Jólagjöfin í ár?

Það er Tuðaranum með öllu óskiljanlegt,  hvers vegna stjórnvöld afhenda einfaldlega Niðurlendingum og Tjöllum ekki þrotabú Landsbankans með öllu sem því tilheyrir. Þessar þjóðir leyfðu Icesave og ber því að taka afleiðingunum af því. Þeir sem í asnaskap trúa "Nígeríusvindli", eiga skilið að tapa á því. Flóknara er þetta nú ekki. Að Þistilfjarðarkúvendingurinn óski sér þess helst að þessi della renni í gegn eins og steinsmuga og þar að auki sem jólagjöf, er ótvírætt merki um það að fólki er ekki hollt að sitja of lengi á þingi. Góðar stundir. 
mbl.is Góð gjöf að sameinast um málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband