18.7.2007 | 14:07
Munar öllu - eða hvað?
Þessi vegspotti sem um ræðir í fréttinni er u.þ.b. 1000 metra langur. Menn að störfum, vinnuvélar um allt og því slysahætta af hraðakstri í gegnum hann. Ágætlega merkt og fer ekkert á milli mála að það ber að draga úr hraða. Þeir sem telja sig verða, af einhverjum orsökum, að aka þarna eins og fífl, ættu kannsi að reikna út hve miklu munar í tíma, að aka á 30 km hraða og 80 á þessum 1000 metra kafla. Þau eru mörg "Míkrótyppin" í umferðinni. Ekki bara á breyttum jeppum.
Lögregla kölluð til vegna tillitsleysi ökumanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Nákvæmlega.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 18.7.2007 kl. 14:10
Assgoti..... það tekur því líklega ekki að finna sér kall. Míkró !
Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 14:18
Tja...svona eins og dyrbjölluhnappur. Ring ring!!
Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 14:30
mörgum fynst vera kóngur í sínum bíl.Kvernig er þá heilinn ein og græn baun??
Sigurbjörg Sigurðardóttir, 18.7.2007 kl. 14:41
Og ef ykkur hættir til að fá sinadrátt við akstur, þá á að kaupa sér Magnesium Citrate í apótekinu. Það er enginn afsökun að stíga bensínið í botn bara af því maður fær sinadrátt.
Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 17:40
Sæll Ægir. Verð að yfirgefa samkvæmið áður en það byrjar! Farinn úr bænum fram á mánudag. Reyndi að bera mig vel í gær, en annað sætið......! Góða helgi og bið að heilsa Bratti.
Halldór Egill Guðnason, 19.7.2007 kl. 21:43
Styð tillöguna um Gókart fyrir þessa pinnaóðu gaura ...(og konur- held reyndar að sumar konur keyri líka hratt.....)
Marta B Helgadóttir, 20.7.2007 kl. 01:17
Það eru svo margir á keyrslufylleríi! Það þarf meðferðarúrræði fyrir spennufíkla
Edda Agnarsdóttir, 22.7.2007 kl. 14:54
MeðalJóninn, meiri dóninn
muldrar bara og tuðar oft
sífellt koma saman flónin
og setja síður upp í loft.
PARTÝ !!!
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 19:19
Asparfrjóatuð er svalt
Halldórinn er fjarri mús
Fáum okkur kókómalt
hér mun vera opið hús
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 20:54
Ægir og Brattur minn
og Kristjana mín klár
Komið hingað strax
annars koma tár.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:02
Ó ! Ég breytti einni línunni og þá hætti að ríma.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:03
Í ískápnum er dósabjór
en enginn matur
Tuðar eins og kirkjukór
og er aldrei latur
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:04
Hér er ró
og hér er friður
og mikill tími
Anna hefur áhyggjur
af rími
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:08
Halldór segir nínínínííí
Níní segir Halldór
Svo fer hann bara í frí
og drekkur bjór.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:10
Brattur hvar er Kristjana
og hvar er Ægir
Eigum við að sækjana
þegar lægir ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:13
Já, bíðum eftir góðum byr
og þoku léttari
flýtum okkur svo eins og hyr
áður en hún verður þéttari
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:23
Bratturinn er orðheppinn
og frábær, það er sannað
nú strýk ég á mér keppinn
og brosi út í annað.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:25
"Hyr" er orð sem nota má
í hallæri
vona að alvöruskáldin
ég ekki særi
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:32
Er sumarið kom yfir sæinn
síðla, þá kom það á daginn
að Ægir er mjög svo handlaginn
Hann leynir á sér aðalgæinn
Er saman við fórum á klóst
og tókum inn með okkur póst
Svo lásum við fréttir á meðan
við gerðum svolítið að neðan.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:33
Halldór einu sinni á sjó
fékk aðeins rúllu eina
hann sparaði og við sig dró
er þurft´að sk.........
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:40
Með fima fingur Ægir er
og fer af honum orðsporið
drottinn blessi heimilið
klóst og vorið
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:41
Kristjana er mitt uppáhald
algerlega frábær kona
Viltu koma með mér í tjald
og ger´allt vitlaust.. sísona ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:43
Í tjaldi er gott að vaka
bjarta sumarnótt
og hlusta á blessaða lóuna
kveðast á við tófuna
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:47
Pissuhúmor höfum pjakkar
pössum okkur snobbi á
Verum bara áfram krakkar
og rekum stundum við, ójá.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:49
Undrandi nú verður Halldór
er sér hann þetta bullerí
Hann tuðar svo í einum kór
en gaman hefur samt af því
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 21:54
Ég ætla mér að vera krakki
Hey, hey, hey
og fíflast eins og villtur rakki
Þangað til ég dey
Brattur, 22.7.2007 kl. 21:56
Er Ægir enn að fúgu að dást
slær hann sér á loðið brjóstið
Bogalist ei honum brást
en samt er þetta ekki eina klóstið.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:03
Myrkri bíður eftir Finni
má ei hætta að vinna
fyrr en kemur myrkur, inni
þvílík endemis fásinna !
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:11
Um Ægis brjóst ég lítið veit
Mér var ekki boðið
Á klóstið, það aldrei leit
Er það mikið loðið?
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:11
Ekki veit ég um það neitt
er enginn dónakona
vona þó að strá sé eitt
það má nú vona.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:17
Nú langar mig í ...
mjólkurkex
en ekkert á
svangur varð ég eftir sex
og ekkert smá
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:25
Í bundnu máli ég um það tjá
að fann ég myrkvað herbergi
þar ég viss um mig enginn sjá
og engan mig ergi
svo ei vinna meira þarf
mitt langa stritaða starf
Arnfinnur Bragason, 22.7.2007 kl. 22:29
Viltu aldrei krem á kexið
Brattur minn kæri
nú heldur þú ég tali um sexið
þó það nú væri.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:31
Anna er engin dónakona
og talar bara um kexið
eða er hún kannski að vona
að einhver komi og gefi henni .....
Arnfinnur Bragason, 22.7.2007 kl. 22:35
Nú hef ég eitthvað til að hlakka
Kristjana á morgun kemur
skyldi hún færa jólapakka
nú eða ljóð hún semur ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:35
Finnur er með fallegt nef
og bjart og mikið enni
í lágnættinu lítið sef
hann er svo flottur penni
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:39
Arnfinnur þú yfir strikið
arkaðir með glans
ekki þykir mér nú mikið
þó margir vilji dans.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:43
Á kexið
væri gott að fá smá krem
þá fallegt ljóð til þín
Anna ég sem
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:44
Brattur samúð mína á
ekkert kex hann hefur
Veit ei hvað hann gerir þá
kannski bara sefur ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:46
Ægir hann er letiblóð
nennir ekki að semja
bara svona tvö, þrjú ljóð
saman máttu lemja.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:47
Jæja kæru vinir nú bíður bólið
Svo ekki missi ég af hanans góli
Nú fer ég að halla mér
Anna bið að heils þér
og Brattur þakka þér hólið.
Arnfinnur Bragason, 22.7.2007 kl. 22:49
Farðu að kúra
króginn minn
og vel þig dreymi
Guð og allir englarnir
yfir þér sveimi
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:49
Anna:
Sveinarnir ungu
þeir áttu ekki orð
nú höfum við alla
drukkið undir borð
Brattur, 22.7.2007 kl. 22:52
Úthald hafa ekki neitt
þessir góðu menn
það finnst mér dáldið leitt
en gott við vökum enn
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 22:58
Sköllótt er Ægis bringa
Þar fór von um gróður
Ég ætti kannski að hringja
í Þorgeir bróður ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:00
Ægir sómir sér vel í örk
með dýrunum og Nóa
gróðursnauða eyðimörk
ertu ekki að djóka ?
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:03
Við þurfum ekki að lyfta ljá
góður finnst mér ostur
bringuna þarf ekki að slá
og það er kostur
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:06
Afi minn fór á honum Rauð
hestlaus þó
Gamla merin var steindauð
hún bara dó
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:06
Halldór yrði glaður já
með Ægi í garði sínum
sá mundi um sig sjálfur sjá
með sköllóttum línum.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:08
... Anna... hér kemur smá í óbundnu.... ég á lag sem heitir því fallega nafni Jarí,Jarí... hálfgert hestamannalag... þar kemur þessi setning fyrir í textanum... (set það kannski inn á spilarann)...
... "ég hef oft riðið hesti, en aldrei presti"....
... þarna var ég í smá vandræðum með rímið... skammast mín smá... eru nokkuð prestar í fjölskyldunni
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:13
Þú ert baaaara frábær ! Nei, engir prestar í fjölskyldunni - og ég hef heldur ekki riðið presti.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:17
Ok Ægir, þú ert kroppur
það er alveg augljóst
ættir samt að mála doppur
á bringu, loðinn þóst.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:20
Sjúkk... gott með fjölskylduna... eins gott að prestastefnan frétti ekki af þessu Jarí, Jarí lagi... þá yrði ég settur í tugthúsið... eða bannfærður
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:21
Imba nú er húsmóðir
á bloggi mínu
passar að þið séuð góðir
og allt í fínu.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:22
Hestaskít væri gott að fá
þó Ægir sig gretti
á bringu við ættum að bera á
svo að það spretti
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:26
Brattur ei prest hefur kannað
skrítið... ég hissa er nú
það mun jú vera harðbannað
segir hans fallega frú.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:27
Hrossaskít á Ægi dreifum
svo að sprettan aukist hratt
Hann er sem ungabarn í reifum
En það þarf ekki skít á Bratt.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:30
Prestar eru sagðir séra
og voða góðir
samt vildi ég helstekki vera
þeirra bróðir
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:35
Bringan á Bratti er loðin
þar engar eru eyður
einu sinni var þröstur
sem gerði þar hreiður
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:38
Nú Ægir sefur undir feldi og hrýtur
skyldi hann ekki eiga sæng ?
Og hár upp ofsahratt á brjósti þýtur
Það kemur strax, hviss, bæng !
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:43
Nú Halldór veit allt um bringur
en þó bara strákanna hér
Hann líklega er nógu slyngur
að sjá hún er fegurst á mér
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:48
Nú farið er að rökkva
á himninum stjörnur ég tel
ljósin öll er að slökkva
sofðu nú Anna vel
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:49
Hún má ekki vera loðin
og hún má ekki vera sver
það efast enginn um það
hver bringa fegurst er
Brattur, 22.7.2007 kl. 23:52
Takk Brattur, kvöldið var kúl
og kúrðu nú eins og steinn
Ég verð sko ekkert fúl
þótt ég sitji hér ein (n)........
Ahhhh..... nú hefði verið gott að vera karlmaður.
Anna Einarsdóttir, 22.7.2007 kl. 23:53
Ein ég sit og sauma
inni á bloggi þínu
ætla hér að lauma
eðalljóði mínu
hoppaðu upp
og lestu svo kveðskapinn
bentu á Bratt,
bentu á Önnu,
bentu á Ægi,
bentu á Kristjönu,
bentu á Arnfinn
bentu á þann sem að þér þykir verstur.
Anna Einarsdóttir, 23.7.2007 kl. 00:06
80 athugasemdir hjá Halldóri.
Er ekki eitthvað verulega athugavert við bloggið þitt strákur ?
Anna Einarsdóttir, 23.7.2007 kl. 00:08
Hva er í gangi? Hvar er gestgjafinn? eru bara haldin partý heima hjá honum meðan hann er ekki heima?
Verður ekki að setja öryggisþjónustuna á Vesturlandi í málið? Þetta var allavega ansi hætt komið í gærkvöldi sýnist mér!
Edda Agnarsdóttir, 23.7.2007 kl. 16:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.