1.6.2007 | 11:54
Gargandi spenna!
„Hann hefur ekki verið svona hrifinn af stelpu mjög lengi og þau gera allt sem venjuleg pör gera, til dæmis að fara í bíó eða horfa á DVD," Þvílík frétt!! Maður getur varla beðið eftir nánari fréttum af blessuðum drengnum og nýju vinkonunni! Please, please, please kæri Moggi. Ég treysti því að vel verði fylgst með þessu máli og hvernig það þróast næstu daga og vikur. Það hlýtur að teljast til meiriháttar viðburða í þessu "selebrity" kjaftæði að utan, að meðal þess skuli finnast fólk sem gerir það sem venjulegt fólk gerir. Rosalegt, svakalegt og efni í kjaftadálka alla leið upp til Íslands. Get varla beðið eftir meiru.......ég er svo spenntur að fá að lesa meira um fólk sem hagar sér eins og annað fólk að ....bara....bara...ja, ég bara er alveg að springa úr eftirvæntingu!
Robbie með nýja kærustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.