13.9.2010 | 06:58
Ótrúlegur sjávarstraumur.
Í fyrrakvöld upplifdi Tudarinn siglingu gegn öflugasta sjávarstraumi sem hann hefur nokkru sinni lent í. Their sem siglt hafa til Bretlands med fisk og vörur kannast sjálfsagt flestir vid "Pentilinn" sem siglt er gegnum nordan Skotlands og thann mikla straum sem thar getur verid. Pentillinn blikknar hins vegar í samanburdi vid strauminn sem getur myndast austur úr Eldlandinu (Tierra Del Fuego) í sydsta hluta Argentínu. Austan Eldlandsins eru Estados eyjar og í sundinu thar á milli (Estrecho De La Maire) er siglt nordur eftir á fiskimidin sudvestur og sudur úr Malvinaseyjum. Í fyrrakvöld var sem sagt lagt í sundid, eftir nokkurra daga vidgerdarstopp í Ushuaia, sydstu borg veraldar. Skipid okkar, Tai An sem ad öllu jöfnu gengur 12,5 - 13 sjómílur á klst. med sína 105 metra, 5000 hestöfl og 90 menn, snaradist nordur í sundid undir "fumlítilli" stjórn Tudarans, sem ekki átti von á ödru en siglingin gengi sinn vanagang. Adeins spurning hvort straumurinn yrdi 3-4 sml. á móti eda 4-5. Í byrjun var straumurinn adeins 3 sml., en er komid var í um mitt sund sást ógnvekjandi rönd á ratsjánni sem nádi nánast thvert yfir allt sundid og alls kyns truflanir kringum hana. Á örskotsstundu var hradinn kominn nidur í 5,4 sml. en "dopplerinn" (Taeki sem sýnir straum vid yfirbord og nidur undir 150 metra dýpi) sýndi 6 sml. mótstraum, sem sídan jókst smátt og smátt, thar til á maelinum stód ad vid vaerum ad sigla gegn og á hlid móti taeplega 8 sml. straumi! Sjóloggid, sem sýnir hradann gegnum sjóinn, sýndi skömmu sídar 13 sml. hrada og GPS taekid maeldi okkur á 4,1 sml. hrada. Straumurinn var semsagt ordinn svipadur og undir Borgarfjardarbrúnni thegar mest laetur. Thar sem vedur var stillt og gott, sem sjaldnast er á thessum slódum, gekk thetta allt saman í rólegheitunum, en í slaemum vedrum er thetta sund eitthvert thad haettulegasta sem hugsast getur, sérstaklega fyrir afllítil skip og minni báta. Í morgun komum vid sídan á midin aftur og ádur en Edgardo annar stýrimadur gat klárad söguna af fjárfestingaraevintýrum sínum eda hvernig gosid í "Jafadllajudlli" drap Pepe födurbródur hans, voru kominn 100 tonn af fiski um bord og vinnslan á fullt, á nýjan leik.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:07 | Facebook
Athugasemdir
úfff!!
Marta B Helgadóttir, 14.9.2010 kl. 23:10
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.