Góð hugmynd, en.........

 Þetta er góð hugmynd og gefur yfirvöldum aukinn rétt, utan tólf mílnanna. Hinsvegar eru ummælin um að þetta veiti okkur aukinn rétt, án aukinnar ábyrgðar ansi mikið vanhugsuð. Í afgreiðslu þessa máls mega menn ekki taka aðeins réttinn sér til handa, heldur verður þeim rétti að fylgja alger ábyrgð á viðkomandi svæði. Annað lítur illa út og er í raun klaufalegt að setja fram, á frumstigi málsins. Það fær enginn allt fyrir ekkert. Með fjársvelta Lanhelgisgæslu Íslands er þetta fjarlægur draumur, en ef tekst með einhverjum hætti að laga þá stöðu, er hugmyndin býsna góð. Þetta snýst um um að byrja á réttum enda. Eitthvað sem of mörgum stjórnmálamönnum yfirsést, allt of oft.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Ísland fái aukið vald utan landhelginnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfulegt, eða hitt þó heldur.

 Kostnaður við múrinn verður innheimtur með 20% tolli á allar innfluttar vörur frá Mexico. Þetta mun væntanlega hækka útsöluverð til bandarískra neytenda og fyrirtækja, sem kaupa íhluti, sem og fullunna vöru frá Mexico, um hátt í 20%. Það verður með öðrum orðum bandarískur almenningur og fyrirtæki sem greiða fyrir múrinn! Er hægt að vera öllu vitlausari?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Múrinn greiddur með vöruskatti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðlindagjald af útsýni?

 Ef Tuðarinn mætti leggja orð í belg, til framdráttar hérlendri túrhestauppvöðslu, væri mitt fyrsta ráð til þessarar gullfallegu konu að leggja auðlindagjald, með fullum virðisaukaskatti á útsýnisferðir. Útsýni er nefnilega sameiginleg auðlind. Fólk kemur til Íslnds til að sjá  landið! Útsýni ber því að auðlindaskattsvæða. Til afsláttar mætti hinsvegar færa óþægilegar útsýnisferðir, sökum hörmulegs vegakerfis og skorts á kömrum og göngustígum. Allt í allt, sökum arfaslakra innviða, má hugsnleg gefa afslátt.  Auðlindaskatt á allar útsýnisferðir, með 20% virðisaukaskatti, vegna ónýtu veganna og engin rúta fengi að yfirgefa höfuðborgarsvæðið, án talningar farþega. Til þess yrðu skipaðar að minnsta kosti þrjátíu og fjórar nefndir, auk aðstoðarliðs og farþegateljara. Kostnaður móti innkomu, er nokkuð ljós, en mun að endingu skipta engu máli. Það mun ekki sjást ein einasta rúta meir, ofan Ártúnsbrekku, frekar en laxeldiskvíar á Vestfjörðum, eða fólk sem þar einu sinni bjó. Kvótakerfið hið seinna, verður í boði bjartrar framtíðar.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Framsýni, forvarnir og friðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur eru konum verstar.

 Þarf að segja eitthvað meira um það? Kvenréttindakonur og menn sjást afar sjaldan gagnrýna steypurugl frá "tískudrottningum" eða tónlistarkonum, sem nánast bjóða almenningi í útsýnisferð í klofið á sér, gegn greiðslu, við hvert tækifæri sem býðst. Madonna, Lady GAGa, Myles Qruis eða hvað þær heita allar. Ef karlmaður hagaði sér svona, væri hann umsvifalaust handtekinn fyrir ósiðlegt athæfi. Ef karlmður"niðurlægir" ímynd kvenna, er hann fordæmdur. Tala nú ekki um ef hann er í framboði til forseta Bandaríkjanna. Konum virðist hinsvegar algerlega frjálst að gera lítið úr sér sjálfum, án nokkurra afleiðinga og síðan fordæma karla fyrir kvenfyrirlitningu, sem ekki líkar klobbaboðsferðin. Geirvörtur eru ekki bannaðar á almannafæri, enda engin ástæða til. Umræðan er komin út í tómt rugl og konur orðnar konum verstar. Hverjum er ekki sama um þessa blessuðu stúlku, eða hvað hún kýs að sýna af líkama sínum? Varla meira en 40 kíló og því lítið að sýna annað en bein og skinn. Kjóllinn sennilega ekki dýr. Allavegana ekki mikið efni. Er þetta frétt?  Er þetta fréttamiðill, eða glamúrsykraður glassúrþvæluvefur, um ekki neitt?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Skildi ekkert eftir fyrir ímyndunaraflið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snöggt/skjótt skipast veður í lofti.

 Ekki man Tuðarinn eftir að hafa heyrt Sigmund upplýsa fyrirfram um nákvæmar útfærslur á því sem ríkisstjórnin hugðist gera, annað en almenns eðlis, í stjórnartíð hans. Lái honum hver sem vill. Þegar Sigmundur stígur í pontu og lýgur fyrir framan alþjóð, ekki í viðtalinu fræga, heldur í Eldhúsdagsumræðum á Alþingi, brennir hann síðasta brúarstólpann undan sér. Fjárlög eru afgreidd einu sinni á ári. Það er rétt hjá honum. Fjármálastefna til lengri tíma en eins árs í senn, hefur aldrei verið rædd á Alþingi fyrr. Þetta veit Sigmundur, en brennir sjálfan sig a ógætilegu orðavali. Þarna fer ekki heill maður. Þarna fer maður í hefndarhug. Slíkur maður ætti að taka sér hlé frá þingstörfum og skoða sinn innri rann. Þó illa hafi verið að honum veist, með forkastanlegri fyrirsát, verður hann að hemja sjálfan sig, ef hann vill endurvekja traust á sér. Það tókst honum svo sannarlega illa í kvöld og nánast pínlegt að sitja undir ræðu hans. Framsóknarflokkurinn er greinilega ríkur af bakstunguhnífasettum. Gildir þar einu, hvort um er rætt borgar eða landspólitík.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is „Ekkert nýtt, engin stefna, engin sýn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólastígur á Geirsgötu og Kaplaskjólsvegi?

 Annaðhvort þarf borgarráð í lyfjapróf, eða blaðamaður mbl.is að taka pokann sinn vegna vankunnáttu sinnar og aulaháttar í vinnslu þessarar fréttar. Hvort heldur sem verður, að sjálfsögðu aldrei, er grátlegt að lesa svona dómadags, árans dellu. 

(Í fréttinni stendur, í upptalningu framkvæmdanna, að hjólastígar verði meðfram Geirsgötu og Kaplaskjólsvegi. Hjá hverjum dellan liggur, Borgarráði eða blaðamanni, kemur aldrei í ljós)

 Að maður skuli nenna að tuða yfir þessu.

 Kveðja að sunnan.


mbl.is Gatnamótin opna aftur í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt.

 Varla annað um þetta að segja, en fyrirsögnin segir.

 Kveðja að sunnan.


mbl.is Mikill fjöldi vildi fylgjast með
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Déskotans, árans ESB!

  •  Ætli séu ekki nokkur einustu takmörk fyrir því hvað grútmyglaðir blýantsnagarar og kerfisódámar Evrópusambandsins geta látið sér óviðkomandi? Undarlegur söfnuður, sem hefur hreiðrað um sig þarna suður í Brussel. Sombísöfnuður sem virðist hafa fátt annað að markmiði sínu en gera samborgurum sínum erfitt fyrir og helst kvelja þá pínulítið í leiðinni, sé þess nokkur kostur. Það er ekki einu sinni hægt að fá keypta almennilega ryksugu lengur í Evrópu, því þessi náhirð fann það út að það heyrðist allt of mikið í gömlu góðu sugunum, sem svínvirkuðu, sökum kraftsins sem í þeim bjó. Í dag fást einungis hálfsugur, sem soga varla meir en sem nemur hressilegri snýtu. Nú skal ráðist til atlögu við flugeldana og helst ekki hleypa neinu öðru gegnum nálarauga leiðindapúkanna en hljóðlausu og helst ósýnilegu frussi, sem fáir hafa gaman að. Mikið djöfull hlýtur þetta einskis nýta lið að þurfa að hafa mikið fyrir því, að geta verið svona leiðinlegt. Furðulegur fjandi að á Íslandi skuli heill stjórnmálaflokkur standa opinmynntur af aðdáun yfir þessu viðbjóðslega bjúrókratsskrímsli og vilja þröngva okkur í faðm leiðindapúkanna. Déskotinn bara, best að hætta, áður en ég bora gegnum ipadinn með fingrunum. Manni getur nú sárnað. Nú verður sennilega tekið hressilega til við heimagerðar bombur í framtíðinni, ef fara á eftir þessu rugli. Er ekki annars hægt að sækja um sérstaka undanþágu, sökum sérstakra aðstæðna hér á landi? Það sagði urriðakynlífsfræðingurinn, hér um árið. Var það kannski bara plat og rugl, eins og flest það er snýr að þessu sambandsóbermi....já andskotinn bara, nú er ég hættur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Kemur varla að sök.

 Hvort hin svokallaða kauphöll á Íslandi opnar klukkutímanum fyrr, eða seinna, kemur tæpast að sök, í heimsviðskiptunum. Þessi örhöll mælist varla á heimsvísu og mun sennilega seint gera. 

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Bilun í Kauphöllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers þarf þá ESB?

 Fróðlegt, að þessi helsti boðberi ægisvalds Evræpusambandsins skuli velta sér upp úr þessum pælingum. Er hann farinn að sjá ljósið, eða hefur hann gert sér grein fyrir því að kjötkatlarnir eru að renna honum úr greipum? 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Össur vill sjá Alþingi stjórna Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband