23.5.2020 | 01:32
Elliglöp eða sturlun?
Það er ekki fagur matseðillinn fyrir næstu forsetakosningar í BNA. Tveir réttir í boði. Annar sturlaður og hinn elliær. Stefnir í að dauðsföll Covit-19 verði orðin a.m.k. þrefaldur fjöldi þeirra ungmenna sem létu lífið í Víetnamstríðinu og ef demókratar ná að rústa trumpinu, man sigurvegarinn ekki lengur hvað eigin tunga blaðraði í gær. Gjörsamlega galið ástand og einhver mesta niðurlæging sem BNA hafa nokkurn tíma orðið fyrir. Veröldin allt að því fyrirlítur BNA þessa dagana.
Í þessari KAOS stekkur Kínverski kommúnistaflokkurinn inn í umræðuna, með ódauðlegum foringja sínum og læsir klónum í allt, sem á kló og tönn á festir. 5G komið í umferð og allir ofsakátir. Kínverski kommúnistaflokkurinn fylgist með. Með öðrum orðum, 5G og Maó er vaknaður til lífsins á ný.
Það er ekkert minna en sorglegt að horfa upp á þetta.
Hella ætti klór og bleikiefnum upp í rassgatið a Donald Trump og Joe Biden ætti að senda á umönnunarstofnun fyrir löngu útbrunnin skör, með elliglöp og ennþá eigandi börn. Þvílíkur matseðill! Ekki einu sinni boðið upp á eftirrétt, hvað þá forrétt, enda báðir algerar mannleysur!.
God bless America
These two guys are sure as hell not going to do that, no matter who win´s.
God bless America
Hopefully something better comes along, that can push these idiots into space, before voting day. It does not have to be much, but everything is better than these two arsholes.
God bless America.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Svartir ekki svartir ef þeir kjósa Trump |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2020 | 00:19
Hvers er að sjá um skipulag vinnumarkaðarins?
Þegar verkalýðsforystan er komin í þá stöðu að fyrirtæki standa eða falla með aðgerðum hennar er vandséð hvernig nokkurt fyrirtæki getur þrifist með neinni vissu. Menn og konur fara í rekstur til að hafa af því tekjur og öll fyrirtæki eru rekin með það að markmiði að skila hagnaði. Ef hagnaðurinn er enginn, er ekkert vit í að halda úti rekstri. Þetta er mjög einfalt.
Reikningsdæmi sem annaðhvort gengur upp eða ekki. Það fólk sem ekki skilur þessa skilgreiningu á ekkert erindi upp á dekk.
Engin eða sem minnst vinna virðist vera orðið helsta keppikefli forystunnar. Það sem við tekur eru atvinnuleysisbætur. Hvaðan ætli þær nú komi kann einhver að spyrja. Forystan spyr þess hinsvegar ekki, enda vel launuð á kostnað umbjóðenda sinna.
Er ekki lífið dásamlegt?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Ógn við skipulag vinnumarkaðarins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2020 | 00:52
Eru ekki fleiri með þyrlur?
Það er nóg til af þyrlum á Íslandi að því er virðist í hin ýmsustu verkefni.
Göngustíga á Esjuna og annað. Er nokkuð úr vegi að nýta þær í svona verkefni, í stað þess að bera vatnið í fötum til slökkvistarfa úr alfaraleið, þar sem nánast engum vörnum verður við komið nema úr lofti? Ef Gæslan hrekkur úr skaftinu eru þá engin ráð önnur en láta landið brenna?
Hvar er plan B?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Erum að berjast í þessu enn þá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.5.2020 | 02:31
Trúir þessu einhver?
Í Kína býr hartnær einn og hálfur milljarður manna. 1.500.000.000.-
Eitt dauðsfall í upphafslandi veirunnar á þremur vikum? Þetta er svo ´´absúrd´´ að furðu gegnir að nokkur fjölmiðill skuli gleypa við þessari endemis dellu átölulaust og ekki spyrja neins, en kemur svosem ekkert á óvart. Fjölmiðlafólk er orðið numb og latt og vinnur flest á google translate, copy paste skalanum. Þessi tala undirstrikar, ef eitthvað er, hve lítið er að marka kínverska kommúnistaflokkinn og bullið sem þaðan vellur.
Svei fjölmiðlum, að henda svona andskotans dellu út í loftið, kinnroðalaust og án nokkurar eftirfylgni eða spurninga. Skammist ykkar bara svokölluðu blaða eða fréttamenn fyrir aumingjaganginn. Ekki að furða að þetta sé ekki lögvernduð stétt. Þvílíkur fjandans fíflagangur!
Er Davíð í fríi ásamt prófarkalesurunum, eða er honum drullusama líka um svona bévítans þvælu á síðum mbl.is?
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Eitt dauðsfall í Kína af völdum veirunnar síðustu þrjár vikur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2020 | 02:30
Vangaveltur um skítseiði.
Að veröldin skuli vera að missa sig yfir ástandi þessa skítseiðis, er með hreinum ólíkindum. Því fyrr sem þessi ódámur hverfur af yfirborði jarðar, því betra.
Vestrænir fjölmiðlar og talsmenn hvíta hússins ættu frekar að huga að rauðhausnum í the oval office, í stað þess að beina athyglinni að geðsjúkum leiðtoga norður kóreu.
Ærin eru verkefnin heimafyrir og vandséð að greindarvísitalan rísi neitt að ráði þeim bænum á, næstu misserin.
God bless America.
Kosningar framundan um nýjan forseta USA .....slap me
Einn snarruglaður og hinn man varla að hann er í framboði.
The greatest country in the world??.??
Slap me again.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Kim Jong Un sést loks opinberlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)