16.4.2014 | 01:07
Hræsnin er alger.
Á sama tíma og borgin samþykkir að leggja niður skólagarða, þar sem ungmennum hefur gefist kostur á að rækta grænmeti, kemur fram tillaga þar sem meira að segja er opnað á þann möguleika að rækta grænmeti á svölum íbúðarhúsa, við Stjórnarráðið, Alþingisreitinn og ég veit ekki hvað. Tillagan mærð og talin góð, samþykkt með meirihluta atkvæða og málið steinliggur. Væri ekki rétt að bæta við í þessa dellu, að upplagt sé að rækta grænmeti á húsþökum, þar sem þau eru flöt, eða jafnvel í bílastæðum? Bílastæði eru jú höfuðóvinur núverandi borgarstjórnarmeirihluta og allir þeir sem aka bifreiðum eru taldir drullusokkar, sem geti bara tekið strætó, eða hjólað í vinnuna, sama hvar þeir búa utan 100 og eins. Þvílík andskotans della sem þetta er.
Góðar stundir.
Hvetja til matjurtaræktunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta latte lepjandi lið á 101 er ekki í nokkrum tengslum við lífið og tilveruna og lifir í einhverri sýndarveröld, ég efast um að Læknirinn sem talar rosalega mikið og segir afskaplega lítið hafi nokkurn tíma farið lengra út á land en rétt upp fyrir Ártúnsbrekku.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 16.4.2014 kl. 07:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.