Borgaróstjórnarþvæla.

 “Grjóthrúgur sem kallast á við fjörugrjótið” heitir þetta víst samkvæmt “talsmanni” borgarinnar. Borgaróstjórn Reykjavíkur er samansett algerum bjálfum. Það ætti hverjum manni að vera orðið ljóst. Það er alveg kominn tími á það að láta fíkniefnadeild lögreglunnar mæta í Ráðhús Reykjavíkur með hunda sína og helst hafa þar viðveru allan sólarhringinn. Þetta lið hlýtur að nærast á einhverju allt öðru en venjulegu viðbiti.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Íbúar eru ósáttir við hrúgurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Eins gott að það brjótist ekki út óeirðir á götum Vexturbæjar, með allar þessar grjóthrúgur út um allt þið vitið.

Guðmundur Ásgeirsson, 10.6.2020 kl. 13:53

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þú meinar friðsamlegar óeirðir er það ekki? Það er komið í nýorðabók demókrata og fjölmiðla hér í Bandaríkjunum. Óeirðir sem að fólk er drepið, stór slasað, fyrirtæki öll stolið sem er laust og svo kveikt í byggingunni. Þetta telst til friðsamlegra óeirða í dag.

Kveðja frá Montgomery Texas

Jóhann Kristinsson, 10.6.2020 kl. 16:03

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Ég tók það ekki sérstaklega fram...

Guðmundur Ásgeirsson, 10.6.2020 kl. 16:06

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Væri fróðlegt að vita hvað þessi dauðans della kostar borgarbúa og samhliða spá dulítið í hvað hefði mátt bæta hinar ýmsu götur fyrir sömu upphæð. Ekki veitir af. Sennilega líður ekki á löngu þar til þeir einu sem nenna í miðborg Reykjavíkur verði útúrskakkir borgarfulltrúar meirihlutans á bleiku nostalgíuskýi.

Halldór Egill Guðnason, 10.6.2020 kl. 22:11

5 Smámynd: FORNLEIFUR

They're stoned, man. Ég hef heyrt að það séu ekki bara eiturlyfjahundar löggunnar sem ólmir vilji komast í Ráðhúsið. Pólitískir kjölturakkar spræna þarna upp við vegginn og úr því hefur myndast dágóð tjörn.

FORNLEIFUR, 11.6.2020 kl. 07:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband