Lifi embættismannakerfið!

 Bæði formaður Sjálfstæðisflokksins og nýkringdur ritari höfðu á orði á þessum fundi, að fylgið mætti vera meira. Formaðurinn dásamaði efnahagslegan uppgang, þrátt fyrir mótstraum, en gat þess í leiðinni að sjaldan hefði verið betur hlúð að embættismannakerfinu og öðrum hópum.

 Mótsögnin í þessari þvælu er slík, að hinum almenna Sjálfstæðismanni liggur við uppsölum, ef ekki iðrakveisu. Báknið vex á ógnarhraða, fyrir augum forystunnar og að hennar tilstuðlan. Bákn embættismanna, sem beinlínis fjarstýrir réttkjörnum fulltrúum þjóðarinnar til að stimpla, samþykkja og þegja undir oki erlends valds.

 Þeir þarna í útlöndum hljóti jú að vita allt betur og allt sem frá þeim kemur, hljóti að vera hinn heilagi sannleikur og ef við ekki sitjum, skríðum eða jafnvel leggjumst í skítinn, undir þeirra regluverki, muni Ísland farast.

 Óttinn við að gera ekki eins og embættismennirnir skipa er orðinn slíkur, að jafnvel forysta Sjálfstæðisflokksins er búin að gera í buxurnar af ótta við óskapnaðinn, sem hún skapar meir og meir, með degi hverjum. 

 Ótta við hvað?

 Jú stólinn.

 

 Aldrei í sögu Sjálfstæðisflokksins hefur ritari hlotið snautlegri kosningu. Til hamingju Jón.

 

 Hugsjón......horfin er.

 Stóllinn sem mig ber,

 gef ég ekki eftir, þar eða hér.

 

 Ég tek það sem mér ber!

 

 Hvað sem það kostar í september,

 hvort fylgið kemur, eða fer.

 

 Ég tek það sem mér ber!

 

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Segir fylgi Sjálfstæðisflokksins óásættanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Var ekki Guðna forseta "vinstrisins" tíðrætt um óttann og meistarinn Davíð Oddson  minnti svo eftirmannilega á gunguna sjálfa og núverandi stjòrnarliða í Icesavebaráttunni. 

Helga Kristjánsdóttir, 15.9.2019 kl. 04:40

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ef svokalllaða "grasrót" fær ekki súrefni þá deyr hún.

Sigurður I B Guðmundsson, 15.9.2019 kl. 10:24

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Það er von að þeir kumpánar séu óanægðir með fylgið en hafa ekki grænan grun um hversvegna það hrynur af þeim. Jón gæti kannski skoðað vegjaldaruglið, sem er risastór skattlagning hjá flokki sem boðar skattalækkanir. Bjarni getur kíkt á risaskrefið inn í ESB með orkupakkanum. Kannski þeir finni svarið. Það er allavega eins og þeir heyri ekki orð af því sem grasrótin segir þarna úr fílabeinsturninum.

Jón Steinar Ragnarsson, 16.9.2019 kl. 04:27

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Veggjöldin eru kannski hluti af strategíunni "burt með báknið" ? Hvað veit maður? Ekki treysti ég mér til að setja mig inn í þessa prívat rökhugsun þeirra.

Orkupakkinn kannski hluti af fyrirheiti nafnsins "Sjálfstæðisflokkur"? Ekki get ég skilið það, verandi ekki inni í sömu blöðru og þeir.

Jón Steinar Ragnarsson, 16.9.2019 kl. 04:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband