Reiknivél Þorsteins er röng!

 Það er undarlegt, hve menn geta farið hratt úr einu í annað. Þorsteinn Víglundsson, sem fyrir skömmu var talsmaður atvinnulífsins, er nú orðinn kerfiskerling helsta dragbýts þess, sem hann "ageteraði" eitt sinn fyrir. Þorgerður Katrín orðin krati, eftir áratuga (einarða) veru í Sjálfstæðisflokknum og stofnandi Viðreisnar kominn út í kuldann. Sjaldan hefur náðst mynd af viðtakendunum meira brosandi, en eftir að Benna var skúbbað á hliðarlínuna, eins og sést jafnvel enn betur á þessari mynd, þar sem hann rétt sést, lengst til vinstri á myndinni, brosandi en greinilega grátandi, að innan. Þetta er nú ekki beysið lið. Hælbýtar og bakstungulið sem notar hvert tækifæri sem býðst, til að níða skóinn, hvert af öðru og skara eld að eigin köku, frama og frægðar. "Tobba best" Hver ætli verði í miðsætinu að viku liðinni? Þorsteinn "meðfærilegi", eða Þorgerður "útumalltdrottningin"?.

 Reiknivél Þorsteins "meðfærilega" er röng. Ástæðan er einföld.:  Það tekur minnst tíu ár að nálgast þessa dellu, ef af yrði. Nú virðist ekkert benda til þess að Íslendingar vilji ganga í esb. Þar af leiðandi er þetta rugl og það veit Þorsteinn, en í aðdraganda kosninga, má að því er virðist ljúga, bulla og láta frá sér fara, hvaða dauðans dellu sem er. Fjölmiðlar sjá síðan um að dæla þessu út, hvaða nafni svosem það nefnist. 

 Frétta og blaðasnápar fjölmiðla þessa lands, eru lélegustu miðlarar frétta sem um getur, frá því orðið "fréttamaður" var fundið upp og starfsskyldur hans skilgreindar. 

 Fréttamenn eiga að segja fréttir. Fréttamenn eiga hvorki að búa til fréttir, sem samrýmast þeirra persónulegu skoðunum, eða taka við ómerkilegum fréttatilkynningum og gera þær að sínum. (Afkomutölur banka þar með taldar) 

 Þegar fréttamenn falla í þessa gryfju, eru þeir ekki lengur fréttamenn. Þeir verða að enn einum bloggaranum, eins og aulanum mér, sem fáir taka mark á lengur, enda lítið annað en tuðari og þverhaus, gasprandi á hliðarlínunni í eilífðar óánægju, um allan fjandann. Hjáróma rödd í einskismannslandi.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Viðreisn sýnir spilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðlindir og auðlindagjald.

 Sjávarútvegurinn er eina atvinnugrein Íslands, sem greiðir auðlindagjald af starfsemi sinni. Hvorki ferðaþjónustuaðilar, norðurljósaseljendur, málmverksmiðjur, eða aðrir, sem gera sér sameign þjóðarinnar að féþúfu, er gert að greiða auðlindagjald.

 Hvað ætli valdi því?

 Sennilega er öfund og málefnaþurrð öfundarafla, kratískra og sósíalískra, sem dreymir um jafnaðaraumingjagang til handa alls landslýðs, undir sívakandi og alltumlykjandi yfirstjórn embættismanna og ríkisvalds, helsta skýringin, að mínu mati. Ef þér gengur vel, skaltu fá að blæða fyrir, andskotinn þinn. Allir skulu hafa það jafnskítt, á meðan "elítan" fitnar og dafnar á endalausum áróðri um meðalmennskuþjóðfélag, þar sem frumkvæði og dugnaður er dauðasök og skal skattlögð til andskotans. 

 "Allur fiskur á markað" er einn frasinn, sem bylur á samfélaginu í umræðu um fiskveiðistjórnun og "þjófnað kvótagreifanna" á "sameign þjóðarinnar". Frasi sem notaður er jafnoft orðið og "innviðir" í þeirri ömurlegu kosningabaráttu, sem nú ríður röftum, næstum þremur árum fyrr en hefði átt að vera, því dúkkulísur úr ranni gnarrsins fannst að sér vegið og fóru í fýlu. Gjörsamlega ótækt afl vælukjóa og kverúlanta sjálfselskunnar. Kvótakerfið er fjarri því fullkomið og margt sem þar má betur fara. Það má nánast endalaust gera betur, en það má ekki draga úr löngun manna og kvenna, að gera betur. Þeir sem ætla sér hinsvegar að starfa þar, þurfa öryggi. Hvaða vit er í því að fjárfesta eitt ár fram í tímann? Það gerir ekki ein einasta viti borin manneskja. "Allur fiskur á markað", er rugl. Til að veiða fisk, þarf skip. Skip eru ekki ódýr. Það kaupir enginn skip, eða leggur fjármuni sína í fiskvinnslu, með eins árs plan í farteskinu, því allt skal ávallt "á markað". Er ekki frjáls markaður eitur í beinum krata og komma? Hvers vegna í ósköpunum er fiskurinn það eina sem skal á markað? Er náttúra og víðlendur Íslnds ekki sameign þjóðarinnar? Helsti vaxtarbroddurinn í uppgangnum, ásamt makrílnum. Hvers vegna í ósköpunum eru náttúrusölumönnum ekki gert að greiða auðlindaskatt af sinni starfsemi og það strax? 

 Þetta skilja ekki sósíalistar og kratar, enda skilja þeir ekki hagfræði 101. Hagfræði 101 er nefnilega það sem vantar í kratískan og sósíalískan hugsunarhátt og gerir krata og komma að krötum og kommum. Til að geta eytt peningum, þarf fyrst að afla þeirra. Er hægt að orða þetta skýrar? Af einhverjum ástæðum skilja kratar og kommar þetta aldrei og það gerir þá að því sem þeir eru. Vilja allt, án þess avo mikið sem hugsa til þess, hvaðan allt kemur.

 Þegar fjármagn þrýtur, verður ekki endalaust hægt að prenta peningaseðla. Það kerfi fellur að lokum inn í vakúm, sem endar á sama hátt og kommúnisminn og nú síðast, kratisminn, í ömurlegu embættis og valdsmannskerfi Evræpusambandsins, sem eru á sama "level"og Sovétríkin og Venezúela.

 Að á Íslandi skuli enn finnast fólk, sem dreymir um fullveldisafsal til blýantsnagara í Brussel, því draumur þeirra eru feitir bitlingar og skattfrjáls laun, við blýantsnag, er ömurlegt. Aumustu drullusokkar lýðveldisins, sem sumir hverjir fengu jafnvel afskrifaðar skuldir, sem námu árslaunum þrjú hundruð verkamanna, þykjast nú þess umkomin að ætla að "redda" málunum, með annara manna peningum.........aftur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


Vel skiljanleg ráðstöfun.

 Það er vel skiljanlegt að veitingahús taki upp þetta fyrirkomulag. Það felst ótrúlegt virðingarleysi í því að panta borð á veitingastað og mæta síðan ekki, jafnvel án þess að afbóka tímanlega. 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Ekki hægt að bóka borð og mæta ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. október 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband