16.1.2022 | 03:13
Sturluð forgangsröðun.
Á tímum faraldurs og einhverrar verstu fjárhagsstöðu sem höfuðborg Íslands hefur séð, skal skipta um utanhússklæðningu á Grófarhúsi. Sturlaðri verður trauðla forgangsröðun bjálfanna sem stjórna borginni. Sveimhugar, sem svífa um á bleiku skýi, á reiðhjóli, eða í stræ-dó, hafa toppað sig í ruglinu.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Grófarhús fært nær upprunalegu útliti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Bjálfarnir hafa verið að horfa á lífstílsþátt í sjónvarpinu, og hafa það eins og heimahjá sér, -breyta til, -ég þori að veðja að nýja útlitið verður alveg grátt og húsið haft í Síberískum Sovét supermarkaðs-stíl eins og öll nýja miðborgin.
Magnús Sigurðsson, 16.1.2022 kl. 07:56
Verður ríkið ekki bara látið borga, svona eins og borgarlínuna.
Gunnar Heiðarsson, 16.1.2022 kl. 08:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.