31.1.2008 | 01:10
Oprah, The Secret og hin "Fimm Fræknu"!????
Tuðarinn tók sér mjög erfitt tak fyrr í kvöld og kvaldi sig í gegnum HEILAN þátt af Ópru. Já takk fyrir, "HEILAN ÞÁTT". "The Secret" var aðalefnið í þættinum. "Seiðmögnuð" rödd Björgvins Halldórssonar búin að auglýsa þetta "Freak Show" dögum saman og sennilega "allir" klárir í byltingu, eða hvað?
Að loknu áhorfi situr Tuðarinn eftir með æluna í hálsinum og skilur ekki fólk sem BORGAR fyrir að hlusta á þessa bévítans dellu.
"HAFÐUÞAÐGOTTÞAÐSEMEFTIREFÞÚBARABORGARMÉRALLTÞITT" predikarar í Améríkunni samankomnir í einhverri aumkunnarverðasta sjónvarpsþætti "EVER"!
Segi bara eins og Megas.: Langar að æla!
Hvað er hægt að vera vitlaus?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
ÉG var svo heppin að slökkva á Tv þegar ég sá hvað var framundan. Er EKKI Opruh kona.
Ásdís Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 01:40
í fúlustu alvöru Halldór.....ekki áttiru von á málefnalegum og eða vitrænum umræðum í bandarískum "talk-show" a´la Ophra......
Fanney Björg Karlsdóttir, 31.1.2008 kl. 12:08
Halldór Egill Guðnason, 31.1.2008 kl. 15:43
Hvað er hægt að vera vitlaus ? Við verðum að finna svar við þessari spurningu.
Anna Einarsdóttir, 31.1.2008 kl. 18:11
Hvaða hvað. Oprah er ágæt...
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 19:09
úps... var ekki alveg búin.... ætlaði að bæta við:
prófið bara að horfa á þætti hjá sumum kollegum hennar vestanhafs sem er miklu miklu verri. Gleymi t.d. aldrei þættinum sem ég sá þar sem umræðuefnið var "mjóar konur sem eru hrifnar af feitum körlum". Á sviðunu sátu þrír feitir karlar (þá er ég að meina lágmark 200-300 kg) á sundskýlum og í fanginum á þeim örmjóar konur sem kysstu þá og kjössuðu...frekar súrrealískt... Svo ekki sé minnst á alla þættina þar sem fólki er sagt frá framhjáhaldi makans í beinni og önnur sambærileg lágkúra...
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 19:13
Halldór, ég dáist af manni sem getur tiltölulega óbrjálaður horft á heilan þátt af Opra, og gert þetta ótilneyddur.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 31.1.2008 kl. 23:19
Þetta áhorf mitt var liður í tilraunaverkefni, sem ég er að taka þátt í. Mældur var blóðþrýstingur og púls meðan á þættinum stóð og er niðurstöðu að vænta með vorinu. Líðanin var skelfileg meðan á þessu stóð og var Tuðarinn alveg við það að brotna í sundur á tímabili. Amerískir spjall og fáránlekaþættir þykja mér einhver aumasta lágkúra sem fyrirfinnst og eyði ekki mínútu í að horfa á þessa slepju. Spurningunni um hvursu vitlaus sé hægt að vera, legg ég til að verði rædd á næsta aðalfundi SGON eða næsta rommykvöldi Tattoo klúbbsina.
Halldór Egill Guðnason, 1.2.2008 kl. 09:08
Kannski komin þarna fín keppnisgrein, og hægt að verðlauna þá sem lifa sýn heimskupör af, eða fyrir bestu tilþrifinn.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 1.2.2008 kl. 09:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.