Sænskar konur latar?

Um allan fjárann er nú hægt að krukkast með og skilgreina eins og það að eyða tíma í svona skýrslugerð. Hefur fólk ekkert annað merkilegra að gera, ha? Samkvæmt þessari skýrslu erum við karlmenn óalandi, óferjandi eyðslu og bruðlseggir og á stundum, að því er virðist, ógeðslegar mengunarpöddur sem ekkert eiga skilið nema skít og skömm. Við mengum of mikið, við borðum of mikið kjöt, borðum sennilega of mikið af öllu, ef því er að skipta. Fretum sennilega meira fyrir vikið, sem aftur mengar meira en hja konum og þannig mætti áfram telja einhverja tugi dálksentímetra í viðbót. Í skýrslunni kemur einnig fram að sænskir karlmenn aki um 75% af öllu því sem ekið er í Svíþjóð.

Ég dreg því þá einu ályktun af þessari skýrslu að sænskar konur séu latar að keyra. "Thats it"Angry


mbl.is Karlar menga meira en konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheheh skiljanlega..........

Hrönn Sigurðardóttir, 26.10.2007 kl. 14:53

2 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

ja men lille  ven..... du vet vel hur jobbigt det ar att köra bil nu för tiden... speciellt om man ar en svensk kvinna.......

Fanney Björg Karlsdóttir, 26.10.2007 kl. 16:01

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Og þú ert bloggvinur minn, ógeðslega mengunarpaddan þín. 

Æi, hentu bara skýrslunni og gleymum´essu.

Anna Einarsdóttir, 26.10.2007 kl. 16:02

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fanney, ja speciellt hvis kvinnan setter op ansigtet på röt lys! Búið að ganga svoleiðis frá egóinu hjá manni að ég held ég leggist bara í hýði fram á haust, eða lengur. Þar gæti maður þó tuðað við sjálfan sig, án þess að vera sífellt mulinn í duftið einhverjum kommentum um það hvað karlmenn eru miklir andskotans.....eitthvað Af hverju er ekki ein einasta könnun gerð um það hvað kvenfólk, sem oftast er yndislegt, getur líka verið hrútleiðinlegt inn á milli, ha! Það má sennilega ekki. Það væru kvennaofsóknir og karlrembuháttur.....dj.........bara

Halldór Egill Guðnason, 26.10.2007 kl. 16:14

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Anna.: Ef ég væri þú myndi ég ekkert vera að flíka því að þekkja mig á nokkurn hátt. Þú gætir verið ásökuð um að umgangast "skítapakk."

Halldór Egill Guðnason, 26.10.2007 kl. 16:16

6 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ætlða hafi verið kjeddlingar sem unnu skýrsluna, við erum sum sé ekki sjálfbærir þáog ekkert við okkur að gera enn að loka okkur inni í búrum til grenningar og undaneldi

Högni Jóhann Sigurjónsson, 26.10.2007 kl. 21:32

7 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Gott tuð

Ég bjó 6 ár í Svíþjóð og bloggaði smá um það  hér  og er alveg sannfærð um að sænskar konur eru latar. 

De orkar inte någonting overhuvudtaget.

Marta B Helgadóttir, 27.10.2007 kl. 12:58

8 Smámynd: halkatla

ótrúlegt bara, ég styð þetta tuð líka

halkatla, 27.10.2007 kl. 13:03

9 Smámynd: Hugarfluga

Tíhí ..tuðarinn þinn.  http://hugarfluga.blog.is/blog/hugarfluga/entry/349182/

Hugarfluga, 27.10.2007 kl. 14:02

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vertu bara stoltur, þetta sýnir einfaldlega að menn eru aktívari. Mér finnst nú eiginlega að það eigi að miða við 2 aðila, semsagt, konan er með en hún keyrir bara ekki, maður hlýtur að eiga smá hærri kvóta ef maður á konu. 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 17:18

12 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Er Ásdís að undirbúa komu sína út úr skápnum fræga,,maður hlýtur að eiga smá hærri kvóta ef maður á konu." 

Högni Jóhann Sigurjónsson, 27.10.2007 kl. 22:16

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég held mér finnist skítapakk skemmtilegra en annað pakk. 

Anna Einarsdóttir, 28.10.2007 kl. 14:16

14 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Jæja nú þarf að lesa nýjasta nýtt á minni síðu.

Marta B Helgadóttir, 28.10.2007 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband