6.4.2018 | 05:23
Sýnið okkur byggð hús !
50 hús á "teikniborðinu" hljómar klént og dulítið þvælt. Ætla rétt að vona að Skeiða og Gnúpverjar séu ekki að fara að taka "dagsholumar" á þetta.
Byggja fyrst, þenja sig síðan. Það er málið. Gangi ykkur vel.
Góðar stundir, með kveðju að sunan.
50 íbúðir á teikniborðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:24 | Facebook
Athugasemdir
Steini Briem, 8.10.2016:
Í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar er nú verið að byggja eða nýbúið að byggja þessar 1.310 íbúðir og reyndar fleiri:
Um 200 íbúðir Búseta við Einholt og Þverholt,
Um 100 stúdentaíbúðir í Brautarholti 7,
Um 140 íbúðir í Stakkholti,
Um 180 íbúðir í Mánatúni,
Um 80 íbúðir á Lindargötu 39 og Vatnsstíg 20-22,
Um 20 íbúðir á Lindargötu 28-32,
Um 90 íbúðir á Höfðatorgi,
Um 140 íbúðir á Lýsisreit við Grandaveg,
Um 20 íbúðir í Skipholti 11-13,
Um 70 íbúðir á Mýrargötu 26,
Um 80 íbúðir á Brynjureit milli Laugavegar og Hverfisgötu,
Um 20 íbúðir á Hljómalindarreit milli Laugavegar og Hverfisgötu,
Um 70 íbúðir á Frakkastígsreit milli Laugavegar og Hverfisgötu,
Um 20 íbúðir á Tryggvagötu 13,
Um 80 íbúðir austan Tollhússins við Tryggvagötu.
Einnig verða til að mynda um 200 íbúðir á Barónsreitum, um 60 á Hverfisgötu 96 neðan við Laugaveg 77, um 20 á Frakkastíg 1, um 170 við Slippinn í Vesturbugt og um 170 í Austurhöfn við Hörpu.
Þar að auki verða til dæmis um 390 stúdenta- og starfsmannaíbúðir við Háskólann í Reykjavík, um 100 íbúðir við Stakkahlíð fyrir námsmenn og aldraða og um 80 íbúðir við Keilugranda í samstarfi KR og Búseta.
Og byggðar verða um 600 íbúðir á Hlíðarendasvæðinu einu.
Alls verða því byggðar á næstunni að minnsta kosti 1.790 íbúðir í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar í viðbót við þær 1.310 íbúðir sem þar er verið að byggja eða nýbúið að byggja.
Samtals 3.100 íbúðir vestan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík, til að mynda lúxusíbúðir, Búsetaíbúðir, íbúðir fyrir ungt fólk og aldraða.
Frá því að ofangreint var ritað fyrir einungis einu og hálfu ári hafa fjölbýlishús risið til dæmis í Sóltúni, sem hér hafa ekki verið nefnd.
Og að sjálfsögðu er einnig nýbúið að byggja og verið að byggja íbúðir austan Kringlumýrarbrautar í Reykjavík.
Nýjar þjónustuíbúðir í Sóltúni í Reykjavík
Þorsteinn Briem, 6.4.2018 kl. 14:04
Þörfin vex hraðar en framboðið Steini. Þeir sem hamla framboðinu eru veruleikafyrrtir afglapar í 101. Það býr enginn í skipulögðu húsnæði, eða áætlunum um slíkt. Það má lengi skreyta sig með loforðum, en þvælan sem liggur á borðinu, í höfuðstað landsins, í húsnæðismálum, hlýtur að teljast alger geggjun, hjá flesu viti bornu fólki.
Halldór Egill Guðnason, 10.4.2018 kl. 04:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.