Enginn skaði af því.

 Ekki verður með góðu móti séð að viðvera dofinna, ríkisstyrktra fjölmiðla hafi haft mikið að segja á þessum upplýsingafundum. Lítið spurt og flestöllu sem sérfræðingarnir segja meira og minna skellt orðréttu út í cosmóið.

 Það er hinsvegar blússandi gangur í að fylgjast með töskukaupum hálfberrassaðra svokallaðra áhrifavalda í útlöndum, hinum og þessum að opna sig um allan fjáran og öðru einskisnýtu þvaðri og blaðri.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Fjölmiðlar mæta ekki á upplýsingafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað eru margir veikir?

 Endalaust er staglast á fjölda greindra smita. Daginn út og daginn inn, nú í rúmt ár hefur að mestu verið sagt frá fjölda greindra smita. Samkvæmt fréttum, sem lítið fer fyrir, eru 97% þeirra sem nú greinast annað hvort með lítil og jafnvel engin einkenni. Hve margir eru alvarlega veikir er varla nefnt af hörmulegum fjölmiðlum, sem opinmynntir gleypa allt og smella á prent eða út í cosmóið, án svo mikils sem spyrja einnar einustu spurningar. 

 Fyrir rúmu ári síðan fullyrti útibússtjóri Amgen á Íslandi að það gæti tekið allt að sjö ár að þróa bóluefni gegn covid19. Sjö mánuðum síðar var farið að dæla tilraunalyfjumm í hundruði milljóna manna um allan heim. Almenningi hér á landi talin trú um að ef aðeins nógu margir létu dæla í sig óvissuglundrinu, væri möguleiki á því að hjarðónæmi kæmist á um eða uppúr miðju því sumri sem nú er brátt á enda. Búið er að bólusetja talsvert umfram það sem sagt var þurfa til hjarðónæmis, en hver er staðan í dag? Jú, nánast komin á byrjunarreit aftur. Fjallað er um þessa veiru, eins og um drepsótt sé að ræða, þegar fyrir liggur að yfir 95% þeirra sem fá veiruna, verður ekkert meint af, umfram venjulega flensu. Í hverjum einasta fréttatíma, nánast hvers einasta fjölmiðils heims hefur verið hamrað á hörmungunum sem fylgja þessari veiru, allan sólarhringinn í rúmlega ár! 

 Það létust fleiri úr berklum í fyrra, en úr covid19. Það létust fleiri úr hungri i fyrra, en úr covid19. Lækning er til fyrir hvoru tveggja, en er sennilega ekki eins fjárhagslega hagstæð og að geta gert stóran hluta mannkyns háðan stöðugri lyfjaglundursinngjöf, árið um kring næstu árin, án þess að bera nokkra ábyrgð. 

 Fyrir rúmu ári fullyrti sóttvarnarlæknir Íslands að andlitsgrímur veittu falskt öryggi og gerðu ekkert gagn. Nú eru þær enn og aftur orðin skilda. Hvað breyttist? Hver kippti í spottann og kom ljósinu fyrir sótta?

 Þessi geggjaða atburðarrás er langt komin með að gera almenning sturlaðan úr hræðslu. Þau sem mest bar á í upphafi og fengið hafa jafnvel orðu fyrir, verða minna og minna sannfærandi með hverjum deginum sem líður. 

 Í dag stendur varla steinn yfir steini af því sem lagt var upp með, en almenningur á bara að kyngja óhroðanum öllum og steinþegja og gegna?

 Ekki mikið lengur!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is „Ekki það gagn sem við höfðum vænst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorólfur, Kàri og co.

 Hvað er hjarðónæmi?

 Er því náð við 60% eða 80%  þjóðarinnar bólustt?

 Bólusett með hvaða sulli sem er? Tvisvar, þrisvar eða oftar?

 Hvar eru fjölmiðlar og aumingjarnir sem þar starfa?

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Þórólfur vildi tveggja metra reglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðpróf á landamærunum.

 Mér er það með öllu óskiljanlegt, hvers vegna ekki er tekið strax upp á því að hraðprófa alla sem fara gegnum Leiffstöð inn í landið. Niðurstaða getur legið fyrir innan hálfrar klukkustundar. Einhverjir kunna að segja að það tefji svo fyrir, en þá verður einfaldlega að setja á fjöldatakmarkanir, sem miðast við afkastagetu hraðprófanana. Vel getur verið að þessi hraðpróf séu ekki eins nákvæm og pcr prófin, en varla munar svo miklu að ekkert mark sé á þeim takandi, eða hvað?

 Undirritaður er nýlega kominn til Argentínu og þar fer hver einasti farþegi í hraðpróf í flugstöðinni og er ekki hleypt út úr henni fyrr en niðurstaða liggur fyrir. Hér er búið að setja á fjöldatakmörkun flugfarþega til landsins sem miðast við afkastagetu þessara hraðprófana og ekki gefin tomma eftir í því. 

 Hvers vegna ekki er gripið til þessa úrræðis þegar í stað, í stað þess að fara fram á pcr próf eftir viku, er óskiljanlegt heimskum tuðara. Þar til pcr prófanna verður krafist, getur enginn sagt til um hve margir eru sýktir, eða heilir, af þeim sem hingað koma.

 Skil barasta ekkert í þessu, en það er svosem ekkert nýtt af minni hálfu með þetta frekar en annað.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Biður íslenska ferðalanga um að fara í skimun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband