnu hótel við Bláa Lónið líti dagsins ljós, þar sem einkaþjónn hreinsar á þér rassgatið og þurrkar eftir sundsprettinn. Sóttu tífalt fleiri um en þörf var fyrir.

 Þegar bandaríkjamenn fordæma afleiðingar eigin gerða, svelgist hluta veraldar á. Ferðamenn sem telja Kabul hentugan áfangastað, eru fífl. Engum nema fíflum dettur í hug að taka sér frí í Kabul. Aðeins hernaðarráðgjafar dvelja á lúxushótelum í Kabul. Ásættanlegt mannfall í hernaði? Ef til vill. Almennir ferðamenn, ó nei.

 Djöfull sem fréttamiðlarnir mygla meir og meir. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Bandaríkin fordæma árásina á hótelið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræðiundur ?

 Fyrirtæki sem skilar hagnaði, sem er þrefalt meiri en tekjur þess, hlýtur að vera rekið af Samfylkingunni, eða glórulausum sósíalistum sem ekkert skilja í viðskiptum. Annar kostur er sá, að þetta sama fyrirtæki sé rekið af fyrrum og núverandi tukthúslimum á Kvíabryggju, í anda aðdraganda hrunsins.

 Hver sá sem er svo illa gefinn að stíga fram og halda svona helvítis kjaftæði fram, undir nafni og með mynd af sér, er annað tveggja snargalinn, eða á mála hjá meirhlutanum í borgarstjórn Reykjavíkur, sem hlýtur þá að starfa eftir "útrásarvíkingaplaninu" . Huglæg verðmæti færð til bókar sem hagnaður og út á þau gefin skuldabréf, með veði í huglegheitunum. Svona svipað og veð í óveiddum fiski í sjónum. 

 Hagnaður þrefalt meiri en tekjur? Ekki nema von að þetta lið skilji ekki hagfræði 101, eða var það ef til vill kaffihús og menningarkjaftæði 101, nafnið á "kúrsinum" sem það tók, eða ekki. Kemur út á eitt.

 Skal ekki segja.

 Fáránlegasta fyrirsögn "ever" úr viðskiptalífinu hefur í það minnsta litið dagsins ljós. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Hagnaður þrefalt meiri en tekjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að velta "í Norðurá".

 Umferðin um Norðurá hefur barasta gengið býsna vel í dag. Að vísu varð ein bílvelta í ánni, laust upp úr klukkan fimm í dag, þega kínverskir ökumenn, á leið um ánna, náðu ekki flúðunum í Efsta-Gili og veltu bifreið sinni. 

 Aðvífandi ökumenn eftir ánni, hlúðu að þeim, þar til hjálp barst.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Bíll valt í Norðurá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallvölt er hugsjónin eina.

 Ef EES er dautt, er undarlegt að Benni hljóti þessi verðlaun. Varla búið að næla í brjóst hans orðunni, en hann drullar yfir allt sem hann fékk orðu fyrir. 

 Hipp og kúl karl, en ætti helst aldrei að svara neinu sem að honum er beint, nema í gegnum málsvara. Jafnvel símsvara tækist betur upp í svörun sinni. 

 Þurfti að lesa greinina þrisvar, til að fatta hana.

 Ragnheiður er þó vel að titlinum komin, enda allskostar ótengd Benna. Þar er um raunverulega hugsjón að ræða, sem stekkur ekki í fyrsta björgunarbát sem býðst.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Benedikt og Frú Ragnheiður verðlaunuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólin "byrja" í Ikea í október.

 Ruglið og ruslið sem verslunin hraunar yfir neytendur, er með hreinum ólíkindum. Jólin eru hringd inn í október í Ikea með jólageitarskrattanum, sem því miður tókst ekki að brenna í þetta sinn og nú ætla Hagkaup að jafna þá dauðans dellu. Endalaust kaupa neytendur delluna og sennilega ekki langt í það að jól og páskar renni saman í eitt allsherjar andskotans neyslufyllerí. 

 Það er ekki í lagi, með okkur neytendur!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Páskaegg í búðir 10 vikum fyrir páska
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gufusjóða, snöggkæla, vakumpakka, lausfrysta um borð.

 Þetta er nú ekki flókið.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Leita leiða til að auka útflutning ufsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipulagsnefndin tvöföld í roðinu.

 Það er undarlegt að lesa um það, að skipulagsnefnd Mosfellsbæjar lýsi yfir áhyggjum, vegna stækkunar athafnasvæðisins að Esjumelum.

 Þessi sama nefnd gaf nýverið leyfi til að Reykjabúið, sem staðsett er í ört vaxandi íbúðabyggð, tvö eða þrefaldaði framleiðslu sína, með því að reisa tvö alifuglahús til viðbótar að búinu. Það leyfi rann í gegn eins og heitur hnífur gegnum smjör. Á einhvern óskiljanlegan hátt komust þau sem umhverfismatið unnu t.a.m. að því að þó fuglunum fjölgaði um einhver hundruð prósenta, yrði óveruleg aukning á skít sem frá búinu kemur! Hvernig hægt er að fá það út, er með öllu óskiljanlegt og til háðungar þeim, sem matið unnu.

 Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til upplýsingar, drulla fimm þúsund fuglar hundrað prósent meira en tvö þúsund og fimm hundruð. Nefndinni væri nær að líta sér nær og huga frekar að því sem um er að vera innanbæjar, áður en farið er að gaspra yfir til annara sveitarfélaga.

 Að mati tuðarans er stækkun fuglabúsins alger tímaskekkja, ef ekki umhverfisslys og skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til ævarandi vansa og skammar. Skipulagsmál í Mosfellsbæ eru annars með þeim hætti í dag og hafa verið um allnokkurt skeið, að full ástæða er til að fá hlutlausan aðila til að gera úttekt á þeim. Við það kæmi án efa ýmislegt klístrað í ljós, sem lítið er talað um dags daglega. 

 Fruss á skipulagsnefnd Mosfellsbæjar!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Mótmæla mengandi iðnaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband