24.1.2008 | 12:29
Kostar eins og Range Rover
Branson er einstakur maður. Vonandi að þetta ævintýri verði að veruleika og gefi fleirum kost á að svífa í geimnum, en þrautþjálfuðum hamborgaraætum og vodkasvömpum, þó ekki sé nema í nokkrar mínútur. Þegar flogið er með Virgin Atlantic flugfélaginu, sem einnig er í hans eigu, er sýnt mjög fróðlegt myndband um þessa skutlu. Tuðarinn er þegar farinn að safna vildarpunktum. Það hlýtur að vera stórkostlegt að reyna þetta. Verðið er kannski ekki á hvers manns færi, en ef Tuðarinn ætti tólf milljónir og ætti að velja á milli svona ferðar og Range Rover .....tja, hvað gerði maður þá?
Branson kynnir nýja geimflaug | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Við færum út í geim, ekki spurning, það má alltaf aka um á Musso.
Ásdís Sigurðardóttir, 24.1.2008 kl. 13:58
Þótt ég fengi ferðina fría, þá færi ég ekki út í geim, fyrr en minn tími væri kominn.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 24.1.2008 kl. 14:32
... það væri gaman að sjá Tuðarann skjótast út í geiminn og blanda geði við hinar stjörnurnar... ætlar þú þá ekki að vinka mér vinur?
Brattur, 24.1.2008 kl. 22:11
Morning sunshine!
Marta B Helgadóttir, 26.1.2008 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.