26.6.2017 | 07:14
Ábyrgðarlaust blaður fjármálaráðherra.
Ef embætti Ríkislögreglustjóra býr yfir vitneskju um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, greinir embættið að sjálfsögðu ekki frá því í fjölmiðlum. Búi fjármálaráðherra landsins yfir þess háttar upplýsingum, eins og hann hefur fullyrt opinberlega, hlýtur hann að teljast vanhæfur með öllu, með því að greina frá þeim. Búi fjármálaráðherra ekki yfir neinum óyggjandi upplýsingum, um peningaþvætti vafasamra aðila, hér á landi, en segist samt vita af því, er hann einnig algerlega vanhæfur sem ráðherra og ber að víkja nú þegar.
Það er sama hvernig litið er á þetta mál, Benedikt Jóhannesson er ekki starfi sínu vaxinn og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér. Það mun hann hinsvegar að sjálfsögðu ekki gera. Hann mun áfram böðlast fram veginn, með öllum mögulegum ráðum til að sverta lögeyri landsins, með það að markmiði að eyða honum af yfirborði jarðar, svo moka megi Íslandi í gin gráðugra bjúrókrata í Brussel. Þar dreymir ráðherrann um sína fjöl, á skattfrjálsum launum og feitum eftirlaunum, að þjónkuninni lokinni.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Kannast ekki við málið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:16 | Facebook
Athugasemdir
Síðan hvenær hefur verið sérstök þörf á að hreinsa illa fengið fé hér á landi? Megnið af fé í umferð á landinu er óhreint hvort sem er og sá sem kemur með meira óhreint fé á auðveldast með að fela það óhreinsað innan um allt hitt skítuga féð. Ef hann tæki hins vegar upp á því að hreinsa það sérstaklega, þá fyrst myndi það skera sig úr og vekja athygli!
Guðmundur Ásgeirsson, 26.6.2017 kl. 13:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.