Til hvers þarf borgarstjóra?

 Góður almannatengill og klár, fær vel greitt, sem aðstoðarmaður ´´borgarstjóra´´ fyrir að hylja axarsköptin.

 Hvað er ´´burgermeisterinn´´ í Reykjavík eiginlega með í laun, ef aðstoðarmaðurinn kostar þessa upphæð?

 Getur verið að samtals sé verið að greiða burgermeisternum í Reykjavík og aðstoðarmanni hans, með launatengdum gjöldum, hátt í 50.000.000.- króna, (fimmtíu milljónum króna00/100) í árslaun úr sjóðum höfuðstaðarins? 

 Vonandi er þessi frétt alger della, en sé hún það ekki, er undarlegur andskoti að svelta  þurfi börn á leikskólum borgarinnar, vegna ´´fjárskorts´´.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.


mbl.is Aðstoðarmaður Dags kostar 20 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Kostnaðurinn hlýtur að skiptast í laun, launatengd gjöld, skrifstofukostnað,bílastyrk/ hjólastyrk, símastyrk og risnu

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 16.8.2019 kl. 12:59

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

En ekki hvað?

Halldór Egill Guðnason, 17.8.2019 kl. 00:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband