Skattpíning hins opinbera.

Tryggingargjald, það sem atvinnurekendur greiða, er í dag 7,49 prósent. Var 5,34 prósent fyrir hrun. Munurinn 2,15prósentustig, en íraun nálægt 40 prósenta hækkun! Hvað eru 2,15prósent stór hluti af  7,49 prósentum? Burséð frá öllu atvinnuleysi, er tryggingargjaldið orðið þvílíkur baggi á fyrirtækjum í dag, að ef ekki kemur til veruleg leiðrétting á þessum skatti, hið fyrsta, er ljóst að holskefla gjaldþrota minni og meðalstórra fyrirtækja blasir við. Það er ekkert annað en hörmulegt að hafa troðið marvaðan gegnum efnahagsþrenginar undanfarinna ára, en þurfa að pakka saman og hætta rekstri, nú loks er sést til sólar, sökum óbærilegrar skattheimtu hins opinbera. Þessi ríkisstjórn er engan veginn að standa sig í stykkinu, er kemur að aðhlynningu smárra og meðalstórra fyrirtækja, sem þó höfðu burði og getu fram að bjargabrúninni, að standa af sér storminn, en greiða jafnframt sinn skatt, meðan ástandið var að jafna sig út. Sennilega sér ríkisstjórnin smá og meðalstór fyrirtæki í sama ljósi og aldraða og öryrkja.: Það er alltaf hægt að klípa af þeim, það koma einfaldlega aðrir í staðinn.

Goðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Vilja sjá tryggingargjaldið lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband