Niðurrifsverkalýðsforysta?

 Það er dulítið undarlegt að fylgjast með framgöngu forsetu ASÍ. Sem verkalýðsforingi, væri þá ekki betra að bíða eftir fyrstu launaseðlunum og sjá hvað þeir segja, eða telur hún sig geta staðið við fullyrðingar sínar fyrirfram? Fyrirtækið er ekki einu sinni farið að borga út laun, svo neinu nemi. Fullyrðingar um starfsfólk og félög, sem ekki falla í ASÍ hýtina, sem hvað hatrammast hefur t.a.m. barist gegn afnámi verðtryggingar á lánum til almennings? Væri ekki nær að konan liti sér nær og kryfði frammistöðu báknsins síns, síðustu áratugi, í stað þess að leggja stein í götu fyrirtækja sem nú reyna að létta lífið m.a. hjá hennar vinnuveitendum, með lægri fargjöldum?

 Hvurskonar eiginleg framkoma er þetta?

 Getur verið að ástæða fyrirframhatursins sé sú, að starfsfólk PLAY tileyrir ekki hennar veldi og hún telji sig því knúna til að drulla yfir fyrirtækið fyrirfram, því iðgjöld og aðrar álögur báknsins hennar munu ekki njóta gjalda frá launþegum PLAY? 

 Eru allir launþegar hjá fyrirtækjum í sama geira á sömu launum?

 Meiri óskaplega einfeldingsþvælan sem vellur úr þeim sem trúa því enn að öll dýrin í skóginum séu vinir.

 Sósíalismi andskotans tekur á sig ýmsar slæmar myndir og mynd forseta ASÍ er með þeim verri.

 Það sem verra er, er það að þetta er ekki einsdæmi í hérlendri verkalýðsforystu.

 Þeir sem bjóða sig fram til forystu í verkalýðsfélögum, ættu aldrei að hafa hærri laun en umbjóðendur sínir og vinnuveitendur.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is „Nei við Play!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Djofull er eg sammala ther.

Atvinnuleysi i haestu haedum og svo kemur thessi trunta

og segir i raun NEI VID VINNU.

Eitthvad mikid ad.

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.5.2021 kl. 05:03

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála ykkur félagar keisarinn er ekki í neinum fötum. Það hefur verið í lagi hingað til að dæla láglaunavinnuafli að austan yfir margar starfstéttir á Íslandi. Skúringakonan er ekki lengur til og múrarinn er á hverfanda hveli, ekki eftir nema einn og einn steypukall á stangli.

ASÍ og verkalýðsforustan hefur lengi tekið beinan þátt í að lækka laun iðnaðarmann og færa ávinninginn af því yfir í vasa milliliða og latínuliðsins með stórhækkuðu húsnæðisverði.

Nýverið með krosslímdum timbureiningahúsum frá austantjaldnum fyrir unga fólkið, sem á að vera svo svakalega gott fyrir kolefnissporið eins og allt sem er innflutt innflutt nógu langt að austan þessi árin.

Og í annan tíma hafa hús á Íslandi hvorki verið dýrari né ónýtari, og jafnvel myglaðri en hálfhrundir moldarkofarnir sem fólk skreið út um fyrir öld síðan. Um leið er skuldunum sallað niður á unga fólkið í óþekktum mæli, -já, og þá að ógleymdum afrekum ASí í verðtryggingunni um árið. 

Þú hittir naglann nákvæmlega á höfuðið Halldór þegar þú segir að; "Þeir sem bjóða sig fram til forystu í verkalýðsfélögum, ættu aldrei að hafa hærri laun en umbjóðendur sínir og vinnuveitendur." Annað er hreinlega að bjóða að þjófinn velkominn

Magnús Sigurðsson, 23.5.2021 kl. 05:56

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þakka innlitið, Sigurður og Magnús. Mottóið virðist vera að betra sé að hafa enga vinnu, því Ríkið sér um þetta allt saman. Fólk skilur ekki lengur að Ríkið er það sjálft.

Halldór Egill Guðnason, 2.6.2021 kl. 21:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband