Þar fór það!

Lítið lagðist fyrir drenginn þann. Eins og hann bar nú af sér góðan þokka og virtist vera heilsteyptur og fastur fyrir, á sínum skoðunum. Tuðarinn bloggaði meira að segja um það, hve vel honum litist á þennan unga pólitíkus. Í kvöld skeit hann upp á bak og verður sennilega best geymdur í sveitinni innan um sauðfé og skít hér eftir. Þingmenn sem flokksmaskínur ná að snúa gegn samvisku sinni, eru best geymdir heima og eiga ekki að koma að landsmálum. Gildir þá einu um hvar í flokki þeir standa.
mbl.is Ásmundur Einar samþykkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband