Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
20.7.2021 | 20:35
Hraðpróf á landamærunum.
Mér er það með öllu óskiljanlegt, hvers vegna ekki er tekið strax upp á því að hraðprófa alla sem fara gegnum Leiffstöð inn í landið. Niðurstaða getur legið fyrir innan hálfrar klukkustundar. Einhverjir kunna að segja að það tefji svo fyrir, en þá verður einfaldlega að setja á fjöldatakmarkanir, sem miðast við afkastagetu hraðprófanana. Vel getur verið að þessi hraðpróf séu ekki eins nákvæm og pcr prófin, en varla munar svo miklu að ekkert mark sé á þeim takandi, eða hvað?
Undirritaður er nýlega kominn til Argentínu og þar fer hver einasti farþegi í hraðpróf í flugstöðinni og er ekki hleypt út úr henni fyrr en niðurstaða liggur fyrir. Hér er búið að setja á fjöldatakmörkun flugfarþega til landsins sem miðast við afkastagetu þessara hraðprófana og ekki gefin tomma eftir í því.
Hvers vegna ekki er gripið til þessa úrræðis þegar í stað, í stað þess að fara fram á pcr próf eftir viku, er óskiljanlegt heimskum tuðara. Þar til pcr prófanna verður krafist, getur enginn sagt til um hve margir eru sýktir, eða heilir, af þeim sem hingað koma.
Skil barasta ekkert í þessu, en það er svosem ekkert nýtt af minni hálfu með þetta frekar en annað.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Biður íslenska ferðalanga um að fara í skimun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2021 | 23:45
Hvað kostar að endurnýja vegabréf, eða ökuskírteini?
Það kostar pening að endurnýja vegabréfið sitt. Það kostar pening að fá, eða endurnýja ökuskírteini. Flest allt kostar eitthvað.
Ef einhver telur sig hinsvegar knúinn, í nafni frjálsrar kyngreiningar að breyta sér úr karli í konu, eða öfugt, kostar það ekkert.
Veit ekki með ykkur gott fólk, en þverhaus og tuðari eins og ég, skil eiginlega ekki tilganginn með þessu. Þið verðið bara að afsaka fávitann mig.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Frítt að breyta um nafn og kyn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.6.2021 | 00:42
Já, það er eitthvað stórkostlega mikið að!
Eins og fram kemur í viðhengdri frétt, hefur nákvæmlega enginn árangur náðst í því að byggja upp þorskstofninn frá því heimsins besta kvótkerfi var komið á í byrjun níunda áratugarins. Árangurinn er enginn! Enginn! Ef eitthvað er, hefur frekar sigið á ógæfuhliðina, en hitt.
Það virðist vera sem exelguttarnir á Hafró hafi áratugum saman ekki unnið samkvæmt vísindum, heldur exelskjölum, sem sköffuð hafa verið frá Ices, eða hvað þetta steinrunna meðalmennskureiknilíkan evrópusambandsstaðlanna heitir nú.
Vísindalegar niðurstöður er ekki með nokkru móti hægt finna út frá fyrirfram stöðluðum gildum. Það þarf að rannsaka og komast að niðusrstöðu út frá fyrirliggjansi gögnum, en ekki slá öllu inn í exel, samkvæmt staðli utanaðkomandi aðila.
Ef hægt er að ofmeta fiskistofna, er þá ekki allt eins líklegt að þeir hafi verið vanmetnir á sama skala? Spyr sá sem ekki veit.
Það er bjargföst skoðun mín, að misvelunnar niðurstöður Hafró hafi í gegnum árin kostað Íslenskt smfélag hundruði milljarða í töpuðum útflutningstekjum. Að hálfu má þar um kenna snargölluðum vinnubrögðum Hafró og til hinnar helftarinnar aumingjum í pólitík. Núverandi ráðherra þessara mála, jafnt sem flestum öðrum, honum undangengnum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Það er eitthvað stórkostlegt að |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.6.2021 | 08:40
Allt fyrir flokkinn.
Mikil er málefnaþurrð þeirra í pólitík, sem gera allt fyrir flokkinn, en fátt ef nokkuð fyrir hugsjón hans, eða sína, annað en hugsa um eigið rassgat.
Megi svíðreisn þurrkast út í næstu kosningum, ef stemmingin er ekki betri en þetta. Kúlulánadrottningin hefur svo sannanlega gott vald á því að spúa slæmsku og eitri, hvar sem hún kemur. Illfygli hið mesta og vonandi ekki á vetur setjandi, eftir næstu kosningar.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Benedikt hafi gert forystu Viðreisnar tortryggilega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.6.2021 | 04:40
Orkupakkar flæða og strengir lagðir um höfin blá.
Reynslulítil forysta Sjálfstæðisflokksins míns, með BB og Gullautanríks í forystu, sekkur neðar og neðar, með degi hverjum.
Hér eftir munu allir heimsins orkupakkar og eftirgjöf sjálfstæðis Íslands flæða yfir þjóð vora, sem enginn væri morgundagurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn er ónýtur flokkur, því forystan er nánast öll í röngum flokki og reynslulaus með öllu, fyrir utan formanninn, með milljarða gjaldþrot á bakinu, í hlutverki FJÁRMÁLARÁÐHERRA. ....
Forystan ætti að vera í kúlulánadrottningarflokknum, eða samspillingunni. Gott ef ekki pírötum! VG er á svipuðu kalíberi. Hugsjónageld forysta í báðum flokkum, en Þistilfjarðarkúvendingurinn fylgist vel með af hliðarlínunni, búinn að henda syndum sínum í hundrað ára leyndarhjúp Alþingis.
Sorgardagagar í sögu Sjálfstæðisflokksins eru framundan. Flokkurinn getur ekki annað en hlotið algert afhroð í næstu kosningum, nema.........jú hvað er í boði?
Miðflokkurinn..? Hugsanlega og jafnvel sennilega.
Samfylkingin...? Ekki glætan.
Píratar.........? Dittó. ( það er lágmark að vera í sokkum og vera ekki alltaf að spyrja )
Kúlulánaviðreisn ? TRAUÐLA
Flokkur Fólksins.? Alls ekki.
Vinstri Grænir....? Naaaa........selja sig of ódýrt fyrir stóla.
Framsókn..........? Naaahhhhaaahhha ...selja sig fyrir hvað sem er.
Við Sjálfstæðismenn erum ekki allir slæmir, þó sumir séu verri en aðrir. Meginþorri okkar hefur haft það að markmiði sínu að viðhalda sjálfstæði þjóðarinnar og rétti, til eigin ákvarðanatöku um sín eigin mál. Ósköp hreint og klárt. Sjálfstæð þjóð í eigin landi og stétt með stétt, þol ei órétt, var í upphafi meginstoð Sjálfstæðisflokksins. Í honum áttu allar stéttir Íslands samleið, en nú hafa stimpilpúðaþrælar evrópusambandsins tekið völdin í flokknum og nú er hún Snorrabúð stekkur og flokkurinn hrekkur við sjálfstæðið!
Með þetta forystulið innanborðs, er ekki nokkur einasta hætta á því að ég muni kjósa flokkinn minn í haust. Stimpilpúðar esb eiga enga samleið með sönnum Sjálfstæðismönnum og munu vonandi finna sanngjarnt fyrir því í haust. Hvert atkvæðin rata, kemur í ljós.
Svona er nú pólitíkin af mínum sjónarhóli gott fólk og fátt meira um það að segja, annað en það að ég kvíði komandi kosningum, sökum skorts a frambærilegu og vel meinandi fólki, fyrir þjóðarhag!
Ég vona að maður megi enn hafa skoðun.
( í þessari litlu saklausu ádrepu minni var engum dýrum misboðið, þau svívirt eða drepin, logið meir en gáfur gefa, eða pólitískum andstæðingum svívirða gerð, svo neinu marki nemur. Sjái einhver persóna, hvers kyns sem hún er af nútildags öllum kynjum í ummælum mínum níð, af einhverju tagi, er þeirri persónu bent á persónuvernd Ríkisins.)
þetta þjóðfélag..........
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Þórdís sigraði, Haraldur í 2. sæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 04:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.6.2021 | 22:56
Tja, hvar er nú nýja Stjórnarskráin ?.........
Er allt í lagi að knésetja öll gildi, í nafni leitar að nýrri Stjórnarskrá?......
Geta embættismenn, kosnir sem seinni tíma ráðnir, leyft sér að mæta að leiði Jóns Sigurðssonar, á Þjóðhátíðardegi Íslands, klæddir eins og fótboltabullur, eða umrenningar, í nafni leitarinnar að nýrri Stjórnarskrá Íslands?
Ég veit ekki með ykkur gott fólk, en útgangurinn á fulltrúum Reykjavíkurborgar á sautjánda júní, við leiði Jóns Sigurðssonar, gekk alveg fram af mér. Borgarstjórinn með fráhneppt í rykfrakka og hinn fulltrúinn með slagorð um týndu stjórnarskránna lekandi niður eftir bringu sinni í fráhnepptum jakka og ódýrum bómullarbol. Meira í takt við fótboltabullur, en alvöru embættismenn. Fyrr má nú aldeilis vera anarkisminn.
Að þessu sögðu, vil ég aumur tuðarinn, spyrja þessar mannvitsbrekkur að því, hvar nýja Stjórnarskráin liggur tilbúin? Hvar er nýja Stjórnarskráin ?......þið sem hæst gasprið og gefið skít í öll þau gildi, er gerðu þessari þjóð það mögulegt að skríða upp úr moldarkofunum að rétta úr kryppunni? Standa í lappirnar eins og sjálfstætt fólk, en ekki undirlægjur erlendra afla og vafasamra sjónarmiða? Þð er engin ný Stjórnarskrá tilbúin! Stjórnlagaráð skilaði TILLÖGUM að nýrri Stjórnarskrá! Það er ekki ný Stjórnarskrá! Göbbels kunni taktíkina og nú er hún endurnýtt. ÞAÐ ER ENGIN NÝ STJÓRNARSKRÁ TILBÚIN! Hvað í ósköpunum er fólk eiginlega að byðja um?
Er ekki komið nóg af þessu liði, sem virðist hafa það eitt sér til unnið, að gefa skít í fortið sína og fólkið sem færði því það sem það þó hefur í dag? Liðið, sem ef áfram heldur sem horfir, kemur okkur aftur ofan í jörðina og moldarkofana, með vanvirðingu sinni fyrir gengnum kynslóðum, sem með fíflagangi, heimsku og hjarðeðli, ofurselur okkur erlendu valdi á ný?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.6.2021 kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2021 | 02:38
Fer það eftir forstjóra, hvaða reiknilíkan er notað?
Það er í meira lagi undarlegt, að rétt eftir að skipt er um forstjóra Hafró, komi það í ljós að stofnstærð þorsks hafi verið ofmetin, árum saman. Hvað veldur? Er jafnvel hugsanlegt að þorskstofninn hafi verið vanmetinn árum saman?
Nýr forstjóri eða ólíkar reiknikúnstir í exelskjölum?
Niðurnegldir vísindamenn í glæsilegum húsakynnum í Hafnarfirði gerast helst til yfirlýsingaglaðir á fyrsta árinu þykir mér.
Að mínu mati tapaði Hafró af þorskinum, ýsunni' grálúðunni, loðnunni, síldinni, sandkolanum, makrílnum og öllum öðrum fiskistofnum á Íslandsmiðum, með röllum og exelskjölum.
Aldrei á staðnum. Aldrei á vertíð. Aldrei í neinu sambandi við líðandi stund. Aldrei einu sinni vör við makríl í Íslenskri lögsögu, fyrir einum og hálfum áratug! Allt skoðað eftirá! Hafró er aldrei á staðnum, þegar helst ber svo að vera.
Hafrannsóknir þarf að stunda af alvöru, eða sleppa algerlega ella. Evrópustaðlaðar reiknikúnstir eru ekki nokkur einustu vísindi.
Eldheitt útspil nýráðins forstjóra Hafrannsóknarstofnunar Íslanda, er skot úr myrkri. Rökin halda ekki vatni, frekar en áður. Óvissan í fiskifræðinni tekur framúr lélegri veðurspá og ávallt er hallað á þá sem nýta þessa auðlind, sem gagnast landsmönnum öllum.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2021 | 01:37
Konur kjósa líka.
Konum er jafn frjálst að taka þátt í prófkjörum og körlum. Ég geri ráð fyrir að þær kjósi til jafns við karla, það fólk sem þær sjái fyrir sér að best hæfi, sökum þess sem það hefur til brunns að bera. Karla sem konur.
Jafnrétti er jafnrétti. Það má ekki skrúfa það niður eftirá. Kosning er kosning og þeir sem raðast á lista sökum atkvæðafjölda eiga að halda sæti sínu. Allt annað er andlýðræðislegt.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Listinn væri sterkari með fleiri konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2021 | 05:04
Alúðar þakkir fyrir framlagið.
Við þessi merku tímamót, þegar einn þaulsetnasti þingmaður Íslandssögunnar kveður vinnustað sinn, er vert að rifja upp afrek hans.
Þessi maður sem vildi takmarka setu forseta á Bessastöðum, því þáverandi forseti fór í taugarnar á honum, kveður nú eftir tæplega fjóra áratugi á spenanum og afskaplega lítið verk, annað en að stofna stjórnmálaflokk og seilast í ráðherrastóla. Stjórnmálaflokk, sem sósíalískur átti að vera, en svo dó sósíalisminn dauða sínum og þá þurfti nýjar kenningar. Þær hafa helst verið sóttar í ímyndaða loftslagsvá og hamfarahlýnun af mannavöldum, hvar bregðast þarf við með hræðsluáróðri og skattheimtu á almenna borgara. Allt í boði hluthafa í mengunarkvótaheildsölum eins og Gorinu og sænska thurnberginu. Þokkalegur fjandans kokkteill, eða hitt þó heldur. Embættismanna hálendið, undir yfirstjórn allsumvitjandi, sitjandi umhverfisráðherra, sem enginn kaus og allt þessu verra, fram eftir götunum. Sturlun, er eina orðið yfir flokksómyndina sem þessi sjálfumglaði, mosavaxni þingmaður telur sér til tekna, við starfslok sín. Allar hans verstu syndir, faldar í hundrað ára leyndarhjúp Alþingis.
Inn á milli duttu ein Vaðlaheiðargöng, með ríkisábyrgð, en hver nennir að hugsa um það?
Þúsundir fjölskyldna sem misstu heimili sín í eftirhruninu, sem frjálshyggjusvínin og banksterarnir kölluðu yfir okkur og hann í liði með, meðan á eftirhrunsbrjálæðinu stóð. Steinlá fyrir hrægömmunum og vílaði ekki fyrir sér að bera samborgara sína á götuna, ásamt gráu jókunni, því það voru ráðherrastólar í boði. Fyrsta tæra vinstristjórn Íslandssögunnar fær nú sennilega ekki háa einkunn í sögubókunum.
Þistilfjarðarkúvendingurinn hefði betur hypjað sig fyrr af þingi, en mosavaxinn kerfisbullan og eiginhagsmunagemlingurinn hefur aldrei séð skóginn fyrir trjánum.
Ömurlegri stjórnmálamaður er vandfundinn, en að sjálfsögðu sér hann það manna síðastur og hefur nú tryggt að upp um sviksemi hans komist ekki, fyrr en eftir tæpa öld!. Leyniskjöl Alþingis sjá til þess.
Hugrekkið og hugsjónin uppmáluð, eða hitt þó heldur. Farið hefur fé betra og þó fyrr hefði verið. Ekki er eftirsjáin mikil af svona dinglumdána.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Áralangri þingsetu Steingríms lokið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2021 | 02:45
Fáránleikinn fullkomnaður.
Þegar maður hélt að hatur borgarstjórnar á bifreiðum hefði náð hámarki, klikkja þessir bjálfar út með þessu eindemis rugli.
Hinsvegar götunnar stendur ein fegursta bygging landsins, Hótel Borg. Gestir hótelsins vil ég leyfa mér að álíta, ferðast trauðla flestir um borgina og nágrenni hennar hjólandi eða gangandi.
Þessi gjörningur og rökin fyrir honum, eru svo ærandi vitlaus og heimskuleg, að varla nokkru tali tekur. Enn og aftur vil ég leggja til að fíkniefnahundar verði viðstaddir fundi þessa fólks, svo galið er þetta.
Formann samfylkinarinnar dreymir um að mynda ríkisstjórn í anda núverandi sveimhuga og rugludalla, í borgarstjórn Reykjavíkur. Sá draumur hans er beinlínis til þess fallinn, að flest venjulegt fólk fær martraðir og svefnlausar nætur af því einu saman, að heyra þá dellu.
Til þess eru vítin að varast þau. Vonandi ber skynsamt fólk gæfu til að koma i veg fyrir, að svona andskotans della komist að í landsmálunum. Það er nóg komið af þessari þvælu, sem forkólfur samfylkingarinnar mærir dag hvern og leyfir sér að dreyma um. Reykvíkingar og landsmenn allir eiga betra skilið en svona dauðans dellupólitík fólks, sem að því er virðist, leggur leið sína sjaldnast upp fyrir Elliðaár, nema á kostnað skattborgaranna.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Bílastæði víkja fyrir skiltum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)