Opna hvað, í hverju?

 Til hamingju Jón Margeir! Sérdeilis glæsilegt afrek. Blaðamaðurinn sem skrifaði greinina hefði hinsvegar mátt skilgreina ögn betur hverjir voru að keppa og einnig útskýra hvað S14 flokkurinn stendur fyrir. Burt séð frá því er alltaf gaman að sjá þegar okkar fólki gengur vel. Gleði Jóns Margeirs er algerlega ósvikin á myndinni, enda full innistæða fyrir brosinu. Enn á ný.: Til hamingju, Jón Margeir!.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Jón Margeir setti nýtt heimsmet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn þá?

 Mikið hefur orðið ennþá tekið miklum breytingum. Skyndilega orðið að tveimur orðum. Er einhver önnur orðabók í notkun í Hádegismóum, en meðal almennings, eða finnst þar engin orðabók lengur, frekar en prófarkalesarar?.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Enn þá til sæti til Frakklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. júní 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband