Fyrirhyggjuleysi og skammsýni.

 Það hefur verið magnað, en um leið hálf sorglegt, að fylgjast með umræðunni um nýafstaðið stórviðri. Engu er líkara en að stór hluti þjóðarinnar átti sig ekki lengur á staðsetningu landsins og þeim veðurhamförum sem þeirri staðaetningu geta fylgt. Það er aldrei spurning um hvort, heldur hvenær stórviðri lík þeim sem nú er ný afstaðið, skella á. Þetta var alveg örugglega ekki síðasta fárviðrið á Íslandi, svo mikið er víst. Það munu koma önnur og jafnvel örugglega verri veður í framtíðinni. Þetta ætti allt fólk að vita, sem býr á Íslandi. Síðasta Básendaveðrið hefur enn ekki skollið á! 

 Vonandi tekst að koma á rafurmagni á Dalvík, með vélakrafti nýjasta varðskips okkar. Hinsvegar vekur furðu að þessi staða sem nú er uppi skuli ekki hafa verið tekin með í reikninginn við hönnun og smíði skipsins. Vel má vera að auðvelt sé að dæla rafurmagni frá borði, en það er hinsvegar til lítils, ef klóin á móti passar ekki.

 Reynsla undangenginna áratuga í veðurhamförum, svo sem snjóflóðunum miklu á Súðavík og Flateyri hefði átt að leiða til þess, að við ættum skip sem fljótlegt væri að sigla á viðkomandi hamfarastaði og tengja við rafurmagnskerfi viðkomandi staða.

 Ástæða þess að svo er ekki, er sennilega sú, að stjórnmálamenn og handhafar valdsins hafa verið svo uppteknir af öðru, því miður. Hvers vegna er arðurinn af Landsvirkjun t.a.m. ekki nýttur í uppbyggingu öruggara dreifikerfis rafurmagns, í stað þess að puðra þeim fjármunum út í tómið? 

 Hvort liggur meira á að moka ofan í skurði, eða tryggja tilveru og öryggi landsmanna, í öllum byggðum þessa lands? Er ekki kominn tími til að stjórnmálamenn láti af fyrirhyggjuleysi sínu og skammsýni? Halda flónin við Austurvöll að orkupakki 3,4,5 og allt það fjandans rugl sem því fylgir, muni auka afhendingaröryggi rafurmagns í framtíðinni? 

 Spyr sá sem ekkert veit.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Flókið að koma á rafmagni úr Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband