Til hamingju, en ekki vænta of mikils.

 Vonandi verður besti gamli Herjólfur í höfninni, þá er hinn nýi kemur, til samanburðar. Vestmannaeyingum óska ég velfarnaðar og til innilegrar hamingju með nýju flatbyttnuna, sem ætlað er að koma þeim á fastalandið og heim aftur, hvenær sem hentar. Sú verður reyndar aldrei raunin, því bæði nýjasti Herjólfur og höfnin sem hann á að umfaðma og veita skjól, hafa algerlega gleymt því að tala við móður Náttúru. 

 Útgerð og áhöfn óska ég góðs gengis og megi Guðs blessun vaka yfir allra þeirra gjörðum.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

 


mbl.is Formleg móttökuathöfn vegna Herjólfs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband