11.4.2022 | 01:07
Stórkostlegur áfangi?
Hinn stórkostlegi árangur, sem fiskveiðiráðgjöf Hafró hefur skilað, kallar á 4,eitthvað milljarða eyðslu í viðbót við lególand í Hafnarfirði. Í stað þess að eitt stórt og eitt lítið lúið skip liggji við bryggju megnið af árinu, munu nú tvö stór liggja bundin við bryggju, megnið af árinu. Annað sökum lélegs viðhalds og hitt sökum lélegrar hönnunar og viðtekinna byrjunarörðugleika.
Fyrstu tvö ár Árna Friðrikssonar, lá hann í slipp í hinum ýmsustu höfnum, meira og minna óvinnufær. Stórkostleg framför í hafrannsóknum kallaður samt.
Ekki nokkurn einasta fiskistofn hefur tekist að byggja upp frá árinu 1983, þegar kvótakerfinu var komið á fót, samkvæmt ráðleggingum Hafró. Svo segir a.m.k. Hafró.
Ekki nokkur skapaður hlutur bendir til annars en að þessi sólundun á almannafé muni í nokkru breyta þar um, því miður.
Áfram verða dregnar druslur og hlerar, sem notað var á seinni hluta síðustu aldar. Geggjunin alger, en algerlega í takti við sturlunina sem ráðið hefur ríkjum í kvótaruglinu frá upphafi.
Það er lítið að marka niðurstöður Hafró, hvort heldur nýr forstjóri er settur, reiknilíkön leiðrétt, lególand byggt yfir ruglið eða fjögur þúsund og eitthvað milljónum hent út í hafsauga undir þetta gagnslitla batterý.
Hafró er eins og Íslensk pólitík. Lævís og lipur og frek á fjármagn, föst í exelskýrslu evrópsks reiknilíkans frá bulluseli, með litlum sem engum árangri, en með fullt af fólki í vinnu, sem sleppir ekki sínu svo auðveldlega.
Steingeld stofnun.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
![]() |
Stór áfangi í sögu hafrannsókna á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.4.2022 | 03:26
Sala bankans míns og þrjú hundruð og sextíu þúsund annara.
Í allri umræðu um að Ríkið (Við öll)komi sér úr rekstri á samkeppnismarkaði, og talað um gegnsætt söluferli à eignum okkar, er banki seldur. Ûtvöldum bjóðendum boðin þátttaka, sem endar reyndar með því að minnsti ´´fagfjárfestirinn ´´ fékk keypt með sjö prósent afslætti, fyrir sína einu komma einu milljón. Talandi um að tryggja samkeppni....ú jé. Þeta var jú útboð fagfjárfesta, með meira en loforð um lán í klofinu frá fraukunni í óræðri deild bankans, eða pabba fjármálaráðherra.
Legg til að öll Íslenska þjóðin skilgreini sig sem fagfjárfesta og sjá síðan hvað setur hjá þessum andskotans landsölulýð, sem virðist hafa það eitt að markmiði að drepa í dróma samlanda sína, hvað sem það kostar og komast að kjötkötlum skattlausra starfa innan esb, án þess nokkru sinni þurfa að svara til saka !
Landsöluliðið liggur ekki á liði sínu,
sama hvar þessar druslur skrá sig til flokks.
Andakotans fokking fokk!
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.