Stjórnarandstaðan situr hjá, en ekki hvað?

Þar sem stærstur hluti stjórnarandstöðunnar, ásamt helmingi, 50%,  NÚVERANDI ríkisstjórnar ÍSLANDS, setti hér allt til andskotans í umboði meirihluta þjóðarinnar á sínum tíma, "NOTA BENE", er vel við hæfi að þetta fólk sitji hjá. Varla við öðru að búast hjá þeim, sem vonandi hafa nú gert sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna. Ef hins vegar þetta sama fólk ætlast til þess seinna meir, að það geti hvítþvegið sig af ósómanum, skulu þau hin sömu hugsa sig tvisvar um. Þögn er sama og samþykki og þar með teljast þessi peningalög gild með 63 atkvæðum duglauss þings, hvort heldur talin er stjórn eða stjórnarandstaða, þeir sem mættu, eða mættu ekki.

Atkvæðin hefðu reyndar alltaf fallið eins, enda  "Fólk á þingi" bara kosið eins og samviskan bauð kjósendum en .....,  að ef einhver er í útlöndum úr mínum flokki, slærð þú einn af í þínum flokki, kusum við ekki um, en á móti hefði sennilega komið að Sif skipti út fyrir Helga Hjörvar og ..........til að "halda valdahlutföllum" og so videre og ICESAVE rúllaði í gegn á varaþingmönnum og öðru undanskotskjaftæði. Gallharðir andstæðingar urðu skyndilega mjög þreyttir. Atli Gíslason þó sýnu þreyttastur og annað fáránlega vitlaust var fram dregið, til að taka EKKI afstöðu, nema með flokkselítunni. FÓLKIÐ sem VIÐ kusum er í einni andrá orðið minna virði en hundakúkur undir skó. Það finnst varla sá pottur sem laminn hefur verið á AUSTURVELLI sem ekki er misboðið. 

Síðan ætlast þetta fólk að borin sé virðing fyrir þeim?

 Álfheiður Ingadóttir í glugganum, nú ráðherfa,  formaður Framsóknarflokksins eða Bjarni Ben í Makao? Er einhver munur á þessu fólki? Trauðla.

 Það býr ekki sama þenkjandi fólkið í þessu landi og gerði, meðan öllu var hér fleytt að feigðarósi á sínum tíma, vona ég. Ef þjóðin lærir ekki á þessum skollaleik öllum saman, á hún sennilega ekki betra skilið en að "þjást" á efnahagslegum grundvelli, eða eitthvað í þá veruna. "Margur verður af aurum api", en að heil þjóð verði alger apaköttur, hefur sett litla Ísland á kort mannkynssögunnar sem fordæmi, sem engin önnur þjóð ætti, EÐA VILL fylgja. Litla Ísland, sem varla nokkur maður hafði heyrt getið um hér áður fyrr, úti í heimi, er nú nefnt í öðru hverju orði um allan heim, er ræddar eru ófarir í efnahagsmálum. Hér hefur verið sett heimsmet í heimsku. Þar fer ekkert á milli mála. Meira að segja sá helmingur núverandi stjórnar, sem fram á daginn í dag taldi sig málsvara lítilmagnans og einn af máttarstólpum "skjaldborgar heimilanna" ætti að hafa hægt um sig næstu daga, mánuði og jafnvel ár.  Annar eins kúvendingur hefur tæpast sést í samtímasögunni. ALLIR þingmenn lands vors ættu að sjá sóma sinn í því að segja af sér, en ganga þannig frá málum, áður en riðið er úr söðli að þinglokum, að  tryggja að hér eftir sitji fólk ALDREI lengur en tvö til þrjú kjörtímabil á þingi, sem er um það bil sá tími sem meðaljóninn þarf til að gera líf sitt bærilegt, undir venjulegum kringumstæðum. Eignast heimili og allt það..........  Takist það ekki, eru aðrir settir inn á. Þannig er lífið og pólitíkina ætti ekki að undanskilja. Pólitík er ég og þú.! Flest það fólk er nú vermir stóla Ölþingis Íslendinga ætti að reka og ráða nýtt í staðinn. Þar kjósum við, ég og þú, um framtíð vora. Vandinn í fámenninu er hins vegar sá að varla finnst eitt einasta kvikyndi sem ekki á einhverra hagsmuna að gæta eða gjalda á einhvern hátt, frá einhverjum sem velst á þing og sennilega mun þetta vandamál loða við okkur um ókomin ár. Tímabundin ráðning stjórnmálamanna með hámarksviðveru á ALÞINGI ætti að festa í lög. Stjórnmálamenn sem setið hafa hvað lengst, eru þegar upp er staðið, undirrót allra okkar meina og settu okkur á hausinn.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Steingrímur: Vel sloppið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Tómasson

?Sörli minn! Þig hef ég ungan alið
og aldrei valið nema besta fóður.
Nú er líf mitt þínum fótum falið,
forðaðu mér nú undan, klárinn góður.?

Það var eins og blessuð skepnan skildi
Skúla bæn því háls og eyru hann reisti,
frýsaði hart - og þar með gammurinn gildi
glennti sig og fram á hraunið þeysti.

Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni,
furðar dverga hve í klungrum syngur.
Aldrei hefur enn í manna minni
meira riðið nokkur Íslendingur.

Karl Tómasson, 17.12.2009 kl. 02:31

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 17.12.2009 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband