Orkupakkar flæða og strengir lagðir um höfin blá.

 Reynslulítil forysta Sjálfstæðisflokksins míns, með BB og Gullautanríks í forystu, sekkur neðar og neðar, með degi hverjum.

 Hér eftir munu allir heimsins orkupakkar og eftirgjöf sjálfstæðis Íslands flæða yfir þjóð vora, sem enginn væri morgundagurinn.

 Sjálfstæðisflokkurinn er ónýtur flokkur, því forystan er nánast öll í röngum flokki og reynslulaus með öllu, fyrir utan formanninn, með milljarða gjaldþrot á bakinu, í hlutverki FJÁRMÁLARÁÐHERRA. ....

 Forystan ætti að vera í kúlulánadrottningarflokknum, eða samspillingunni. Gott ef ekki pírötum! VG er á svipuðu kalíberi. Hugsjónageld forysta í báðum flokkum, en Þistilfjarðarkúvendingurinn fylgist vel með af hliðarlínunni, búinn að henda syndum sínum í hundrað ára leyndarhjúp Alþingis.

 Sorgardagagar í sögu Sjálfstæðisflokksins eru framundan. Flokkurinn getur ekki annað en hlotið algert afhroð í næstu kosningum, nema.........jú hvað er í boði? 

 Miðflokkurinn..? Hugsanlega og jafnvel sennilega.

 Samfylkingin...? Ekki glætan.

 Píratar.........?   Dittó. ( það er lágmark að vera í sokkum og vera ekki alltaf að spyrja )

 Kúlulánaviðreisn ?   TRAUÐLA

 Flokkur Fólksins.?   Alls ekki.

 Vinstri Grænir....? Naaaa........selja sig of ódýrt fyrir stóla.

 Framsókn..........? Naaahhhhaaahhha ...selja sig fyrir hvað sem er.

 Við Sjálfstæðismenn erum ekki allir slæmir, þó sumir séu verri en aðrir.  Meginþorri okkar hefur haft það að markmiði sínu að viðhalda sjálfstæði þjóðarinnar og rétti, til eigin ákvarðanatöku um sín eigin mál. Ósköp hreint og klárt. Sjálfstæð þjóð í eigin landi og stétt með stétt, þol ei órétt, var í upphafi meginstoð Sjálfstæðisflokksins. Í honum áttu allar stéttir Íslands samleið, en nú hafa stimpilpúðaþrælar evrópusambandsins tekið völdin í flokknum og nú er hún Snorrabúð stekkur og flokkurinn hrekkur við sjálfstæðið!

 Með þetta forystulið innanborðs, er ekki nokkur einasta hætta á  því að ég muni kjósa flokkinn minn í haust. Stimpilpúðar esb eiga enga samleið með sönnum Sjálfstæðismönnum og munu vonandi finna sanngjarnt fyrir því í haust. Hvert atkvæðin rata, kemur í ljós.

 Svona er nú pólitíkin af mínum sjónarhóli gott fólk og fátt meira um það að segja, annað en það að ég kvíði komandi kosningum, sökum skorts a frambærilegu og vel meinandi fólki, fyrir þjóðarhag!

 Ég vona að maður megi enn hafa skoðun.

 ( í þessari litlu saklausu ádrepu minni var engum dýrum misboðið, þau svívirt eða drepin, logið meir en gáfur gefa, eða pólitískum andstæðingum svívirða gerð, svo neinu marki nemur. Sjái einhver persóna, hvers kyns sem hún er af nútildags öllum kynjum í ummælum mínum níð, af einhverju tagi, er þeirri persónu bent á persónuvernd Ríkisins.)

 þetta þjóðfélag..........

  Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 

 


mbl.is Þórdís sigraði, Haraldur í 2. sæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband